Fyrsta loðnan á leið til Eyja

Fyrsta loðnan sem landað verður í Vestmannaeyjum er á leiðinni en skip Vinnslustöðvarinnar, Sighvatur Bjarnason Ve. er á heimstíminu. Í nótt náði áhöfnin 600 tonnum í aðeins tveimur köstum en Magnús Jónasson, fyrsti stýrimaður um borð segir þá hafa séð nóg af loðnu á miðunum út af Reyðarfjarðardýpi. (meira…)

Ágústa með þrenn verðlaun og Selfossmet

Frjálsíþróttakonan Ágústa Tryggvadóttir, Umf. Selfoss, vann til tveggja silfurverðlauna og einna bronsverðlauna á meistaramóti Íslands í frjálsum íþróttum sem fram fór í Frjálsíþróttahöllinni um síðustu helgi. M.a. bætti hún 13 ára gamalt Selfossmet Sigrúnar Hreiðarsdóttur í kúluvarpi kvenna.Ágústa kastaði kúlunni 12,56 m og bætti sinn fyrri árangur um hvorki meira né minna en 88 sm. […]

Snæfell skrefi á undan

Hamar heimsótti Snæfell í Stykkishólm sl. sunnudag í Iceland Express-deild karla. Snæfellingar voru feti framar allan tímann og forskot þeirra jókst jafnt og þétt allan leiktímann. Lokatölur voru 98-80. (meira…)

Ekkert um gangarannsóknir á borði samgöngunefndar

Bjarni Harðarson, alþingismaður spurði Steinunni Valdísi Óskars­dóttur, formann samgöngunefndar, um stefnu stjórnarflokkanna í sam­göngumálum Vestmannaeyinga í fyrirspurnatíma til alþingismanna á þriðjudag. „Ég vildi vita hvort einhverra breyt­inga væri að vænta vegna nýlegrar yfirlýsingar fjármálaráð­herra á fundi í Vestmannaeyjum um að ljúka þyrfti rannsóknum vegna jarðgangagerðar. Í framhaldinu mættu fulltrúar Ægisdyra á fund samgöngunefndar þar sem […]

Hálsbrotnaði í sundlauginni

Karlmaður á þrítugsaldri hálsbrotnaði þegar hann stakk sér í grynnri endann á sundlauginni á Flúðum sl. laugardagskvöld. Maðurinn mun ekki hafa lamast við hálsbrotið en dýpi laugarinnar er um 60 sm þar sem hann stakk sér og lenti á höfðinu. (meira…)

Áhafnarmeðlimir ekki lögskráðir

Sl. föstudag bárust lögreglunni á Selfossi upplýsingar um að ólag væri á lögskráningu nokkura áhafnarmeðlima báts sem gerður er út frá Þorlákshöfn. Í ljós kom að í það minnsta sex áhafnarmeðlimir voru ekki lögskráðir á bátinn. (meira…)

�?Góður�? tapleikur gegn Grindavík

Hamarskonur spiluðu einn sinn besta leik á heimavelli sl. laugardag þegar liðið tók á móti Grindavík. Staða liðanna á töflunni er gjörólík, Grindavík í toppbaráttu en Hamar í næst neðsta sæti. Það var þó ekki að sjá á leik liðanna, sem var jafn allan tímann, og Grindvíkingar þurftu að hafa verulega fyrir þriggja stiga sigri, […]

Frábær lokakafli dugði ekki til

Það voru miklar sveiflur í leik Hamars og Keflavíkur sl. miðvikudag. Keflvíkingar voru þó heilt yfir sterkari og sigruðu að lokum, 65-76. Hamar kom vel til baka á lokakaflanum en það dugði ekki til.Gestirnir voru mun sprækari í upphafi og náðu 10 stiga forskoti. Hamar svaraði fyrir sig undir lok 1. leikhluta og var staðan […]

Músíkstund í Selfosskirkju

Sunnudaginn næstkomandi, 17. febrúar, verður músíkstund í Selfosskirkju kl. 17. Ingibjörg Birgisdóttir, blokkflautuleikari, og Jörg Sondermann, organisti, flytja fallega tónlist. Aðgangur er ókeypis.Hér er kjörið tækifæri til þess að slaka á, njóta góðrar hljómlistar og vera glaður í Guði sínum.Gunnar Björnsson, sóknarprestur. (meira…)

Mannlífið

Nú fer tíma hrútspunga og hákarla að ljúka og flestir Sunnlendingar búnir að fara á allavega eitt þorrablót. En gleðin heldur áfram fyrir skemmtanafíkla. Alþjóðlegt Karókí mót verður haldið í Ráðhúskaffi, Þorlákshöfn, á laugardagskvöldið á svokallaðri Þjóðahátíð . Nú er mál fyrir alla Sunnlendinga að dusta rykið af gullbörkunum og syngja uppáhaldslagið sitt. (meira…)

