Kristín Kristjánsdóttir á Selfossi þrefaldur Íslandsmeistari

Á laugardagskvöldið sl. lauk Íslandsmótinu í fitness sem fram fór í íþróttahöllinni á Akureyri. Kristín Kristjánsdóttir á Selfossi og Kristján Kröyer urðu Íslandmeistarar í opnum flokkum eftir mjög harða baráttu. Sjá nánar í Sunnlenska fréttablaðinu í dag. (meira…)

Gáfu flatskjá fyrir sónarskoðun

Eigendur tölvuverslunarinnar Eyjatölvur héldu á dögunum Eyjatölvudag þar sem aðalvinningur í happadrætti var 32 tommu flatskjár. Svo illa vildi til að sjónvarpstækið gekk ekki út en eigendur verslunarinnar dóu ekki ráðalausir. Þeir ákváðu að gefa tækið í sónarskoðun mæðraverndar á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og afhentu það í morgun. (meira…)

Mikið framundan í tónlist

Stórsveit Suðurlands verður með tónleika í Vélasalnum næsta föstu­dag. Með sveitinni eru djass­söngkonurnar Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir og Kristjana Stefáns­dóttir en tónleikarnir hefjast klukkan níu og efnisskrá tónleikanna er stórsveitartónlist af ýmsum toga. Fimmtudaginn 3. apríl ætla Bára Grímsdóttir og Chris Foster að troða upp í Listaskólanum. Leikfélag Vestmannaeyja í samstarfi við nemendur FÍV sýnir Hárið […]

Ströndum ekki í Bakkafjöru

Mér hnykkti við að sjá að stjórnmálamennirnir okkar stefna í alvöru á að byggja upp nýja höfn í sandinum við Bakkafjöru. Segjast þeir með því vera að leysa samgöngumál okkar Eyjamanna í bráð og lengd. Ég vara við þessari framkvæmd. Hún er vanhugsuð og skilar okkur ekki því öryggi og þeim samgöngu­bótum sem við þurfum […]

Framkvæmdir hefjist í ár og höfnin tilbúin 2010

Vegagerðin og Siglingastofnun hafa lagt fram frummatsskýrslu fyrir byggingu Landeyjahafnar, vegtengingar að höfninni og efnistöku vegna framkvæmda á Seljalands­heiði og úr Markarfljótsaurum. Framkvæmdaraðilar eru Vegagerð­in og Siglingastofnun og undir­bún­ingur miðast við að framkvæmdir geti hafist árið 2008 og að höfnin verði tekin í notkun árið 2010. (meira…)

Magadansmeyjar frá Selfossi sýna á aðalfundinum í kvöld

Ferðamálafélag ÖlfussHeldur aðalfund sinn í kvöld fimmtudaginn 27. marsKl. 20.30 í Versölum Þorlákshöfn Venjuleg aðalfundarstörfKjósa skal formann félagsinsGestur fundarinsJakob Hálfdánarson segir frá hringsjáa Kaffiveitingar Skemmtiefni: Magadansmeyjar frá Selfossi (meira…)

Ungfrú Suðurland kjörin á föstudaginn.

Keppnina um titilinn Ungfrú Suðurland sem fram fer á Hótel Selfoss næstkomandi föstudagskvöld 28. mars. Kosning um netstúlkuna hefur staðið yfir á fréttavefnum www.sudurland.net undanfarna vikur og hefur þátttaka aldrei verið meiri og mjög mjótt á mununum á milli nokkurra stúlkna. (meira…)

Aðalskipulag Flóahrepps

Á fundi sveitarstjórnar Flóahrepps þann 19. mars s.l. var tekin til fyrri umræðu, tillaga að aðalskipulagi Flóahrepps í fyrrum Villingaholtshreppi 2006-2018 ásamt greinargerð. Kynning á tillögu var haldin í Þjórsárveri 25. júní 2007 fyrir fullu húsi.Einnig hafa aðliggjandi sveitarfélög ásamt öðrum löggildum umsagnaraðilum fengið tillögu senda til umsagnar. (meira…)

Hótel Skaftafell opnar sem Foss-hótel

Hótel Skaftafell í Freysnesi var opnað sem Foss-hótel 1.mars sl og hefur Dóra Guðrún Ólafsdóttir í Svínafelli verið ráðin hótelstjóri. Foss-hótel hafa hótelið á leigu til þriggja ára. Á þessu ári eru tuttugu ár frá því hjónin Anna María Ragnarsdóttir og Jón Benediktsson hófu veitingarekstur í Freysnesi fyrst í sínu íbúðarhúsi og ári seinna var […]

