Guðni á Kanarí
GUÐNI Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hélt stjórnmálafund á Kanaríeyjum um helgina og sóttu hann um 360 manns. Guðni kvaðst á fundinum hafa áhuga á að styrkja eldri borgara til þess að dveljast á Kanaríeyjum að vetri til. Margir sjúkir, sem væru þar, hættu töku á ýmsum dýrum lyfjum og hlytist af því sparnaður. (meira…)
Dagbók Björns Bjarnasonar
Var um hádegisbil með samstarfsfólki í ráðuneytinu á Litla Hrauni, þar sem Páll Winkel, fangelsismálastjóri, og Margrét Frímannsdóttir, forstöðumaður fangelsisins, tóku á móti okkur með samstarfsfólki sínu. Að loknum hádegisverði í mötuneyti starfsmanna var efnt til fundar með starfsfólkinu í íþróttasal fangelsins. Þar ræddi ég þau mál, sem efst eru á baugi í rekstri og […]
Sighvatur Bjarnason að veiða loðnu fyrir vestan land

Loðnuskipið Sighvatur Bjarnason VE veiddi nú fyrir skömmu um 400 tonn af loðnu norður af Öndverðarnesi í Breiðafirði. Helgi Valdimarsson, skipstjóri á Sighvati segir loðnuna kom skemur á leið í hrygningu en sú loðna sem til þessa hefur veiðst og að hann telji hrognafyllinguna mjög góða. Helgi segist ennfremur telja að sú loðna sem veiddist […]
Tjaldurinn kominn

Jóhann Guðjónsson, fyrrum hafnarstarfsmaður kom við á ritstjórn Eyjafrétta með þau tíðindi að vorið væri komið. Hann hafði séð tjald við Vestmannaeyjahöfn þannig að farfuglarnir eru farnir að týnast til landsins einn af öðrum. Jóhann man eftir því að hafa fyrst séð tjald 13. mars eitt árið sem þótti óvenju snemmt. (meira…)
Fundu fíkniefni hjá tveimur föngum á Litla-Hrauni
Tvö fíkniefnamál kom upp á Litla-Hrauni í liðinni viku. Þar fundu fangaverðir lítilræði af fíkniefnum við klefaleit. Þriðja fíkniefnamálið hjá lögreglunni á Selfossi kom upp þegar lögreglumenn voru í almennu umferðareftirliti í Hveragerði þar sem þeir fundu marijúana á ökumanni sem afskipti voru höfð af. Ökumaðurinn var einnig grunaður um að vera undir áhrifum fíkniefna […]
Eru að taka á móti 5000 tonnum af kolmunna

Þótt lítið sé eftir af loðnu og veiðar að dragast saman er nóg að gera í fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins, sem í daglegu tali kallast FES-ið. Þar er verið að taka á móti um 5000 tonnum af komunna af norskum skipum en Páll Scheving, verksmiðjustjóri segir verksmiðjuna nú orðið vel samkeppnishæfa eftir endurbætur. (meira…)
Aflaverðmæti 80 milljarðar króna janúar-desember 2007
Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 80 milljörðum króna á árinu 2007 samanborið við 76,2 milljarða á árinu 2006. Aflaverðmæti hefur aukist um 3,9 milljarða eða 5,1% milli ára. Aflaverðmæti í desember nam rúmum 5 milljörðum en var 5,6 milljarðar í desember 2006. (meira…)
Páskaball með SSSól

Stuðhljómsveitin SSSól mun trylla Eyjamenn á stórdansleik sem haldinn verður í Höllinni um páskana eða nánar tiltekið eftir miðnætti föstudagsins langa. Holy B, maðurinn sem er betur þekktur sem Helgi Björns mun að sjálfsögðu standa fremstur í flokki en bandið gerði allt vitlaust á þrettándadansleik í upphafi árs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu sem má […]
Gunnar Heiðar á skotskónum fyrir Vålerenga

Framherjinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eitt mark fyrir norska úrvalsdeildarliðið Vålerenga þegar liðið lagði Moss, 4-2, í æfingaleik á La Manga í dag. Gunnar Heiðar spilaði allan leikinn og var ógnandi í sókninni. Með smá heppni hefði hann getað skorað fleiri mörk en lét sér nægja að skora úr vítaspyrnu á 50. mínútu leiksins. (meira…)
Gaddstaðaflatir – reiðhöllin rís
Vinna við byggingu reiðhallar á Gaddstaðaflötum er aðeins á eftir áætlun eins og sakir standa. Óhagstætt veður í vetur við jarðvegsframkvæmdir og steypuvinnu hafa gert þetta að verkum, að sögn Guðmundar Einarssonar, framkvæmdastjóra Rangárhallarinnar ehf. sem er byggingar- og rekstraraðili hallarinnar. Reiknað er með að verkið verði komið á áætlun um miðjan apríl. (meira…)
ÍBV lagði Selfoss að velli

