Hvar er grafskipið? Hvar eru upplýsingarnar?
Sanddæluskipið Álfsnes á leið til Eyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS
Kjartan Vido 20260222 145530

Aðsend grein

Kjartan Vídó

Lífið í eyjum stendur og fellur með áreiðanlegum samgöngum og þar gegnir Herjólfur lykilhlutverki og er mikvæg lífæð fyrir samfélagið okkar. Daglegar ferðir skipsins tryggja flæði fólks, vara og þjónustu sem er forsenda þess að atvinnulíf og mannlíf blómstri í Eyjum. Þegar óvissa er með siglingar í Landeyjahöfn hefur það víðtæk áhrif sem ná langt út fyrir einstaka ferðir.  

Skortur á upplýsingum gerir slæmt ástand enn verra

Undanfarin ár hefur ítrekað komið upp staða þar sem upplýsingar um dýpkunarframkvæmdir í Landeyjahöfn eru hvorki nægilega skýrar né tímanlegar. Þessi skortur á upplýsingagjöf hefur raunverulegar afleiðingar. Ferðaþjónustuaðilar geta ekki skipulagt starfsemi sína með eðlilegum hætti, bókanir verða ótryggar og ferðamenn upplifa óvissu sem getur haft áhrif á ákvörðun þeirra um að heimsækja svæðið yfir höfuð.

Fljót og góð upplýsingagjöf getur ekki verið flókin framkvæmd

Fyrir samfélag sem treystir jafn mikið á samgöngur og Vestmannaeyjar gera er gagnsæ og skilvirk upplýsingagjöf ekki aukaatriði, hún er grundvallarforsenda. Þegar upplýsingar berast seint eða eru óljósar skapast keðjuverkun. Fyrirtæki þurfa að bregðast við í flýti, starfsfólk vinnur við óvissu og íbúar finna fyrir skertri þjónustu og tengingu við fastalandið.

Áreiðanlegar samgöngur eru nauðsyn en ekki lúxus

Það er mikilvægt að undirstrika að ferðaþjónustan í Vestmannaeyjum er ekki aðeins afþreying fyrir ferðamenn sem heimsækja eyjuna okkar. Hún er einn af burðarásum í efnahagslífi Vestmannaeyja, skapar störf og styður við fjölbreytt atvinnulíf og skapar afþreyingu fyrir bæjarbúa. Áreiðanlegar samgöngur eru því ekki lúxus heldur nauðsyn. Þegar þær raskast, eða þegar óvissa ríkir um þær, bitnar það beint á lífsgæðum og afkomu fólks.

Gerum kröfur um betri upplýsingagjöf

Því þarf að gera skýrar kröfur um betri upplýsingagjöf varðandi stöðu Landeyjahafnar og dýpkunarframkvæmdir. Reglulegar, aðgengilegar og nákvæmar uppfærslur myndu draga úr óvissu og gera bæði íbúum og atvinnulífi kleift að bregðast við með fyrirsjáanlegri hætti. Með því væri ekki aðeins verið að bæta rekstur samgangna heldur styrkja stoðir samfélagsins í heild. Vegagerðin sem verkkaupi að dýpkunar framkvæmdum og eigandi Landeyjahafnar þarf að gera miklu betur í því að miðla upplýsingum. Samtöl eyjamanna um hvar grafskipið sé eða afhverju það er ekki að grafa þurfa ekki að eiga sér stað ef upplýsingar liggja hratt og örugglega fyrir.

Ef Vegagerðin getur ekki klárað þetta einfalda verkefni  verður Vestmannaeyjabær að taka það að sér

Ef að Vegagerðin getur ekki leyst það einfalda verkefni að miðla til almennings nauðsynlegum upplýsingum um stöðuna í Landeyjahöfn, t.d. stöðuna á dýpkunaframkvæmdum, hvers vegna er ekki verið að dýpka, hvenær má vænta þess að það verðir gert osv.frv.,   þá þarf Vestmannaeyjabær einfaldlega að taka að sér að  sjá um það verkefni. Þetta er ekki flókið verkefni og það eina sem þarf til er vilji og skilningur á mikilvægi góðarar og virkrar upplýsingagjafar til Eyjamanna.

Við getum ekki endalaust beðið eftir því að ríkisstofnunin, Vegagerðin, sem ekki virðist ráða við að leysa þetta einfalda verkefni, geri það og ef til vill væri betra að Vestmannaeyjabær stigi inn í og tæki að sér að miðla þessum upplýsingum til almennings, þó að það eigi auðvitað ekki að vera hans verkefni.

 

Kjartan Vídó

Höfundur er í 6. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins.

Nýjustu fréttir

Sköpunarhúsið áfram opið í sumar 
Tónleikar og skemmtun í Höllinni um helgina
Innviðaráðherra og forstjóri Vegagerðarinnar heimsóttu borstæði Eyjaganga
Tólf ferðir á dag til og frá Eyjum frá 8. júní – uppfært
Högum okkur
Herjólfur frestar 8 ferða áætlun 
Karlakór Vestmannaeyja með vortónleika
Eyjagöng: Borað yfir 120 metra á rúmri viku

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.