Fengu trollið í skrúfuna

Togskipið Smáey var dregið til heimahafnar af systurskipi sínu Bergey en skipin komu til Eyja í hádeginu í dag. Smáey hafði fengið veiðafærin í skrúfuna en í næsta nágrenni var Bergey sem dró Smáey til hafnar. Útgerðarfyrirtækið Bergur/Huginn gerir út bæði skipin en vel gekk að losa skrúfuna og hélt Smáey til veiða að nýju […]
Tuttugu ungmennum vísað út af skemmtistöðum bæjarins um helgina

Það var í nógu að snúast hjá lögreglu um páskahátíðina og voru m.a. þrjár líkamsárásir kærðar. Þá var hátt í 20 ungmönnum vísað út af skemmtistöðum bæjarins þar sem þau höfðu ekki aldur til að vera þar inni. Fjöldi bifreiða voru stöðvaðar til að kanna með ástand ökumanna en um þessar mundir stendur yfir landsátak […]
Umferðarljósin við Heiðarveg tekin í notkun
Í morgun voru ný umferðarljós á gatnamótum Heiðarvegs og Bessastígs formlega tekin í notkun. Það voru nemendur 6. bekks í Grunnskóla Vestmannaeyja sem tóku ljósin formlega í notkun og fengu sem þakklætisvott svaladrykk og súkkulaði en það er Kiwanisklúbburinn Helgafell sem gefur ljósin. (meira…)
Telur Gjábakkaveg óþarfan
Þörfin fyrir nýjan Gjábakkaveg í Bláskógabyggð er á köflum vandfundin, segir í nýlegri greinargerð Landverndar. Þegar grannt sé skoðað virðist hún nauðalítil. Miðað við kostnað í peningum og fyrir umhverfið sé verra að leggja nýjan veg en að gera ekki neitt. (meira…)
Hermann ekki með í Slóvakíu

Hermann Hreiðarsson verður ekki með íslenska landsliðinu í knattspyrnu þegar það mætir Slóvakíu í vináttulandsleik á miðvikudagskvöldið. Ákveðið var að senda hann heim til Englands í dag eftir samráð við lækni íslenska liðsins í Bratislava. (meira…)
Leggst ekki gegn flutningi til Keflavíkur
Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í kvöldfréttum RÚV í gær að brýnt væri að leysa húsnæðismál flugdeildar Gæslunnar. Ekki er pláss fyrir allar þyrlur Gæslunnar í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli. Landhelgisgæslan hefur yfir fjórum þyrlum að ráða og eru þær allar geymdar við Reykjavíkurflugvöll. (meira…)
�?ttast að laxastofninn í �?jórsá hrynji
Visfræðingur óttast að laxastofninn í Þjórsá hrynji verði af Urriðafossvirkjun. Hún segir laxastofninn einn þann stærsta og sérstæðasta í landinu og ekki sé útlit fyrir að Landsvirkjun geti með nokkru móti komið í veg fyrir það, þrátt fyrir yfirlýstar mótvægisaðgerðir. (meira…)
�?rskurðaðir í gæsluvarðhald
Fjórir menn sem réðust vopnaðir inn á heimili í Keilufelli í Breiðholti í gær og gengu í skrokk á mönnum sem þar voru fyrir hafa verið úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald. Lögregla hefur enn ekki haft uppi á fleiri mönnum sem taldir eru tengjast málinu en unnið er að rannsókn þess. (meira…)
Hátíðarmessa í Selfosskirkju
Selfosskirkja Hátíðarmessa á páskadagsmorgni 23. mars kl. 8:00 Morgunkaffi í safnaðarheimilinu að athöfn lokinni. Fleiri messur á páskadag: (meira…)
Páskabingó Vöku
Í kvöld laugardagskvöldið 22. mars verður páskabingó Umf. Vöku haldið í Þjórsárveri og hefst það kl. 20:30. Fjöldi veglegra eggja í boði. (meira…)
Vertíðaraflinn
Eins og í Krókalistanum þá er komið páskastopp, og því er kominn hálfleikur hjá netabátunum. Hvanney SF er byrjuð að gera atlögu að Erling KE. á lista númer 28 þá voru Marta. Á. GK og Magnús GK líkleg til að komast yfir 400 tonnin næst, enn Geir ÞH fór frammúr þeim báðum og er núna […]
Mótorhjól sogaðist á haf út
Ökumaður torfærumótorhjóls sem var á ferð með þremur öðrum á Sólheimasandi í gærmorgun missti hjólið undan sér er þeir óku yfir ósa árinnar Klifanda. Brimið var það mikið og útsog sterkt að öldurnar báru hjólið á haf út. „Hann var heppinn að fara ekki með hjólinu, sagði varðstjóri lögreglunnar á Hvolsvelli í samtali við Fréttavef […]
Haldið til kolmunnaveiða
Við yfirgáfum Eyjarnar um átta í fyrrakvöld og höldum nú stefnu beint í suður í átta að hinu fræga Hatton-Rockal svæði. Það eru ekki nema 500 sml. á kolmunnamiðin svo að við verðum þar annað kvöld. Við höfum notað stímið í þrif enda var andskotann ekkert þrifið eftir loðnuna því við vorum að frysta alveg […]
ÍBV ekki í vandræðum með KFS á arfaslökum malarvellinum