ÍBV vann Selfoss í gær í hörkuleik í Lengjubikarnum en leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni. Lokatölur urðu 4:3 ÍBV í vil en Selfyssingar höfðu komist í 2:3. Þar með unnu Eyjamenn sinn fyrsta sigur í Lengjubikarnum í ár og eru nú í þriðja sæti A-riðils með fjögur stig eftir fjóra leiki en Selfoss er fimmta […]
Elfar Guðni sýnir í Heilbrigðisstofnun Suðurlands
Elfar Guðni Þórðarson, myndlistarmaður sýnir myndir sínar í hinu nýja og glæsilega anddyri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi. Elfar hefur haldið fjölmargar sýningar, m.a. í Keflavík, Reykjavík, Hveragerði, Selfossi og Eyrarbakka en flestar sýningar hans hafa verið á Stokkseyri þar sem hann er fæddur og uppalinn. (meira…)
Páskaunginn færði leikskólabörnunum páskaegg

Það var fyrir Þjóðhátíðina síðustu að Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Sindri Ólafsson mættu á þjóðhátíð í gervi kjúklings og apa. Þjóðhátíðarbúning eins og títt er við þessa miklu hátíð. Svo var það nú í aðdraganda páskanna að henni Hildi Sólveigu datt í hug að draga fram búninginn á ný og gera eitthvað skemmtilegt. (meira…)
Ekki mikil veiði við bæjardyrnar

Það var glæsileg sýning sem blasti við íbúum Vestmannaeyja í dag en loðnuflotinn var við veiðar rétt austan við Heimaey, eða aðeins um nokkuð hundruð metrum frá landi. Verið var að kasta á loðnutorfu sem fannst nokkuð óvænt en veiðar gengu illa og aflinn samanstóð nær einungis af hæng. Það bendir því allt til þess […]
Togararall gengur vel
Verkefnið Stofnmæling botnfiska á Íslandsmiðum, oft nefnt togararall, hefur staðið yfir frá 27. febrúar á vegum Hafrannsóknastofnunar. Fimm skip taka þátt í verkefninu, togararnir Bjartur, Ljósafell og Páll Pálsson ásamt rannsóknaskipunum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni. (meira…)
Friðrik Sigurðsson ÁR kominn yfir 500 tonn
Aflabrögð hafa verið góð hjá netabátunum upp á síðkastið. Bátarnir hafa verið að koma með fullfermi en einmitt á þessum tíma nær vertíðin oftast hámarki, ekki síst í kjölfar loðnunnar. Annar aflahæsti báturinn á vertíðinni nú er Friðrik Sigurðsson ÁR frá Þorlákshöfn með 515 tonn en aflahæstur er Erling KE með 577 tonn. Af: www.aflafrettir.com […]
Suðurstrandarvegur allur boðinn út
Margsvikið kosningaloforð um Suðurstrandarveg kann loks að verða efnt. Samgönguráðherra lofar nú að vegagerðin í heild verði öll komin í útboð fyrir mitt þetta ár. Það eru Þorlákshöfn og Grindavík sem eiga mest undir því að fá uppbyggðan malbikaðan veg á milli þessara tveggja öflugustu sjávarbyggða við suðurströnd landsins. (meira…)
Gvendardagur í dag 16. mars
Gvendardagur er 16. mars. Þá lést Guðmundur góði Arason Hólabiskup árið 1237. Guðmundar- eða Gvendardagur varð messudagur í Hólabiskupsdæmi ári 1315 þegar bein hans voru tekin upp. (meira…)
ÍBV gerði jafntefli við Víking frá �?lafsvík

ÍBV gerið í gær 2:2 jafntefli gegn Víking frá Ólafsvík í Lengjubikarnum en leikur liðanna fór fram í knattspyrnuhúsinu á Akranesi. Eyjamenn komust í 2:0 en Víkingar náðu að minnka muninn fyrir leikhlé og jafna svo metin þegar skammt var eftir af leiktímanum í síðari hálfleik. Bjarn Rúnar Einarsson fékk að líta rauða spjaldið þegar […]
Bæjarráð harmar ákvörðun um starfsstöð framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs
Á fundi bæjarstjórnar sem haldinn var 13. mars var lögð fram eftirfarandi bókun; Bæjarstjórn Hornafjarðar harmar þá ákvörðun yfirstjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs að starfsstöð framkvæmdastjóra yfirstjórnarinnar verði í Reykjavík. Innan yfirstjórnarinnar reyndist ekki vera pólitískur vilji fyrir því að starfsstöð framkvæmdastjórans yrði á Hornafirði eins og bæjarstjórn Hornafjarðar hefur barist fyrir síðan umræðan um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs hófst. […]