Fjölmenni á fundi hjá Jóhönnu í Tryggvaskála á Selfossi
Kl. 11:00 – 12:30 í morgun var Samfylkingin í Árborg með opinn fund í Tryggvaskála á Selfossi þar sem frummælandi var Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. Fór hún yfir helstu má sem eru á borði félagsmálaráðherra til úrlausnar og svaraði fyrirspurnum fundargesta sem voru fjölmargir og líflegar umræður urðu. Þá fjallaði Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, um samgöngumál […]
KFS var úrskurðaðaður sigur gegn Gróttu

KSÍ úrskurðaði okkur 3:0 sigur vegna 2 ólöglegra leikmanna Gróttu í 1. leik okkar í Deildabikarnum, B-deild, 3. riðli! Takk fyrir þennan væna sigur! Höfum þá 3 stig! Ekki var kært af okkar hálfu, KSÍ er með sjálfvirkan gagnagrunn. (meira…)
Eru að fá loðnu í Fjallasjónum

Ekki er hann gjöfull Faxaflóinn og við erum að koma okkur í burtu frá honum. Loðnan þar er búin að hrygna og er erfitt að ná hængnum því sjórinn er úfinn og vill hængurinn helst liggja á botninum enda fullnægður og sæll eftir átökin við hrygnuna. (meira…)
Jóhanna Sigurðardóttir á opnum fundi Samfylkingarinnar í Árborg
Aðalfundur Samfylkingarinnar í Árborg verður haldinn í Tryggvaskála á morgun laugardag 15. mars kl. 10:00. Fundardagskrá er venjulega aðalfundarstörf. Að loknum fundi um kl. 11:00 verður haldinn opinn fundur þar sem frummælandi verður Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra. (meira…)
Morgunverður á 100 ára afmæli Umf. Stokkseyrar
Ungmennafélag Stokkseyrar verður 100 ára á morgun laugardaginn 15. mars 2008. Félagið ætlar að bjóða Stokkseyringum og nærsveitungum í morgunverð á afmælisdaginn milli 9 og 12 í Íþróttahúsinu á Stokkseyri. (meira…)
Vill að Landaeyjahöfn verði landshöfn í eigu ríkisins

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs gerðu Arnar Sigurmundsson formaður ráðsins og Elliði Vignisson bæjarstjóri, grein fyrir stöðu viðræðna fulltrúa Vestmannaeyjabæjar og Rangárþings Eystra um stofnun sameiginlegs hafnarsjóðs sveitarfélaganna um Landeyjahöfn og fundum þessara aðila með fulltrúum samgönguráðuneytis vegna Landeyjahafnar fyrr í vikunni. (meira…)
Hvað ungur nemur, gamall temur

Það getur verið gaman að hrekkja svolítið, ef það meiðir engann eða særir. Hér gamalt fólk í sunnudagsbíltúrnum sínum. Það lífgar aðeins uppá tilbreytingarleysið hjá sér með smá hrekk. (meira…)
Vill að hætt verði við Bakkafjöruhöfn

Var að koma af bæjarstjórnarfundi áðan og langar að byrja á því að lýsa yfir ánægju minni með það að bæjarstjórnin öll er sammála ályktun okkar smábátasjómanna í Farsæll í Vestmannaeyjum, þar sem við mótmælum harðlega ákvörðun sjávarútvegsráðherra um að opna fyrir snurvoðaveiðar í Landeyjarsandi. (meira…)
Nefnd um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis
Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur skipað nefnd um markaðssetningu íslenska hestsins erlendis. Nefndinni er ætlað að meta hvernig staðið er að kynningu íslenska hestsins, velta fyrir sér nýjum hugmyndum og leita leiða til að bæta árangur af úflutningsstarfinu. Jafnframt er nefndinni falið að skoða hvernig best megi nota hestinn í landkynningarstarfi og til […]
Strandaverk byggir yfir starfsemina
Byggingafyrirtækið Strandaverk á Stokkseyri er þessa dagana að byggja yfir starfsemi sína að Eyrarbraut 37 á Stokkseyri. Um er að ræða 300 fermetra reisulegt hús og fyrir síðustu helgi voru starfsmenn einmitt að reisa burðargrind hússins. (meira…)
Miðasala á Landsmót hestamanna hafin
LANDSMÓT hestamanna verður haldið við Hellu dagana 30. júní – 6. júlí. Landsmótið í ár er hið 18. í röðinni en saga Landsmótanna nær aftur til 1950 þegar fyrsta landsmótið var haldið á Þingvöllum. Í fréttatilkynningu segir að á landsmótinu í ár komi 1.000–1.200 af glæsilegustu hrossum landsins fram og eru keppendur yfir 500 manns […]
Saumað að sölumönnum
Lögreglan á Selfossi þusti inn á Hótel Selfoss í gær, leysti upp sölufund og leiddi sölumennina á brott til yfirheyrslu. Þeir höfðu auglýst ódýrar saumavélar til sölu. Þrír sölumenn komu hingað til lands á dögunum á vegum bresks fyrirtækis, og auglýstu ítalskar Necchi saumavélar til sölu á tæpar 19.000 krónur. (meira…)
Hitaveita Hraungerðishrepps
Laugardaginn 8. mars var viðbótartenging við Hitaveitu Hraungerðishrepps formlega tekin í notkun að viðstöddum fjölda gesta í blíðskaparveðri. Það var Stefán Guðmundsson í Túni sem hleypti vatninu á. Framkvæmdum lauk um mánðarmótin nóvember-desember og þá var nánast lokið við að tengja þá bæji úr fyrrum Hraungerðishreppi sem upphaflega stóð til að tengja við Hitaveituna. (meira…)
Glófaxafjölskyldan kaupir hlut í fyrirtækinu

