Ekki tilbúnir að ljúka loðnuvertíð

Loðnuflotinn er nú allur kominn í land en menn er þó ekki tilbúnir að lýsa því yfir að vertíðinni sé lokið. Sighvatur Bjarnason, skip Vinnslustöðvarinnar, var það síðasta til að landa afla en það kom inn til Vestmannaeyja í gærmorgun með 500-600 tonn sem veiddust út af Snæfellsnesi. Sú loðna fór í hrognatöku og var […]

Ljóð í lauginni

Dagskráin Ljóð í lauginni verður í boði í sundlaugunum á Selfossi og Stokkseyri um páskana. „Bæjar- og héraðsbókasafnið á Selfossi, Bókasafn Stokkseyrar og sundlaugarnar hafa staðið að þessu verkefni undanfarna páska,“ segir Margrét Ásgeirsdóttir, forstöðumaður Bæjar- og héraðsbókasafnsins. (meira…)

Skírdagsmessa

Skírdagur er sá dagur er kristnir minnast þess þegar Jesús neytti síðustu kvöldmáltíðarinnar með lærisveinum sínum. Skírdag ber alltaf upp á fimmtudag. Skírdagsmessa í Eyrarbakkakirkju kl. 21:00 í kvöld. Í Matteusarguðspjalli segir: (meira…)

Páskaveðrið 2008

Spáin er byggð á spálíkani ECMWF, dags. 18. mars 2008. Þessi spá verður ekki endurskoðuð, heldur er þeim sem þurfa nýrri spá bent á að skoða spár fyrir næstu daga og landshlutaspá á vef Veðurstofu Íslands www.vedur.is Sjá alla dagana hér: (meira…)

Evrópustefna Framsóknarflokksins

Nýleg skoðanakönnun Samtaka iðnaðarins um afstöðu landsmanna til inngöngu í Evrópusambandið staðfestir það sem áður hefur komið fram í könnunum að andstaða við aðild er hlutfallslega meiri í Framsóknarflokki en nokkrum öðrum stjórnmálaflokki. Og staðfestir líka að fylgið við ESB aðild er ekki að breytast svo nokkru nemi, hvorki meðal Framsóknarmanna né annarra landsmanna. (meira…)

ST�?RKOSTLEGUR ROKKS�?NGLEIKUR

Leikfélag NFSu er nú að leggja lokahönd á stórglæsilegan rokksöngleik sem frumsýndur verður þann 27. mars nk. Söngleikurinn sem heitir TIL SÖLU verður sýndur í ófullgerðum menningarsal Hótel Selfoss. Þetta er stærsta og viðamesta verkefni sem félagið hefur nokkru sinni lagt í og er sannkallaður atvinnumannsbragur á sýningunni. (meira…)

Samstaða fyrir bí

Ekki tókst að stofna sameiginlegan hafnarsjóð um Landeyjahöfn í eigu Vestmannaeyjabæjar og Rangár­þings Eystra en búið var að semja um að höfnin yrði opinbert hluta­félag. Þar sem samningar tókust ekki hefur framkvæmda- og hafnarráð lýst yfir fullum vilja Vest­mannaeyjahafnar til að annast rekst­ur Landeyjahafnar og gera sam­komu­lag við samgönguráðuneytið um Landeyjahöfn sem verður lands­höfn í […]

Litla-Hraun á Eyrarbakka stækkað um helming

Klefum í fangelsinu á Litla-Hrauni verður fjölgað um 50 – 60 og framundan er mikil uppbygging á svæðinu. Horfið verður frá fangelsisuppbyggingu í Reykjavík að öðru leyti en því að gæsluvarðhald og fangamóttaka verður á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram á fundi Björn Bjarnasonar, dómsmálaráðherra, með starfsfólki Litla-Hrauns á mánudag. (meira…)

REC Group til �?lfuss

Það er norska fyrirtækið REC Group sem hyggur á uppbyggingu kísilvinnslu í Þorlákshöfn í sveitarfélaginu Ölfusi. Fyrir þessu hafa 24 stundir staðfestar heimildir. Höfuðstöðvar REC Group eru staðsettar í Ósló í Noregi og félagið er með starfsemi þar í landi, í Svíþjóð og í Bandaríkjunum. (meira…)

