Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
Sonja frá Miðflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins

Nafn: Sonja Andrésdóttir

Aldur: 53 ára

Fjölskylda: Ég er gift Agnari Magnússyni og á fjögur börn, þau  Andrés, Guðbjörn, Birtu Líf og Andri Már. Einnig á ég einn lítnn ömmusnúð hann Maron Breka og tvo hunda þá Rökkva og Myrkva.

Menntun og störf: Ég fór langt með kokkanámið á sínum tíma og vann í þeim geira í mörg ár en starfa nú sem tómastunda- og virknistjóri á Hraunbúðum auk þess sem ég tek vaktir í Kjarnanum.

Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég hef komið að stjórnmálastarfi í Vestmannaeyjum fyrst með Framsókn og óháðum og eitt kjörtímabil með E- listanum.  Ég hef setið í  fræðsluráði verið varamaður í fjölskyldu- og tómstundaráði.

Af hverju Miðflokkurinn? Þetta er sá flokkur sem hefur barist hvað harðast fyrir hagsmunum okkar Eyjamanna og þar tel ég að finna gott bakland og tengingu inn á þing.

Brýnustu verkefni: Að huga að framtíðinni þegar kemur að þjónustu við okkar besta fólk, má þar nefna að nauðsynlegt er að finna framtíðar hjúkrunarheimili stað í skipulagi bæjarins. Þrátt fyrir að það sé ekki sveitarfélagsins að byggja það þá vitum við öll að við fáum ekkert nema að biðja um það og að ekkert er byggt ef ekki gert ráð fyrir því og ekkert pláss er til staðar fyrir það.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ég mun leggja sérstaka áherslu á þjónustu við aldraða, fólk með fatlanir og aðstandendur þeirra, með það markmið að tryggja aukin lífsgæði, öryggi og aðgengi að viðeigandi stuðningi.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Sem framúrskarandi sveitarfélag sem eftirsóknarvert er að búa í og getur þjónustað við aldraða og þá sem glíma við fatlanir sem best, og stuðlað að því að þeir og umönnunaraðilar þeirra geti lifað og starfað í góðu umhverfi, með viðeigandi aðstöðu, þannig að þeir geti blómstrað sem best.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Miðflokksins: Ég hef reynslu af störfum fyrir stofnanir bæjarins og innan stjórnsýslu hans. Í starfi mínu á Hraunbúðum og í Kjarnanum hef ég öðlast dýrmæta innsýn í aðstæður þeirra sem reiða sig á þjónustuna. Sú reynsla hefur gert mig meðvitaða um bæði styrkleika kerfisins og hvar tækifæri liggja til úrbóta í þessum mikilvæga málaflokki.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Ég vil að  Eyjarnar séu samfélag þar sem hver og einn skiptir máli og fólk getur treyst hvert á annað. Þegar fólki líður vel í Eyjum hefur það jákvæð áhrif á allt í kring, eins og samfélagið og menninguna. Það er sú sýn sem Miðflokkurinn vill standa fyrir.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á?
Ég mun leggja sérstaka áherslu á þjónustu við aldraða, fólk með fatlanir og aðstandendur þeirra, með það að markmiði að tryggja aukin lífsgæði, öryggi og aðgengi að viðeigandi stuðningi.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja?
Ég sé fyrir mér Vestmannaeyjar sem framúrskarandi og eftirsóknarvert sveitarfélag þar sem gott er að búa. Samfélag sem veitir öldruðum og fólki með fatlanir fyrsta flokks þjónustu og skapar aðstæður sem gera þeim og aðstandendum þeirra kleift að lifa og starfa í öruggu, stuðningsríku, jákvæðu og nærandi umhverfi. Markmiðið er að allir hafi raunhæf tækifæri til að dafna og njóta sín til fulls.

Nýjustu fréttir

Sköpunarhúsið áfram opið í sumar 
Tónleikar og skemmtun í Höllinni um helgina
Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.