27 sóttu um starf framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs
Umsóknarfrestur um starf framkvæmdastjóra Vatnajökulsþjóðgarðs rann út mánudaginn 18. febrúar og sóttu 27 um starfið. Vatnajökulsþjóðgarður er ríkisstofnun sem heyrir undir umhverfisráðherra. Með stjórn stofnunarinnar og umsjón með rekstri þjóðgarðsins fer sérstök stjórn skipuð af ráðherra. Umsækjendur eru: (meira…)
Vammlausa alþingismenn – nei takk

Hluti af því að gefa sig í stjórnmál er að verða allra skotspónn. Komast í almannaeigu. Þó svo að það þurfi veiðikort til að skjóta svartfugl og máv og enginn megi lengur drepa sér álft til matar skulu stjórnmálamenn án kvóta. Þingmenn og ráðherrar hafa látið þetta yfir sig ganga og lúbast undan eins og […]
Telur að loðnutorfan hafi verið 240 þúsund tonn

Jón Eyfjörð, skipstjóri á Sighvati Bjarnasyni segir m.a. í Vaktinni sem nú er í dreifingu, að hann sé ekki sammála útreikningum Hafrannsóknastofnunar um magn loðnunnar við Íslandsstrendur. „Við fengum þetta í torfu sem ég mældi 1,8 mílu að lengd og tækin sýndu þúsund metra beggja vegna við bátinn,“ segir Jón en Sighvatur fékk 450 tonna […]
Leggjast gegn 8% hækkun fargjalda Herjólfs

Bæjarstjórn ályktaði einróma vegna fyrirhugaðrar gjaldskrárhækkunar farþegaferjunnar Herjólfs sem tekur gildi næstkomandi mánudag. Bæjarstjórn minnir á fögur fyrirheit ráðamanna um bættar samgöngur í kjölfar niðurskurðar þorskkvóta í haust. Bæjarstjórn skorar jafnframt á samgönguráðherra og þingmenn Suðurlands að koma í veg fyrir þessar auknu álögur á heimili og fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Ályktunina má lesa í heild […]
Bæjarstjórn leggur fram ályktun í sex liðum

Á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í gærkvöldi var samþykkt ályktun í sex liðum þar sem bæjarstjórn leggur fram tillögur um mótvægisaðgerðir sem gagnast sjávarútvegsfyritækjum og sjávarbyggðum. Bæjarstjórn lýsir jafnframt þungum áhyggjum vegna stöðu mála í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum, 3,8 milljarða tap sé fyrirsjáanlegt vegna aflabrests í loðnuveiðum sem bætist ofan á 3,6 milljarða tap vegna niðurskurðar […]
Hafrannsóknarskipin bundin við bryggju í Reykjavík

Loðnuveiðibann tók gildi á hádegi í dag. Loðnustofninn mældist ekki nægilega stór til að hægt væri að mæla með veiði, segir Hafrannsóknarstofnun. Það er mikið í húfi, bæði fyrir landið allt, en ekki hvað síst fyrir þau byggðarlög sem mikið eiga undir loðnuveiði – og það fólk, sem við veiði og vinnslu loðnunnar starfa. Maður […]
Hver Eyjamaður tíu sinnum til læknis að meðaltali á ári

Ekki virðast allir á eitt sáttir um þjónustuna sem veitt er á Heilsugæslu Vestmanneyja en hún hefur m.a. verið gagnrýnd á bloggsíðum og í kjölfarið hafa óánægðir notendur haft samband við Fréttir og sagt farir sínar ekki sléttar. Aðallega er kvartað yfir hversu illa gengur að ná í lækni og ekkert sé gert til að […]
�?tlum við að láta setja okkur á hausinn aðgerðalaust?

Vestmannaeyingar bitu á jaxlinn þegar ákveðið var að skerða þorskkvótann um þriðjung á síðasta ári. Það var biti upp á rúma þrjá milljarða fyrir Vestmannaeyjar og nú bætist annað eins við með stöðvun loðnuveiða. Þar með er grunvellinum endanlega kippt undan Vestmannaeyjum í heild sinni. (meira…)
10 milljarðar í súginn

