Fegnir selskapnum

Tveir selir, líklega landselir, gerðu sig heimakomna á flotbryggjunum neðan við Kaffi Kró í Vestmannaeyjahöfn í gærkvöldi. Selirnir voru á sitthvorri bryggjunni og létu mannaferðir um bryggjurnar ekki trufla sig mikið. Reglulega kemur það fyrir að selir flatmagi á flotbryggjunum í Vestmannaeyjahöfn en öllu sjaldgæfara er að tveir séu á sama tíma á bryggjunum. (meira…)

Hermann skoraði

Eyjapeyinn Hermann Hreiðarsson fann netmöskvana í kvöld þegar lið hans, Portsmouth lagði Birmingham að velli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Hermann kom sínum mönnum í 3:2 áður en Kanu innsiglaði 4:2 sigur Portsmouth. Hermann fagnaði markinu eins og hann væri 10 árum yngri eða með því að taka létt heljarstökk. (meira…)

Er vorið á næsta leiti?

Veðrið hefur verið grimmt við okkur í vetur. Við í Eyjum höfum fengið harðan vetur sem mest hefur bitnað á sjómönnunum okkar. Við megum þakka fyrir þá þrautseigju sem þeir sýna við að færa okkur björg í bú. Þar ræður bjartsýni ríkjum um að nú fari að koma betri tíð. (meira…)

Loðnan kominn að því að hrygna

Það gengur vel hjá okkur peyjunum núna við köstuðum tvisvar í dag og fylltum á það sem hægt var að fylla á. Það er ekki hægt að segja annað en að endalokin séu að nálgast hjá blessaðri loðnunni. Hrognin eru mjög laus í henni og styttist óðum í að hún hrygni og held ég að […]

Sautján tóku þátt í Guðlaugssundinu í nótt

Í nótt var þreytt Guðlaugssund í Sundhöll Vestmannaeyja, sautján tóku þátt í sundinu og fimm þeirra syntu heilt Guðlaugssund. Helgi Einarsson og börnin hans tvö, Árney og Aron syntu heilt sund, Aron á tímanum 1.26,03 sem er stysti tími Guðlaugssunds frá upphafi, Helgi á 1.49,26 og Árney á tímanum 2.06.03. Guðný Jensdóttir synti einnig heilt […]

Feitur fiskur úr sjó

Það virðist sama hvar er borið niður á vetrarvertíðinni. Alls staðar er góður þorskafli og fiskurinn er feitur og vel á sig kominn. Flest bendir því til að þorskurinn hafi komizt í meira æti að undanförnu en á sama tíma í fyrra. Það er líka sama hvaða veiðarfæri er notað. Það fiskast vel í þau […]

Töpuðu með þrettán mörkum gegn Val

Valur sigraði ÍBV, 39:26, í N1 deild karla í handknattleik en liðin áttust við í Vodafone- höllinni í kvöld. Valur hafði yfir tveggja marka forskot í hálfleik, 17:15, en í þeim seinni tóku heimamenn öll völd á vellinum. (meira…)

Réttarvörslukerfið og flutningur verkefna í deiglunni á fundi með forstöðumönnum

Dóms- og kirkjumálaráðuneytið bauð forstöðumönnum stofnana ráðuneytisins til árlegs fundar föstudaginn 7. mars á Radisson SAS Hótel Sögu. Yfirskrift fundarins var: Samvinna – sameining – samruni: Réttarvörslukerfið á tímamótum. Ákæruvaldið var í deiglunni og fjallað var um hugmyndir um millidómstig. Þá var varpað ljósi á möguleika varðandi flutning verkefna innan stjórnsýslunnar og hugsanlega útvistun. Tæplega […]

Góugleði Félags eldri borgara

Félag Eldri borgara á Eyrarbakka stóð fyrir sinni árlegu Góugleði í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka laugardagskvöldið 8. mars sl. Að venju var góð þátttaka og sóttu samkomuna eldri borgarar úr Árborg og víðar af Suðurlandi. Guðfinna Sveinsdóttir, Garðafelli, formaður félagsins setti hátíðina og fól síðan Jóni Bjarnasyni veislustjórn og kynningu skemmtiatriði sem nær öll voru […]

Sækja ekki um styrk til Menningarráðs Suðurlands að þessu sinni

Undirbúningshópur að væntanlegu Skólasögusetri á Eyrarbakka hefur ákveðið að sækja ekki um styrk til verkefna í þessari umferð frá Menningarráði Suðurlands heldur bíða til næstu úthlutunar síðar á árinu. Ástæðan er sú að verið er að vinna að aðkomu fleiri aðila að verkefninu s.s. fulltrúa frá Kennarasambands Íslands, fulltrúa frá Félagi kennara á eftirlaunum og […]

