Íslandsmótið í Boccia hófst í Eyjum í dag
Frá mótinu í dag. Mynd/Óskar P. Friðriksson

Íslandsmót Íþróttasambands fatlaðra í boccia í sveitakeppni hófst í Vestmannaeyjum í dag. Mótið fer fram í Íþróttamiðstöðinni og er umsjónaraðili íþróttafélagið Ægir í Vestmannaeyjum. 

Sú hefð hefur skapast að halda þessi Íslandsmót í bæjarfélögum úti á landi þar sem sem aðildarfélög ÍF starfa. Markmið er að kynna starfsemi aðildarfélaga ÍF sem hafa mjög mikilvægu samfélagslegu hlutverki að gegna. Á þessi mót koma árlega um tvö til þrjú hundruð keppendur auk aðstoðarfólks.

Keppni í 1. deild og BC 1-5 hófst kl. 11:00 og lauk kl. 14:00. Keppni í 2. deild hófst kl. 14:00 og lauk 17:00. 

Átta liða úrslitin fara fram á morgun, sunnudag, og hefjast þau kl. 11:00. Undanúrslitin fara fram kl. 11:45 og úrslitin kl. 12:30. Mótinu lýkur svo með lokahófi.

 

 

Nýjustu fréttir

Tæp 63 prósent segja nei í Suðurkjördæmi
ÍBV stelpunum spáð sigri í Olís deildinni – Strákunum spáð sjöunda sæti
Spyr Morgunblaðið spurninga sem RÚV lætur eiga sig?
Myndband: Ný íbúðablokk tekur á sig mynd við Áshamar
Sjö sóttu um – sex umsóknir standa eftir
Evrópa er meira en Evrópusambandið
Suðurlandi allt
Tvö afmælismót Taflfélagsins um helgina
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.