7 tónleikastaðir og Guitar Hero III keppnir í framhaldsskólum!
Þann 1. apríl hefst stærsta tónleikaferðalag ársins um landið þegar þrjár af vinsælustu rokkhljómsveitum Íslands í dag munu halda tónleika víðsvegar um landið á vegum Rásar 2 og tímaritsins Monitor. Þetta er þriðja árið í röð sem Rás 2 stendur fyrir tónleikaferð um landið en í ár sameinast kraftar Rásar 2 og Monitor og úr […]
Hélt að þetta væri búið

„Ég var eiginlega alveg viss um að hásinin hefði slitnað og að tímabilið væri búið hjá mér en sem betur fer reyndist svo ekki. Það opnaðist skurður fyrir ofan hásinina og ég var saumaður með fjórum sporum strax eftir leikinn og ég er bjartsýnn á að geta spilað á Wembley á laugardaginn og ætla mér […]
650 milljónir til að bæta aðbúnað aldraðra
ÁKVEÐIÐ hefur verið að verja rúmlega 650 milljónum króna til verkefna er lúta að bættum aðbúnaði aldraðra, svo sem með fjölgun hjúkrunarrýma og breytingum á hjúkrunarrýmum í fjölbýli í einbýli. Fjármagnið kemur úr Framkvæmdasjóði aldraðra en hann fær tekjur af sérstöku gjaldi sem lagt er á skattskylda einstaklinga. Það er félags- og tryggingaráðherra sem ákveður […]
Sakar bankana um siðleysi
Atli Gíslason þingmaður VG í Suðurkjördæmi sakar bankana um að hafa sýnt siðleysi. Þeir hafi hamstrað á gjaldeyrismarkaði til að vinna upp tapið á hlutabréfamarkaðinum. Þetta kom fram í þættinum Silfur Egils á RÚV í hádeginu. Ásamt Atla sátu þar fyrir svörum ráðherrarnir Árni Mathiesen og Björgvin G. Sigurðsson auk Valgerðar Sverrisdóttur þingkonu Framsóknarflokksins. (meira…)
Sláturterta og rabarbari
KYNNTAR voru fyrir nokkru á matarmarkaði á Grandavegi 8 tvær vörutegundir sem á að þróa áfram, sláturterta, rabarbarakaramellur og rabarbarasaft. Þessar vörur eru hluti af verkefnum sem unnin hafa verið í samstarfi nemenda vöruhönnunardeildar Listaháskóla Íslands og fjögurra bænda. Samtökin Beint frá býli – félag heimavinnsluaðila og bændasamtökin áttu þátt í að nefna til bændur […]
Einn stuttur frá þorrablóti Frjálslynda flokksins

Georg Eiður Arnarson segir frá ýmsu á bloggsíðu sinni. Fyrir stuttu var hann staddur á þorrablóti Frálslynda flokksins, þar sem menn fóru á kostum í frásögnum og bröndurum. Meðal annars sagði formaðurinn, Guðjón Arnar þessa sögu: (meira…)
�?væntur útisigur hjá ÍBV gegn næst efsta liði deildarinnar
Óvænt úrslit urðu í N1 deild karla í handknattleik í dag þegar ÍBV gerði sér lítið fyrir og lagði Fram í Safamýri, 34:29. Fram er í öðru sæti deildarinnar, er sex stigum á eftir Haukum sem mæta Val á morgun. Eyjamenn sitja hins vegar á botninum en liðið hefur 6 stig. (meira…)
Karl Gauti sækir um í Kópavogi

Karl Gauti Hjaltason, sýslumaður í Vestmannaeyjum er einn umsækjenda um starf sýslumanns í Kópavogi. Karl Gauti hefur starfað sem sýslumaður í Eyjum síðan 27. maí 1998 en skipað verður í embættið í Kópavogi frá og með 1. júní 2008 og til fimm ára í senn. Alls sækja þrettán einstaklingar ásamt Karli Gauta um starfið og […]
Erla Vinsý Daðadóttir, Ungfrú Suðurland 2008
Erla Vinsý Daðadóttir, 21 árs stúlka frá Hvolsvelli var valin ungfrú Suðurland á glæsilegu lokakvöldi á Hótel Selfossi í gærkvöldi 28. mars. Umgerð keppninnar var með sannkölluðum glæsibrag og óhætt er að segja að allar stúlkurnar 12 hafi verið sigurvegarar kvöldsins. Auk þess að vera valin ungfrú Suðurland, hlaut Erla Vinsý einnig flest atkvæði í […]
Drangavík VE verður lengd í Póllandi

Togbáturinn Drangavík VE frá Vestmannaeyjum verður lengdur um þrjá metra í skipasmíðastöð í Póllandi á þessu ári til þess að auka burðargetu hans. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, sagði í samtali við Fiskifréttir að Drangavíkin veiddi um 3.000 tonn af fiski á ári en bæri aðeins 40 tonn í hverri ferð. (meira…)
Stórsveit Suðurlands með tónleika í kvöld í Vélasalnum

