„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
506606095 10230521671879054 3352144788498294628 N
Herjólfur siglir til hafnar í Eyjum. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Ferðamálasamtök Vestmannaeyja senda frá sér sterkt ákall til stjórnvalda þar sem þau lýsa yfir djúpum áhyggjum af ástandi samgangna til og frá Eyjum. Samtökin segja stöðuna ekki lengur ásættanlega og vara við alvarlegum afleiðingum fyrir atvinnulíf, öryggi og daglegt líf íbúa ef ekki verði gripið til tafarlausra úrbóta. Ákallið – sem er stílað á ráðherra og þingmenn – má lesa í heild sinni hér að neðan.

 

Hæstvirtir ráðherrar og þingmenn.

Það er löngu orðið óásættanlegt ástand í samgöngum við Vestmannaeyjar. Þetta er okkar þjóðvegur og hann er einfaldlega brotinn…

Við upplifum verulega vanvirðingu í þeim viðbrögðum sem ráðherra málaflokksins hefur sýnt í opinberum viðtölum. Skilja þingmenn og ráðherrar ekki alvarleika málsins?

Á sama tíma eru áhrifin á atvinnulífið í Vestmannaeyjum gríðarleg. Fólk og fyrirtæki óttast um framtíð sína. Afbókanir eru orðnar daglegt brauð, tap er farið að bíta, og sumarið  okkar mikilvægasti tími er handan við hornið.

Þetta hefur keðjuverkandi áhrif á allt samfélagið: veitingastaði, afþreyingu, verslun, gistingu og fjölmarga aðra þjónustu. Og ekki síður á daglegt líf bæjarbúa, sem er orðið óviðunandi að búa við þessar aðstæður.

Ferðaþjónustufyrirtæki í Vestmannaeyjum njóta ekki þess lúxus að hafa 12 mánaða rekstrarár. Rekstrargluggi þeirra er aðeins 4–5 mánuðir. Nú er verið að skerða þennan stutta glugga, sem er með öllu óásættanlegt.

Herjólfur er ekki aðeins samgöngutæki, heldur lykilhluti almannavarna, sem undirstrikar mikilvægi þess að samgöngur virki áreiðanlega.

Við erum jafnframt eitt af verðmætustu sveitarfélögum  landsins miðað við framlag á hvern íbúa til ríkissjóðs. Lágmarkskrafa okkar er einföld: að þjóðvegurinn okkar virki.

Þegar svo er ekki, hvað er þá annað í stöðunni en að hækka róminn og senda frá sér þetta ákall?

 

Stjórn Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja

Nýjustu fréttir

„Þjóðvegurinn okkar er brotinn“
Elmar kom að 15 mörkum fyrir Nordhorn-Lingen
Náðu fjórum tímum í dýpkun í gær – uppfært
Spurt og svarað: Sonja frá Miðflokknum
ÍBV sækir Hauka heim í öðrum leik undanúrslita
ÍBV tapaði á Hlíðarenda
Bæjaryfirvöld kalla eftir tafarlausum aðgerðum vegna samgöngustöðu
Baldur fyrr í áætlun vegna biðlista
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.