Spurt og svarað: Hildur Rún frá Eyjalistanum
Hildur Rún frá Eyjalistanum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins

Nafn: Hildur Rún Róbertsdóttir

Aldur: Ég verð 31 árs á árinu, fædd árið 1995

Fjölskylda: Maðurinn minn heitir Anton Örn Eggertsson og saman eigum við þrjú börn, Helgu Dögg 5 ára, Hinrik Edda 3 ára og Adam Inga heitinn.

Menntun og störf: Ég útskrifaðist með B.ed. gráðu í kennarafræði árið 2021 og svo M.T gráðu í leikskólakennarafræði árið 2025. Ég starfa sem deildarstjóri í Víkinni, 5 ára deild Hamarsskóla. Ásamt því eigum við og rekum fjölskyldan Vöruhúsið en þar sé ég um starfsmannahald, markaðs- og kynningarmál ásamt öðru tilfallandi í veitingarekstri.

Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég hóf störf í stjórnmálum árið 2022 með Eyjalistanum og sat þar í fjórða sæti líkt og nú. Ég uppskar varabæjarfulltrúarsæti ásamt sæti í fjölstunda- og tómstundaráði.

Af hverju Eyjalistinn? Eyjalistinn er fjölbreyttur hópur fólks úr samfélaginu og er staðbundinn listi í Vestmannaeyjum þar sem áherslur Eyja eru í forgrunni. Það skiptir mig máli að starfa innan lista sem leggur einungis áherslu á að bæta þjónustu íbúa Vestmannaeyja sem og uppbyggingu á bænum okkar. Innan Eyjalistans skipta einnig allir félagar máli en við státum okkur af miklu sambandi við okkar félaga og er ég stolt af því.

Brýnustu verkefni: Að mínu mati eru brýnustu verkefnin uppbygging nýs leikskóla í Löngulág. Þar þurfum við að hugsa stórt en við megum þó ekki gleyma að hugsa einnig um stöðugildi innan leikskólans. Ég tel til dæmis mjög mikilvægt að leikskólarnir fái inn nýtt stöðugildi, tví- og fjöltyngisfulltrúa sem sinnir einungis málörvun barna með fleiri tungumál en íslensku. Þá myndu sérkennslustjórarnir sem við höfum tryggt á kjörtímabilinu fá meira svigrúm til að sinna þeim fjölmörgu börnum sem þurfa á sérkennslu að halda. Við viljum uppbyggingu í leikskólamálum en þar má ekki einungis leggja áherslu á byggingu nýs húsnæðis heldur skipta kennarar þar og annað starfsfólk öllu máli.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ég mun halda áfram að leggja áherslu á fjölskyldumál, velferðarmál og almenna uppbyggingu á bænum okkar. Að auki tel ég nauðsynlegt að grípa boltann í sterkri hagsmunagæslu við ríkið en núverandi bæjarstjórn hefur sinnt því hlutverki mjög vel og mikilvægt að halda því áfram.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Ég sé framtíð Vestmannaeyja fyrir mér sem bjarta, mikla fólksfjölgun, áframhaldandi sterkan straum ferðamanna, við erum menntasamfélag og við munum halda þeirri vegferð áfram og verðum að halda við tæknivæðingu grunnskólans sem og byggja upp nýjan leikskóla.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Eyjalistans: Ég hef reynslu fram að færa verandi varabæjarfulltrúi, ég hef dugnað og seiglu og sinni mínum málum af alúð.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Að hér verði áfram gott að búa og ala upp börnin okkar. Að börn fái viðeigandi þjónustu í heimabæ og líði sem best í leik og starfi í frábæru skólunum okkar.

Nýjustu fréttir

Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.