Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær - uppfært
Alfsnes 06 24 IMG 5443 2
Álfsnesið við dýpkun við Landeyjahöfn. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Dýpkunarskipið Álfsnes náði loks að dæla sandi í og við Landeyjahöfn í gær.  Að sögn G. Péturs Matthíassonar, forstöðumanns samskiptadeildar Vegagerðarinnar gekk vel að dýpka í og við Landeyjahöfn síðdegis í gær. Dýpkun hófst um kl. 16:30 og var unnið í um fjóra tíma við góðar aðstæður. Vonir standa til að framhaldið verði með svipuðum hætti.

Bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa lýst yfir miklum áhyggjum af stöðu samgangna, þar sem höfnin hefur verið lokuð meira og minna það sem af er ári og dýpkun gengið hægt. Ástandið hefur haft veruleg áhrif á siglingar Herjólfs og samgöngur við Vestmannaeyjar almennt, og hefur verið kallað eftir tafarlausum aðgerðum.

Uppfært kl. 10.55

Að sögn G. Péturs hefur dýpkun í og við Landeyjahöfn gengið vel undanfarna klukkutíma. Dýpkunarskipið Álfsnesið hefur náð að dýpka í hafnarmynninu bæði á flóðum í gærkvöldi og í morgun, með góðum árangri. „Dýpkun er enn háð sjávarföllum, það er lítillega hækkandi alda í dag en við erum bjartsýn á að ná að nýta næstu flóð.”

Samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar er mjög góð veðurspá frá mánudegi og út alla næstu viku, sem gefur tilefni til aukinnar bjartsýni um framhaldið.

Nýjustu fréttir

Dýpkunin í Landeyjahöfn sögð ganga vonum framar
ÍBV fallið úr Bestu deild karla eftir tap gegn Þór á Akureyri
ÍBV fyrst til að leggja ÍR að velli á tímabilinu
Eyjar liðins tíma lifna við – 1. þáttur
Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.