Friðrik Stefánsson ekki með Njarðvíkingum í úrslitakeppninni

Friðrik Stefánsson, fyrirliði Njarðvíkinga, verður ekki með liði sinu í úrslitakeppni Iceland Express deildar karla sem hefst á föstudaginn. Friðrik var frá keppni um tíma í haust vegna óreglulegs hjartsláttar og hefur hann verið verri síðustu daga og sagði Teitur Örlygsson þjálfari liðsins að hann yrði ekki með í úrslitakeppninni. (meira…)

Lögreglustjóri segir upp störfum

Jóhann R. Benediktsson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, hefur sagt upp störfum. Þetta var upplýst á fjölmennum fundi með Össuri Skarphéðinssyni, iðnaðarráðherra, um þjóðmálaumræðu sem Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis stóð að í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. (meira…)

Staðsetning þorsks með GPS, bergmálstækni og rafeindamerkjum

Á árinu 2004 voru 302 þorskar merktir hér við land með svokölluðum staðsetningarmerkjum eða GPS-merkjum, en slík merki geta numið og geymt staðsetningu, sem send er frá nálægu skipi. Ólafur Karvel Pálsson fiskifræðingur greinir frá niðurstöðunum í erindi í málstofu Hafrannsóknastofnunar næstkomandi föstudag. Í útdrætti úr erindinu sem birt er á vef Hafró segir: (meira…)

26 sóttu um stöðu framkvæmdastjóra

26 umsóknir bárust um stöðu framkvæmdastjóra Atvinnuþróunarfélags Suðurlands. Stefnt er að því að ráða í stöðuna föstudag, að sögn Snorra Finnlaugssonar, formanns AÞS. Umsækjendur eru: (meira…)

ROKKS�?NGLEIKUR NFSu frumsýndur á morgun 27. mars

GLÆNÝR, STÓRKOSTLEGUR ROKKSÖNGLEIKUR Leikfélag NFSu er nú að leggja lokahönd á stórglæsilegan rokksöngleik sem frumsýndur verður á morgun 27. mars nk. Söngleikurinn sem heitir TIL SÖLU verður sýndur í ófullgerðum menningarsal Hótel Selfoss. (meira…)

Kyrrðardagar í Skálholti

HELGINA 28.–30. mars nk. leiðir séra Sigfinnur Þorleifsson sjúkrahúsprestur kyrrðardaga í Skálholti ásamt Kristni Ólasyni rektor þar sem fjallað verður um sorg og sorgarviðbrögð. Allir syrgjendur eru hjartanlega velkomnir. (meira…)

Helstu verkefni páskahelgarinnar 2008

Nokkur erill var í umdæmi lögreglunnar á Selfossi um páskahelgina. Maður réðist inn í íbúðarhús um miðnætti föstudagsins langa og réðist þar á íbúa með þeim afleiðingum að hann viðbeinsbrotnaði og hlaut áverka í andliti. Árásarþolinn gat ekki greint frá því hver árásarmaðurinn væri en lögregla telur sig hafa fengið upplýsingar árásarmanninn. Málið er í […]

Mat á umhverfisáhrifum Bakkafjöruhafnar kynnt

Skipulagsstofnun hefur borist frummatsskýrsla Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar vegna mats á umhverfisáhrifum Bakkafjöruhafnar, Bakkafjöruvegar og grjótnáms á Seljalandsheiði. Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir. Hægt er að kynna sér frummatsskýrslu ásamt sérfræðiskýrslum á skrifstofu sveitarstjórnar Rangárþings eystra, Héraðsbókasafni Rangæinga og Þjóðarbókhlöðu frá 26. mars n.k. (meira…)

Sighvatur leitar loðnu við Snæfellsnes

Loðnuskipið Sighvatur Bjarnason VE er statt norður við Snæfellsnes í leit að loðnu en skipið fann nokkuð af loðnu norður af Öndverðarnesi í Breiðafirði fyrir páska. Að sögn skipstjóra sést ekkert til loðnunnar nú og býst hann ekki við því að halda leitinni áfram mikið lengur. Loðnuvertíðinni er þó ekki formlega talið lokið fyrr en […]

Í minningu meistara

Myndlistar- og tónlistarmaðurinn Guðni Agnar Hermansen hefði orðið áttræður föstudaginn 28. mars n.k. Guðna má án alls efa telja meðal þeirra meistara myndlistarinnar sem Vestmannaeyjar hafa alið. Ásamt því að leggja rækt við myndlistina lék Guðni á saxófón og var einn af frumherjum jazzins í Vestmannaeyjum. Á þessum tímamótum verður Guðna Hermansen minnst með myndarlegum […]

Valur vill Erling

Samkvæmt heimildum www.handbolti.is hefur Valur gert Erlingi Richardssyni þjálfara HK tilboð um að taka við kvennaliðinu af Ágúst Jóhannssyni. Erlingur fékk tilboðið fyrir Páska og mun svara Val seinna í vikunni. Líklegt er þó talið að Erlingur verði áfram í HK en honum líður vel þar að sögn kunnugra og er bjartur á framtíð handboltans […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.