Í kvöld klukkan 21:00 verður Stórsveit Suðurlands með tónleika í vélasal Tónlistarskólans en húsið opnar 20:30. Með sveitinni eru djasssöngkanónurnar Kristjana Stefánsdóttir og Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir. Efnisskrá tónleikanna er stórsveitartónlist af ýmsum toga, sveifla í anda Glenn Miller, bítlalög og ýmislegt annað. Auk þess mun Guðlaug kynna lög af nýjum diski sínum, Gentle Rain. (meira…)
Tíbet fórnað fyrir Íran
Er búinn að sækja um vegabréfsáritun í sendiráði Íran í Kabúl. Ef allt gengur að óskum fer ég um miðjan næsta mánuð yfir landamæri Afganistan og Íran, frá einu íslömsku lýðveldi yfir í annað. Yfirvöld í Íran eru alræmd fyrir að vilja sem fæsta ferðamenn en sem betur fer eru sendiráðsmenn þeirra í Afganistan sagðir […]
ÍBV skuldar 76 milljónir en reksturinn þokkalegur

Aðalfundur ÍBV íþróttafélags fór fram í gærkvöldi en á dagskrá fundarins voru hefðbundin aðalfundarstörf. Ársreikningar félagsins voru lagðir fram og ljóst að staða félagsins er alvarleg og skuldir um 76 milljónir eftir síðasta rekstrarár. Þó hefur verið tekið á varðandi rekstur félagsins sem er kominn í þokkalegt horf en skuldastaðan er mjög slæm. Þá kom […]
Yfir hundrað umsóknir um menningarstyrki
Menningarráði Suðurlands bárust hundrað og þrettán umsóknir um styrki til menningarverkefna en frestur til að sækja um rann út í lók febrúar sl.. Um er að ræða fyrri úthlutun styrkja á árinu 2008. Þetta eru ívið fleiri umsóknir en bárust á árinu 2007, en þá bárust ráðinu 81 umsóknir. Þá fengu 55 menningarverkefni styrki á […]
Junior sendur heim

Knattspyrnuráð ÍBV hefur tekið þá ákvörðun að rifta samning félagsins við Junior Conzvales. Ástæðan er agabrot leikmannsins. Hann heldur því aftur heim á leið en með ÍBV í sumar leika tveir Brasilíumenn, miðjumaðurinn Italo Jorge Pelande og sóknarmaðurinn Alexandre da Silva. Eyjaliðið heldur til Tyrklands á morgun í æfingaferð. Alls fara 29 í ferðina, þar […]
Nýtt og fullkomið varðskip kjöllagt
Nýtt og fullkomið varðskip Landhelgisgæslunnar var kjöllagt í gær. Kjöllagningin fór fram við hátíðlega athöfn í Asmar skipasmíðastöðinni í Talcahuano í Chile og var Björn Bjarnason, dóms-og kirkjumálaráðherra viðstaddur tilefnið. Skipið verður afhent fullbúið í haustmánuðum 2009 og mun það að sögn marka þáttaskil í starfsemi Landhelgisgæslu Íslands. (meira…)
HSK Íslandsmeistarar á MÍ í glímu
Meistaramót Íslands í glímu, 3. umferð fór fram í íþróttahúsinu Torfnesi á Ísafirði fyrir nokkru. Keppni var jöfn og skemmtileg og mikið um góð tilþrif. HSK sigraði í stigakeppni félaga með 100,5 stig, í öðru sæti var Hörður frá Ísafirði með 99 stig og í þriðja sæti hafnaði lið HSÞ með 97 stig. (meira…)
Flugfélag Vestmannaeyja tekur við sjúkrafluginu 1. apríl

Í lok janúar voru opnuð tilboð þriggja flugfélaga í sjúkraflug á Vestmannaeyjasvæðinu. Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboðið og tekur við sjúkrafluginu nú 1. apríl. Þetta staðfesti Gunnar K. Gunnarsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja. Íslandsflug hefur séð um sjúkraflugið síðan í júlí 2007 en félagið tók við af Landsflugi sem sagði upp samningi sínum um sjúkraflug á […]
Fangarnir kalla hana Járnfrúna
Margrét Frímannsdóttir, fyrrverandi þingkona og núverandi fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, segir í helgarviðtali DV að fangarnir kalli hana Járnfrúna, eða Iron Maiden. Í viðtalinu, sem Sigríður Arnardóttir tók við hana, segir Margrét meðal annars frá því hvernig hún lærði að takast á við streitu þegar hún barðist við krabbamein. (meira…)
Heiðurstónleikar Eagles í Höllinni 30. apríl

Heiðurstónleikar verða haldnir í Höllinni 30. apríl n.k. Tónleikar þessir eru til heiðurs hinni geysivinsælu hljómsveit Eagles, sem nýverið sendi frá sér fyrstu hljóðversplötu sína í 28 ár: Long road out of Eden. Eagles, sem stofnuð var árið 1972 hefur sent frá sér urmul vinsælla laga í gegnum tíðina og má þar nefna til dæmis; […]