Komin á laggirnar ritnefnd vegna afmælisrits

Á síðasta fundi í Lista- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Árborgar upplýsti verkefnisstjóri að í samræmi við ákvörðun 81. fundar bæjarráðs væri búið að koma á laggirnar sérstakri ritnefnd sem hefur yfirumsjón með útgáfu 10. ára afmælisrits Sveitarfélagsins Árborgar. Inga Lára Baldvinsdóttir er formaður ritnefndar. Aðrir í ritnefndinni eru: (meira…)

Spasský spurði um laust pláss við hlið Fischers

Skákmeistarinn Boris Spasský spurði hvort laust pláss væri við hlið Bobby Fischers í kirkjugarðinum að Laugardælum um leið og hann lagði blómsveig að leiði hans í dag. Nafn Fischers verður ætíð tengt nafni Spasskýs, sem nú fékk loks tækifæri til að heiðra minningu þessa frægasta keppunautar síns við skákborðið. (meira…)

Mæta Val á útivelli í kvöld

Í kvöld sækja Eyjamenn Val heim að Hlíðarenda en ÍBV er sem fyrr í neðsta sæti N1 deildarinnar á meðan Valsmenn eru í þriðja sæti og í harðri baráttu um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV hefur aðeins unnið tvo leiki í vetur og báða á heimavelli og því væri ekki leiðinlegt að koma Valsmönnum á óvart með því […]

Loðnuvertíð að ljúka í vikulok?

Nú sér fyrir endann á loðnuvertíðinni miðað við þann kvóta sem búið er að gefa út en í Vestmannaeyjum er unnið allan sólarhringinn í hrognavinnslu. Ekki er útlit fyrir að fryst verði jafn mikið af loðnuhrognum og á árinu 2007 en allt bendir til þess að loðnuvertíð ljúki í vikulok. (meira…)

Á Faxaflóanum

Drepum niður á því hvað er að gerast hjá okkur. Við yfirgáfum Reykjavík í gærkveldi um átta eftir að hafa létt á okkur en það var hreinsað úr steisunum en skáparnir skildir eftir. Þeir bíða eftir löndunargenginu í Eyjum…… (meira…)

Sameinast um flutninga á mjólk

Mjólka ehf. og Auðhumla svf. hafa komist að samkomulagi um að Auðhumla muni héðan í frá annast söfnun mjólkur frá mjólkurframleiðendum fyrir bæði félögin. Að undanförnu hafa umtalsverðar hækkanir átt sér stað á eldsneyti, aðföngum og öðrum rekstarþáttum sem eru mjög íþyngjandi allri landbúnaðarstarfsemi, að því er segir í fréttatilkynningu. (meira…)

Ekkert ákveðið með hrefnukvótann

Sjávarútvegsráðherra hefur ekki ákveðið hversu margar hrefnur megi veiða hér við land á þessu ári. Hrefnuveiðimenn kalla eftir ákvörðun ráðherrans sem allra fyrst en þeir vilja fá að veiða 100 dýr. Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra segir ljóst að markaður sé fyrir hrefnuafurðir hér á landi og að hrefnustofninn þoli talsverðar veiðar. Stjórnvöld hljóti því að […]

Selfoss-strákarnir unnu þrjár af fjórum deildum

Nú um helgina fór fram fjölmennasta íþróttamót á Selfossi á þessu ári, þegar Landsbankamótið í handbolta fór fram á Selfossi. Um 600 keppendur mættu til leiks, 62 lið lið tóku þátt og leiknir voru 140 leikir á þremur dögum. Mótið tókst með afburðum vel, allar tímasetningar stóðust og fjölmargir sjálfboðaliðar unnu frábært starf á mótinu. […]

Kjarasamningarnir samþykktir með miklum meirihluta launafólks

Kjarasamningar Starfsgreinasambandsins og Flóabandalagsins við Samtök atvinnulífsins voru samþykktir með afgerandi hætti í öllum félögum, en talning atkvæða lauk í gær, að því er fram kemur í frétt á vef Starfsgreinasambandsins. (meira…)

Lélegt ástand á reiðleið með Gaulverjabæjarvegi

Á síðasta fundi í hreppsnefnd Flóahrepps var lagður fram tölvupóstur frá Sigríði Harðardóttur dags. 8. febrúar 2008 með fyrirspurn um hvort breyta megi staðsetningu gáma við Félagslund. Einnig er bent á lélegt ástand reiðvega í sveitarfélaginu, t.d. reiðleið með Gaulverjabæjarvegi. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.