Vélsleðinn sagði stopp á miðju Laugarvatni

Þegar vélsleðamaður var að skemmta sér við að fleyta sleða sínum á Laugarvatni vildi ekki betur til en að sleðinn drap á sér á afar óheppilegum stað. Lánið var það að ekki var mjög djúpt á þeim slóðum sem vélsleði mannsins sagði stopp og honum varð ekki meint af volkinu. (meira…)

Fleiri drengir en stúlkur

ÁRIÐ 2007 fæddust 4.560 börn hérlendis, 2.359 drengir og 2.201 stúlka. Það eru fleiri börn en árið áður, en þá fæddust hér 4.415 börn. Frjósemi íslenskra kvenna var heldur meiri árið 2007 en nokkur síðustu ár en hún er reiknuð sem fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu (uppsafnað frjósemishlutfall), samkvæmt upplýsingum á vef […]

Íslendingar geta ekki lagað stöðuna á markaðnum

Árni Mathiesen fjármálaráðherra leggur áherslu á að stöðuna á íslenska fjármálamarkaðinum megi rekja til atburða sem séu að gerast úti í heimi. Í samtali við Ísland í dag sagði Árni að Íslendingar gætu ekki haft áhrif á þá þróun. Árni vill ekki tilgreina nákvæmlega hvað þyrfti að gerast til þess að íslensk stjórnvöld gripu inn […]

Ungmennafélag Stokkseyrar 100 ára 15. mars sl.

Síðastliðinn laugardag héldu félagar í Ungmennafélagi Stokkseyrar upp á 100 ára afmæli félagsins í íþróttahúsi Stokkseyrar. Boðið var til glæsilegs morgunverðarhlaðborðs en stjórn ungmennafélagsins sá um að skipulagningu og framkvæmd hlaðborðsins. Sveitarfélagið Árborg óskar Ungmennafélagi Stokkseyrar til hamingju með þennan merka áfanga. (meira…)

�?lga vegna biskups

Ólga er á meðal presta í prófastsdæmi Árnessýslu eftir að Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, setti reynsluminnsta prestinn í héraðinu, séra Eirík Jóhannsson í Hruna, sem prófast. Gengið var fram hjá reyndum mönnum á borð við Gunnar Björnsson á Selfossi og Kristinn Ágúst Friðfinnsson í Hraungerðisprestakalli. (meira…)

Ítreka að Landeyjahöfn sé eingöngu ætlað að bæta samgöngur við Vestmannaeyjar

Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Frétta hljóp snuðra á þráðinn í viðræðum um eignarhald á Landeyjahöfn sem varð til þess að höfnin verður í eigu ríkisins og var málið tekið fyrir á fundi ríkisstjórnar í dag. Bæjarráð Vestmannaeyja fundaði í hádeginu og í fundargerð kemur fram að ráðið geti ekki stutt fyrirliggjandi […]

Skrifað undir samning um Ferðasjóð íþróttafélaga

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Ólafur Rafnsson forseti ÍSÍ undirrituðu í dag samning þar sem Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands er formlega falin umsjón og umsýsla með Ferðasjóði íþróttafélaga, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. (meira…)

Heilsað að sjómannasið um helgina

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið og var m.a. í þrígang óskað aðstoðar lögreglu á veitingastaði bæjarins um helgina vegna slagsmála sem þar stóðu yfir. Reyndar voru þau að mestu afstaðin í öll skiptin þegar lögreglu en kærur liggja fyrir í tveimur af þessum tilvikum. Í einu tilviki hafði einn gesta […]

Eyjamenn í úrslit 2. deildar

Körfuknattleikslið ÍBV er komið í úrslit 2. deildar en Eyjamenn enduðu í öðru sæti B-riðils. Úrslitakeppnin fer þannig fram að fjögur lið leika í úrslitakeppninni og þau lið sem vinna sína leiki í undanúrslitum eru komin upp í 1. deild. Aðeins er spilaður einn leikur, þau lið sem enduðu ofar í sínum riðli fá heimaleik […]

Leikfélag Fsu sýndi atriði úr nýjum rokksöngleik á Draugabarnum

Laugardaginn 15. mars mættu meðlimir úr Leikfélagi FSu á Draugabarinn á Stokkseyri og sýndu brot úr rokksöngleiknum “Til Sölu” sem byggir á unglinga kvikmyndinni “Can’t buy me love” sem er frá árinu 1987. Sýningin var glæsileg og stóðu krakkarnir sig frábærlega vel. Söngleikurinn verður síðan frumsýndur í Menningarsal Hótel Selfoss þann 27. mars næstkomandi. Af. […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.