Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Jóhann Ingi frá Miðflokknum.

Eyjafréttir kynna hér frambjóðendur fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar í Vestmannaeyjum. Hvert framboð valdi fimm fulltrúa af sínum lista til að svara spurningum um bakgrunn, áherslur og sýn á framtíð samfélagsins.

Nafn? Jóhann Ingi Óskarsson.  

Aldur? 29 ára.  

Fjölskylda? Ég er sonur Öldu Jóhönnu og Óskars Ólafssonar, á tvö systkini, Ólaf Óskarsson og Birnu Ósk Óskarsdóttur. Er giftur Þóreyju Helgu Hallgrímsdóttur og saman eigum við tvær dætur, Ísold Evu og Bríeti Maren.  

Menntun og störf? Ég er menntaður húsasmiður og hef starfað við fagið frá árinu 2022. Hef komið að stofnun og rekstri tveggja fyrirtækja; nýverið seldi ég mig út úr öðru þeirra en rek enn fyrirtækið Hitalausnir. Áður starfað við sjávarútveg, sem sölumaður, þjónustufulltrúi og við farþegainnritun. Sú reynsla hefur kennt mér mikilvægi þjónustu, skipulags og samskipta.  

Fyrri afskipti af stjórnmálum? Ég er að stíga mín fyrstu skref í stjórnmálum. Ég kem inn með opinn huga, vil læra hratt og leggja mitt af mörkum með þeirri reynslu sem ég hef öðlast í rekstri og verkefnastjórnun. 

Af hverju Miðflokkurinn? Vegna þess að þar er lögð áhersla á skynsemi, hreinskilni og að tala fyrir hagsmunum almennings án þess að flækja hlutina. Fyrir mér snýst þetta ekki um flokka fyrir flokkana, heldur að vinna með fólki sem er tilbúið að standa með Eyjamönnum og berjast fyrir raunverulegum lausnum.

Brýnustu verkefni? Samgöngur eru númer eitt, tvö og þrjú. Áreiðanlegar, öruggar og hagkvæmar samgöngur eru lífæð samfélagsins. Þar þarf að tryggja bæði sjó- og loftleiðir til framtíðar. Samhliða því þarf að horfa á innviði, húsnæðismál og að skapa umhverfi þar sem fjölskyldur og atvinnulíf geta vaxið.

Hvaða málaflokka munt þú leggja áherslu á?  

  • Samgöngur og innviði 
  • Fjármál sveitarfélagsins – ábyrg og skynsöm nýting fjármuna 
  • Atvinnuuppbygging og fjölbreytni í störfum 
  • Málefni barna og fjölskyldna 
  • Heilbrigt og öflugt samfélag þar sem hlustað er á íbúa. 

Hvernig sérðu framtíð Vestmannaeyja? Ég sé fyrir mér sterkara samfélag sem byggir á öflugum innviðum, traustum samgöngum og fjölbreyttu atvinnulífi. Vestmannaeyjar eiga alla burði til að vera leiðandi byggðarlag, en það gerist ekki af sjálfu sér. Við þurfum að taka ákvarðanir í dag sem tryggja að hér verði áfram gott að búa, vinna og ala upp börn. 

Hvað hefur þú fram að færa sem fulltrúi Miðflokksins? Ég kem inn með skýra sýn, viljann til að tala hreint út og getu til að hlusta. Legg áherslu á lausnir frekar en deilur og vil vinna með öllum sem vilja gera gott samfélag betra. Ég er tilbúinn að standa með mínum skoðunum, en líka að endurmeta þær ef betri rök koma fram.
Hvað skiptir þig mestu máli persónulega varðandi Vestmannaeyjar? Að hér sé gott að búa, fyrir alla. Að börn og fjölskyldur hafi tækifæri, að fólk vilji flytja hingað en ekki frá, og að við missum ekki það sem gerir eyjarnar einstakar. Fyrir mér er þetta ekki bara pólitík, þetta er samfélagið mitt. 

Nýjustu fréttir

Spurt og svarað: Jóhann Ingi frá Miðflokknum
Undanúrslitin hefjast – ÍBV mætir Haukum í fyrsta leik
Gleðilegt sumar
Lundinn sestur upp
Áætlunarflug framlengt vegna stöðunnar í Landeyjahöfn
Álfsnesið þurfti frá að hverfa
Íris um samgöngumálin
Hoppað á vagninn
viðburðir
Andres Stefan Mbl
15. apríl 2026
20:00
Borgarafundur í Höllinni
Höllin
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.