Eyjaliðinu tvö í karlaknattspyrnunni, ÍBV og KFS mættust í dag í æfingaleik á malarvellinum við Löngulág. Vallaraðstæður voru með þeim hætti að gæði knattspyrnunnar voru ekki mikil en þó náðu leikmenn ÍBV að koma boltanum sex sinnum í netið hjá KFS, sem náði ekki að svara fyrir sig. Staðan í hálfleik var 3:0 ÍBV í […]
Gefið og tekið
Í þeirri miklu efnahagsbrælu sem nú gengur yfir heimsbyggðina koma enn á ný upp í hugann orð Björgólfs Thors Björgólfssonar sem hann lét falla í viðtali við áramótablað Viðskiptablaðsins: Að hluta til má segja að fólk hafi of mikið horft á fjármálamarkaðinn og um leið fjármálafyrirtækin og því gleymt rekstrarfélögunum. Núna held ég að það […]
Föstudagurinn langi
Föstudagurinn langi er mesti sorgardagur kirkjuársins og ber allt helgihald vott um það. Þannig hafa hvers konar skemmtanir löngum verið bannaðar þennan dag en orðið skemmtun er einmitt dregið af skammur og merkir í rauninni eitthvað sem styttir mönnum stundir. Hins vegar hefði það varla borið vitni um sanna guðrækni að setja fram eins konar […]
�?akplötur fuku af húsnæði Ísnets

Það er óhætt að segja að lukkudísirnar hafi verið með björgunarsveitarmönnum sem unnu við að fergja þak Ísnets í dag þegar þakplötur fuku af húsinu. Fjórir menn voru að negla lausar plötur niður þegar stórt stykki, líklega um 60 til 80 fermetra að stærð, fauk upp og niður af þakinu. Í raun var það aðeins […]
Umferðaljós tekin í notkun á þriðjudagsmorgun

Umferðarljós verða tekin í notkun á gatnamótum Heiðarvegs og Bessastígs næstkomandi þriðjudag. Búið er að setja ljósin upp og tengja. Yfir páskana munu gul ljós blikka á gatnamótunum, sem áminning til vegfarenda um hvað í vændum er. Klukkan átta, næstkomandi þriðjudag, þegar skólabörnin mæta aftur til starfa eftir páskaleyfið, verður stutt athöfn á gatnamótunum þar […]
Páskakveðja

Það er fjör í Eyjum, það hefur stundum átt við. Einni lélegustu loðnuvertíð er að ljúka, þó samt smá sárabót, betra er lítið heldur en ekkert. Þorskniðurskurður hefur ekki verið endurskoðaður eins og loðnukvótinn. Mótvægisaðgerðir hafa ekki komið til þeirra sem helst hafa þurft á þeim að halda, það er að segja til sjómanna og […]
Helgihald í Landakirkju um páskana

Guðsþjónustur verða haldnar í Landakirkju hvern helgan dag í kyrruviku og um páskahátíðina. Allt stefnir í góðan undirbúning að páskahátíðinni og rís hún hæst með hátíðarguðsþjónustu árla dags á páskadag og morgunverði í Safnaðarheimili á eftir. Hér fyrir neðan er nánar um tímasetningar og merkingu helgidaganna. (meira…)