„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“

506606095 10230521671879054 3352144788498294628 N

Ferðamálasamtök Vestmannaeyja senda frá sér sterkt ákall til stjórnvalda þar sem þau lýsa yfir djúpum áhyggjum af ástandi samgangna til og frá Eyjum. Samtökin segja stöðuna ekki lengur ásættanlega og vara við alvarlegum afleiðingum fyrir atvinnulíf, öryggi og daglegt líf íbúa ef ekki verði gripið til tafarlausra úrbóta. Ákallið – sem er stílað á ráðherra […]

Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen

2. Bundsliga: HSG Nordhorn-Lingen - TV Großwallstadt 25:25

Eyjamaðurinn Elmar Erlingsson átti frábæran leik í þýsku B-deildinni í gærkvöld þegar heil umferð fór fram. Elmar og félagar hans í Nordhorn-Lingen sóttu 2000 Coburg heim en þurftu að sætta sig við fjögurra marka tap. Nordhorn var undir í hálfleik með einu marki og voru lokatölur leiksins 36-32 Coburg í vil. Elmar var markahæstur í […]

Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært

Alfsnes 06 24 IMG 5443 2

Dýpkunarskipið Álfsnes náði loks að dæla sandi í og við Landeyjahöfn í gær.  Að sögn G. Péturs Matthíassonar, forstöðumanns samskiptadeildar Vegagerðarinnar gekk vel að dýpka í og við Landeyjahöfn síðdegis í gær. Dýpkun hófst um kl. 16:30 og var unnið í um fjóra tíma við góðar aðstæður. Vonir standa til að framhaldið verði með svipuðum […]

Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins Nafn: Sonja Andrésdóttir Aldur: 53 ára Fjölskylda: Ég er gift Agnari Magnússyni og á fjögur börn, þau  Andrés, Guðbjörn, Birtu Líf og Andri Már. Einnig á ég einn lítnn […]

ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita

Baráttan um sæti í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta heldur áfram í dag þegar ÍBV mætir Haukum í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. Leikurinn fer fram á Ásvöllum og hefst klukkan 16:00. Haukar leiða einvígið 1–0 eftir sigur í fyrsta leik, en Eyjakonur stefna á að jafna metin og færa einvígið aftur í jafnvægi. Um er […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.