Mikið hlegið í Aratungu

Leikritið Leynimelur 13 var frumsýnt í Aratungu sl. föstudagskvöld á vegum leikdeildar Umf. Biskupstungna. Leikendur eru 13 en leikstjóri Gunnar Björn Guðmundsson og allnokkur hópur aðstoðar að tjaldabaki en vandað er til leikmyndar. (meira…)

Kjötframleiðslan jókst í síðasta mánuði

Framleiðsla á kjöti í janúar var 7,8% meiri en í sama mánuði í fyrra. Framleiðsla jókst á alifuglakjöti um 10,7%, nautgripakjöti um 16,1% og hrossakjöti um 61,2%. Síðastliðna 12 mánuði hefur kjötframleiðslan aukist um 6,3%. (meira…)

Fjör í Flóanum í vor 30. maí – 1. júní

Undirbúningur er hafinn fyrir Fjör í Flóanum, sveitarhátíðina okkar góðu í Flóahreppi. Fjörið verður haldið 30. maí til 1. júní. Húsnefndir félagsheimilanna þriggja í hreppnum hafa þegar haldið tvo fundi og fjölmargar hugmyndir um skemmtilega viðburði eru komnar á kreik. (meira…)

Kynningarfundur um nýja skólabyggingu á Stokkseyri

Í samráði við bæjarstjóra og starfandi formann byggingarnefndar verður haldinn kynningarfundur um deiliskipulag og teikningar að nýrri skólabyggingu á Stokkseyri þriðjudaginn 26. febrúar nk. kl. 20:00. (meira…)

KFS sigraði Vesturbæjarliðið KV 3:4

KFS sigraði KV 4-3 í æfingaleik á gervigrasvellinum í Vesturbæ í gær. KV leiddi 3-0 í hálfleik en Eyjamenn tóku heldur betur við sér í síðari hálfleik og unnu að lokum 4-3 þar sem Sæþór Jóhannesson jafnaði 3-3 og skoraði síðan sigurmarkið. (meira…)

Stóridómur er fallinn

Jæja þá hafa þessir snillingar hjá Hafró enn eina ferðina fellt sinn stóradóm og nú skal loðnuveiðum hætt, sem væri af hinu góða ef einhver grundvöllur væri fyrir þessari ákvörðun. En nei nei þessir snillingar byggja þetta á löngu úreltri rannsóknaraðferð – en hún fellst í því að fara á fyrirfram ákveðinn stað á fyrirfram […]

24. febrúar �?konudagur�? góa byrjar

Mánuðurinn góa hefst nú sunnudag frá 18. til 24. febrúar, en 8. til 14. febrúar í gamla stíl fyrir 1700. Nafnið, góa eða gói, er þekkt úr elstu heimildum og afbrigði þess í öðrum norrænum tungum. Gói er persónugerð sem vetrarvættur í gömlum sögnum, dóttir Þorra. Orðið góiblót bendir til mannfagnaðar seint að vetri að […]

Vilja jafnstöðukvóta í framtíðinni í loðnu

Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Vestmannaeyjum funduðu í dag vegna loðnuveiðibannsins. Sjávarútvegsráðherra ætlaði að sitja fundinn en komst ekki vegna ófærðar. Fundurinn var hins vegar líflegur og skiptust menn á skoðunum en allir voru þó sammála um alvarleika bannsins. Fundurinn samþykkti ályktun þar sem meðal annars þess er krafist að í framtíðinni verði gefinn út jafnstöðukvóti, […]

�?uríður �?sk yfir fjármála- og stjórnsýslusviði

Gengið hefur verið frá ráðningu Þuríðar Óskar Gunnarsdóttur í starf framkvæmdastjóra Fjármála- og stjórnsýslusviðs Sveitarfélagsins Árborgar. Hún hóf störf að hluta til sl. þriðjudag en verður í fullu starfi frá miðjum mars. (meira…)

Eyjamenn steinlágu gegn Val

Karlalið ÍBV steinlá í fyrsta leik sínum í Lengjubikarnum en í dag lék liðið gegn úrvalsdeildarliði Vals. Lokatölur urðu 6:0 en ÍBV spilar aftur í sömu keppni gegn úrvalsdeildarliði Breiðabliks sunnudaginn 3. mars klukkan 14.00 í Kórnum. Breiðablik burstaði Grindavík í dag 5:1. (meira…)

