Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Arndís María frá Eyjalistanum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins

Nafn: Arndís María Kjartansdóttir

Aldur: 54 ára

Fjölskylda: Ég er gift Ómari Steinssyni, við eigum þrjú börn, Breka, 28 ára, Bríeti 24 ára og Bertu 20 ára.  Pabbi minn og mamma eru Kjartan og Addý á Múla.

Menntun og störf: Ég er grunnskóla- og framhaldsskólakennari, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali og nemandi í meistaranámi í jákvæðri sálfræði við Háskóla Íslands.

Ég hef unnið sem kennari í áratugi og sem sjálfstætt starfandi fasteignasali ásamt því að reka mitt eigið fyrirtæki undanfarin ár.

Fyrri afskipti af stjórnmálum: Ég bauð mig fram í síðustu Alþingiskosningum, en það er mín eina reynsla hingað til af stjórnmálum.

Af hverju Eyjalistinn? Hann stendur hjarta mér næst, ég vill öllum hið besta, ekki bara sumum, heldur öllum og þá sérstaklega Vestmanneyingum. Miklar öfgar til vinstri og til hægri eru sjaldnast fjöldanum til heill og ég tel að við berum öll ábyrgð á velferð samfélagsins og þeirra sem hér búa.

Brýnustu verkefni: Vestmannaeyjar eru eins og stórt heimili, við vitum öll að það þarf stöðugt viðhald til að reka gott heimili, huga að innviðum, huga að ytra byrði og  það sé lykilatriði að reksturinn gangi sem allra best. Brýnustu verkefnin er vatnsleiðslan, að tryggja betri samgöngur, byggja stærri leikskóla, bæta aðstöðu í grunnskólunum, huga betur að heldri borgurum, klára og lagfæra íþróttamannvirkin, laga ásýnd miðbæjarins, koma á móts við aðstöðuleysi unglinganna okkar og svo mætti lengi telja. Forgangsraða með velferð íbúanna í huga er það allra brýnasta og þarf að fá líka fólkið sem hér býr og starfar að borðinu með sínar hugmyndir og lausnir.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á: Ég tel mig hafa mest fram að færa þegar það kemur að menntamálum og skipulagsmálum. En það eru fjölmörg stór verkefni framundan, svo sem vatnsleiðslan, íþróttamannvirkin, stórskipahöfn, bygging nýs leikskóla, endurnýjun og lagfæringar á húsnæðum bæjarins og gatnakerfinu. Allt skiptir máli og öllu þarf að sinna, en það er forgangsröðin sem skiptir mestu fyrir fólkið í Eyjum og á það þurfum við að hlusta.

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja: Hér er gott að búa, það er engin launung, en það eru kostnaðarsamir tímar framundan, viðamikil og dýr verkefni sem liggja fyrir, en það er okkar að sjá til þess að þessi verkefni leggist sem minnst á fólkið sem hér býr, að auka álögur á hinn almenna borgara eru aldrei góð lausn, heldur að reyna að fjármagna hlutina sem mest með aðkomu ríkisins.

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Eyjalistans: Fyrst og fremst jákvæðni, skynsemi og dugnað.

Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Allt skiptir mig máli, ekkert er of smátt og ekkert er of stórt til að huga að. Velferð og velsæld samfélagsins hér er mér hjartans mál,og vil ég það sama og við öll, að Vestmannaeyjar verði sá staður þar sem að allir fái notið sín og komið sé á móts við fólk og fyrirtæki öllum til heilla og að hér sé áfram eftirsóknarvert að búa.

Nýjustu fréttir

Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun
Frábæru Íslandsmóti í sveitakeppni í Boccia lokið
Átta dagar og engin svör frá ráðherrum
Dýpkun gekk illa í morgun
Kjarnaborun hafin í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.