Loðnuveiðum er lokið. Þjóðarbúið verður af um tíu miljörðum króna ef ekki veiðist meiri loðna á vertíðinni, sé miðað við verðmæti aflans í fyrra. Sjávarútvegsráðherra ákvað í gær, að loðnuveiðar yrðu stöðvaðar á hádegi en fiskifræðingum hefur ekki tekist að mæla þau 400.000 tonn sem þeir telja grundvöll frekari veiða. Íslensk skip hafa aðeins náð […]
Keppnisliðin á Stefnumót DV og dv.is á Suðurlandi
Stefnumót DV og dv.is verður haldið á Suðurlandi að þessu sinni föstudagskvöldið 22. feb. n.k. klukkan 20 í Hvíta húsinu á Selfossi í samvinnu við Hrútavinafélagið. Lýður Árnason á Flateyri, læknir og kvikmyndaframleiðandi mun stjórna spurningakeppni þar sem takast á tvö þriggja manna lið undir forystu Björgvins G. Sigurðssonar viðskiptaráðherra og Guðna Ágústssonar, formanns Framsóknarflokksins. […]
Kántrýsveitin Klaufar á Players á laugardagskvöld
Kántrýsveitin Klaufar leikur á Players næstkomandi laugardagskvöld. Loksins á mölinni, það var fullt út úr dyrum síðast þegar Klaufar spiluðu á Players. Ekki missa af þeim! Hljómsveitin er í hljóðveri um þessar mundir & ríkir mikl eftirvænting hvaða lagi verður breytt. (meira…)
Árekstur við Eyrarbakkaveg
Árekstur varð í gærkvöldi á gatnamótum Eyrarbakkavegs og Þorlákshafnarvegs. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var ökumaður annars bílsins grunaður um að aka undir áhrifum fíkniefna og færður á lögreglustöð til sýnatöku. Báðir bílarnir voru óökufærir eftir áreksturinn en ekki var um alvarleg meiðsl að ræða. (meira…)
Sigurður Ari fór á kostum

Sigurður Ari Stefánsson, Eyjamaðurinn í norska handknattleiksliðinu Elverum, fór á kostum í gærkvöld þegar lið hans, undir stjórn Axels Stefánssonar, vann Stord á útivelli, 35:31, í úrvalsdeildinni. Sigurður Ari skoraði 11 mörk úr 14 skotum í leiknum og Ingimundur Ingimundarson var einnig drjúgur og gerði 5 mörk fyrir Elverum, sem er í fjórða sæti deildarinnar. […]
�?ingið haldið í �?orlákshöfn á laugardag
86. héraðsþing Héraðssambandsins Skarphéðins verður haldið í Ráðhúsi Ölfuss að Hafnarbergi 1 í Þorlákshöfn á laugardag. Þingið hefst stundvíslega kl. 10:00, en afhending þinggagna er frá 9:30. Áætluð þingslit eru kl. 18:00.Rétt til setu á þinginu eiga 96 fulltrúar frá 56 aðildarfélögum HSK og tveimur sérráðum sambandsins. Þá hefur Akstursíþrottafélag Hreppakappa sótt um aðild að […]
Bæjarfulltrúar á vinabæjarmót
Bæjarstjórn Äänekoski í Finnlandi, vinabæjar Hveragerðis, hefur boðið fulltrúum bæjarins til vinabæjamóts í júní í sumar.Bæjarráð Hveragerðis hefur þekkst boðið og samþykkt að Eyþór Ólafsson, forseti bæjarstjórnar og einn fulltrúi minnihlutans fari á mótið. (meira…)
Verkfærastuldur úr hesthúsi
Aðfaranótt laugardagsins var brotist inn í hesthús sem er í byggingu í Þorlákshöfn og þaðan stolið nokkrum verðmætum rafmagnsverkfærum. Meðal þess sem hvarf var DeWalt verkfærakassi með ýmsum verkfærum, höggborvél, tveir stórir slípirokkar og rafsuðuvél. (meira…)
Syntu fyrir Samfés
Krakkarnir í félagsmiðstöðinni OZ í Vík söfnuðu fé í ferðasjóð vegna Samfés 2008 með sundmaraþoni sl. fimmtudag. Krakkarnir syntu frá kl. 14:30 fram að miðnætti og lögðu alls 65,2 km að baki. Alls synti 21 nemandi úr 9. og 10. bekk Grunnskóla Mýrdalshrepps. (meira…)
�?orsteinn kynnir �?landssögu og Fyrstu sögur

Þriðjudaginn 26. febrúar mun Þorsteinn Antonsson kynna safngestum á bókasafninu í Hveragerði tvær bækur sem hann gaf út ásamt Maríu Önnu Þorsteinsdóttur. Þetta eru bækurnar Ólandssaga eftir Eirík Laxdal (1743-1815) sem kom út 2006 og Fyrstu sögur, sem kom út í fyrra og hefur að geyma áður óútgefnin handrit frá 18. og 19. öld. Ólandssaga […]
Stefnumót DV og dv.is á Suðurlandi

Stefnumót DV og dv.is verður haldið í Hvíta húsinu á Selfossi á morgun, föstudagskvöld kl. 20:00, í samvinnu við Hrútavinafélagið. Ritstjórar DV, Jón Trausti Reynisson og Reynir Traustason, munu kynna stefnu blaðsins og svara fyrirspurnum. Þá mun Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri dv.is segja frá vefnum sem þegar hefur náð sterkri stöðu á markaði og er nú […]
Leynimelur 13 á 100 ára afmæli félagsins

Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir gamanleikinn Leynimelur 13 í Aratungu á morgun, föstudagskvöld. Leikritið er sett upp í tilefni af 100 ára afmæli Ungmennafélags Biskupstungna sem er síðar á árinu. Höfundar verksins kalla sig Þrídrang” en verkið er samið á stríðsárunum og var fyrst sýnt 1943. Þrettán leikarar taka þátt í sýningunni auk fjölda fólks að […]