Glófaxafjölskyldan hefur keypt hlut í Eyjatölvum en fyrr í þessum mánuði seldi Jóhann Guðmundsson hlut sinn í Eyjatölvum. Frá þessu var gengið í dag þegar Guðbjörn Guðmundsson í Eyjatölvum og Bergvin Oddsson, útgerðarmaður og fyrrum skipstjóri á Glófaxa handsöluðu samninginn. Haraldur, sonur Bergvins mun hefja störf í Eyjatölvum þegar hann lýkur námi sínu við Háskólann […]
Komið upp ósætti um Landeyjahöfn?

Samkvæmt upplýsingum sem Fréttir telja áreiðanlegar er kominn upp ágreinur um Landeyjafjöruhöfn milli Vestmannaeyjabæjar og Rangárþings Eystra. Ákveðið hafði verið að höfnin yrði 60% í eigu Eyjamanna og 40% í eigu Rangárþings. Ekki virðast Rangæingar hafa sætt sig við þessa niðurstöðu og var málið komið í uppnám. Ekki náðist í nokkurn í gær til að […]
Stofnbréf byrjuð að seljast

Tillaga um að auka stofnfé um allt að milljarð var samþykkt á stofnfjárfundi Sparisjóðs Vestmannaeyja í október á síðasta ári. Sjötíu stofnfjáreigendur áttu forkaupsrétt að stofnfjáraukningunni en samkvæmt samþykktum Sparisjóðsins takmarkast eignarhlutur einstaks stofnfjáreiganda við 5% hámark af heildarstofnfé. (meira…)
Tónlist og myndasýning á kynningarfundi menningarnefndar
Í dag fimmtudaginn 13. mars klukkan 18:00 býður menningarnefnd Ölfuss til opins kynningar- og spjallfundar á Bæjarbókasafni Ölfuss. Kynnt verður ársskýrsla menningarsviðs Ölfuss ásamt stefnu sveitarfélagsins í menningarmálum, sýndar verða myndir sem teknar voru við hina ýmsu viðburði á síðustu mánuðum og sagt frá þeim verkefnum sem framundan eru, m.a. aðkoma menningarnefndar að Unglingalandsmóti, skráning […]
15. mars – Góugleði á Draugabarnum
Laugardaginn 15. mars verður haldin Góugleði á Draugabarnum Stokkseyri, en Góa er næst seinasti mánuður vetrarmisseris samkvæmt hinu forníslenska tímatali. Húsið opnar kl 23:00 Leikfélag FSU sýnir brot úr ófrumsýndum rokksöngleik kl 23:30 Hljómsveitin Karma mun halda uppi gleðinni langt fram á nótt. (meira…)
Misvirkir viðmælendur
RÁÐHERRAR mældust mjög mismunandi virkir sem viðmælendur í umfjöllun um þá eða þeirra ráðuneyti í ljósvakafréttum frá því ríkisstjórnin var mynduð í maí sl. til áramóta. Þetta kemur fram í úttekt Creditinfo Ísland á hve oft ráðherrar birtast sem viðmælendur í ljósvakafréttum. Mælingin kallast Ráðherrapúlsinn og eru niðurstöður birtar tvisvar á ári. Á umræddu tímabili […]
Vegagerð við Kögunarhól
VEGFARENDUR sem farið hafa framhjá Kögunarhóli undir Ingólfsfjalli undanfarið hafa sumir hverjir undrast mikið jarðrask sem blasir við frá Suðurlandsvegi. Maður sem hafði samband við Morgunblaðið velti því fyrir sér hvort þarna ætti að hefja námugröft. (meira…)