Kjarasamningur samþykktur hjá Drífanda

Félagsmenn í Stéttarfélaginu Drífanda hafa samþykkt kjarasamning sem skrifað var undir á dögunum. 88% félagsmanna sögðu já en 12% félagsmanna nei og segir Arnar Hjaltalín, formaður Drífanda að aldrei áður hafi hann séð jafn mikla ánægju með kjarasamninga og nú. (meira…)

Loðnuveiði undantekning, ekki regla

Ef ekki á að stofna loðnustofninum í hættu þurfa veiðar úr honum að vera undantekning en ekki regla á næstu árum. Þetta er mat Ólafs Karvels Pálssonar, fiskifræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. Fyrir um áratug fór loðnan að haga sér á annan hátt en áður. Ólafur Karvel hefur unnið að vistfræðirannsókn á loðnu frá 2006. Loðnan er […]

Hermann í hundraðasta sæti

Emmanuel Adebayor, leikmaður Arsenal, hefur skotist upp fyrir Cristiano Ronaldo, Manchester United, í tölfræðiþáttunum í ensku úrvalsdeildinni samkvæmt útreikningum Actim, sem heldur utan um frammistöðu allra leikmanna í deildinni og reiknar út einkunnir þeirra fyrir hina ýmsu þætti eftir hvern leik. Einn Íslendingur er í hópi 100 efstu en Hermann Hreiðarsson er í 100. sæti. […]

Mælið þessar loðnutorfur strax !

Í gær voru loðnuveiðar stöðvaðar. Hvað þýðir það fyrir Vestmannaeyjar ? Í mínum huga er það ósköp einfalt : Það hefur svipuð áhrif á samfélagið hér eins og sett sé úr þriðja í fyrsta gír á bifreið. Ef veiðibannið stendur vertíðina á enda munu áhrif þess dreifast um samfélagið hér og samdráttur verða á flestum […]

VM kallar eftir aðgerðum stjórnvalda vegna þess vanda sem nú blasir við.

VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna skorar á stjórnvöld að koma til móts við þá sjómenn sem verða fyrir tekjuskerðingu vegna nýlegra stjórnvaldsaðgerða. Stórfelldur niðurskurður á veiðiheimildum þorsks og loðnu lækkar tekjur sjómanna verulega og kemur illa niður á þeim sjómönnum sem veitt hafa þessar tegundir undanfarin ár. Niðurskurðurinn kippir fjárhagslegum grunni undan sjómönnum og […]

Inga Lára Baldvinsdóttir á Eyrarbakka formaður ritnefndar

Samykkt var í bæjarráði Árborgar á fundi í gær að skipa fimm manna ritnefnd vegna útgáfu afmælisrits vegna 10 ára afmælis Sveitarfélagsins Árborgar á árinu. Nefndin móti tillögu að formi og innihaldi afmælisritsins og leggi fyrir bæjarráð. Lagt var til að Inga Lára Baldvinsdóttir á Eyrabakka verði formaður ritnefndar. (meira…)

Ákvörðun sem hægt er að breyta

Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, vill vara við svartsýni þó ákvörðun hafi verið tekin um að stöðva loðnuveiðar. Hann segir vel fylgst með loðnunni og komi jákvæðar fréttir af miðunum verði banninu aflétt. Árni segist vera með tillögu bæjarstjórnar Vestmannaeyja frá í gær til athugunar og séu atriði í þeim í samræmi við það sem ríkisstjórnin […]

�?órir Erlingsson á Eyrarbakka ráðinn

Lista- og menningarnefnd Sveitarfélagsins Árborgar ákvað að menningar- og afmælishátíðin verði haldin dagana 8., – 18. maí nk. Sömuleiðis var ákveðið að ráða sérstakan aðila til að hafa utanumhald með dagskráratriðum og auglýsingasöfnun í samráði við verkefnisstjóra, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Braga Bjarnason og aðra hlutaðeigandi. (meira…)

Hjalti gengur í raðir Selfoss

Hjalti Jóhannesson, leikmaður KFS og fyrrum leikmaður ÍBV er genginn í raðir 1. deildarliðs Selfoss. Hjalti hefur undanfarin ár leikið með KFS en leikmaðurinn, sem er 34 ára á einnig að baki 110 leiki með ÍBV og varð m.a. Íslands- og bikarmeistari með liðinu. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.