Litagleði í Listasafni Árnesinga

Sunnudagurinn 17. febrúar er síðasta tækifæri til að eiga stund með myndlistakennara í Listasafni Árnesinga, sem staðið hefur fyrir „Stefnumóti við safneign fyrir gesti og gangandi í vetur. Á „Stefnumóti við safneign” gefst gestum á öllum aldri tækifæri til að reyna sig með litum og nokkra sunnudaga hafa myndlistarkennarar verið þeim til aðstoðar. Ekki er […]

Bókaumfjöllun Jóns Yngva í Hveragerði

Í kvöld, fimmtudaginn 14. febrúar kl. 20:00 kemur Jón Yngvi Jóhannsson, bókmenntafræðingur, í heimsókn í Bókasafnið í Hveragerði. Margir kannast við Jón Yngva úr bókmenntagagnrýni í Íslandi í dag. Hann mun fjalla um jólabókaflóðið, nýjustu bækurnar í íslenskri bókaútgáfu, og segja skoðun sína á þeim. Margir kannast við Jón Yngva úr bókmenntagagnrýni Kastljóss hjá RÚV […]

Vinnslustöðin staðfestir viðræður við Ufsaberg

Á vef OMX kauphallarinnar birtist fyrir stuttu fréttatilkynning frá Vinnslustöðinni. Þar er það staðfest að fyrirtækið eigi í viðræðum við útgerðarfyrirtækið Ufsaberg um kaup á togaranum Gullberg Ve. Fréttatilkynninguna má lesa hér að neðan. (meira…)

Styrktartónleikar Hoffman í kvöld á Gauknum

Hljómsveitin Hoffman ætlar að standa fyrir tónleikum á Gauknum í kvöld, miðvikudaginn 13. febrúar. Tónleikarnir eru haldnir til styrktar Þorsteini Elíasi Þorsteinssyni og fjölskyldu en Þorsteinn veiktist alvarlega fyrir nokkrum mánuðum af sjúkdómi sem kallast ósæða­flysjun og er nú í endurhæfingu. (meira…)

Lítill eldur en mikill reykur

Rúmlega átta í morgun var slökkvilið Vestmannaeyja kallað út að versluninni Póley við Strandveg. Þegar að var komið var ekki mikill eldur og var hann slökktur með handslökkvitæki. Hins vegar var mikill reykur og skemmdir á búðinni aðallega sökum reyks. (meira…)

Vilja næturferðir Herjólfs alla föstudaga

Bæjarráð tók fyrir á fundi sínum í dag þann flöskuháls sem myndast á sumrin þegar kemur að flutningi bíla til og frá Eyjum með Herjólfi. Bæjarráð samþykkir að óska eftir því að viðbótaferðir verði á nóttunni alla föstudaga frá 6. júní til 29. ágúst. Auk þess óskar bæjarráð eftir því að til viðbótar við þessar […]

Er Vinnslustöðin að kaupa Gullberg Ve?

Samkvæmt heimildum Eyjafrétta stendur til að selja togarann Gullberg Ve 292 en það er útgerðarfyrirtækið Ufsaberg sem gerir skipið út. Fyrirtækið gerði áður út uppsjávarfiskiskip en seldi Vinnslustöðinni það og byrjaði í bolfiskveiðum á síðasta ári. Sömu heimildir segja að áhöfninni hafi verið tilkynnt um hugsanlega sölu í gær og að Vinnslustöðin sé líklegur kaupandi. […]

Guðbjörg er úr leik

Guðbjörg Guðmannsdóttir, landsliðskona í handknattleik og leikmaður danska úrvalsdeildarliðsins Frederikshavn Fox, leikur ekki með liðinu næstu sex vikurnar. Guðbjörg fékk högg á annað leggbeinið undir lok kappleiks Frederikshavn Fox og SK Aarhus í síðustu viku. (meira…)

Var hálfur út um brotinn glugga á nærbrókinni einum fata

Eins og áður aðstoðaði lögregla íbúa Vestmannaeyja í óveðri í síðustu viku en lögreglan í Eyjum kom þó upp um eina furðulegustu innbrotstilraun sem um getur. Þegar lögreglumenn komu að húsi einu við Kirkjuveg, hékk maður hálfur út um brotinn glugga á útidyrahurðinni, á nærbrókinni einum fata. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar í Vestmannaeyjum […]

Hermann í liði vikunnar á Sky sjónvarpsstöðinni

Hermann Hreiðarsson varnarmaður Portsmouth er í liði vikunnar í ensku úrvalsdeildinni á vefsíðu Sky Sports. Hermann lék vel í hjarta varnarinnar hjá Portsmouth þegar að liðið lagði Bolton 1-0 á laugardaginn en hann bjargaði meðal annars á línu frá Gary Cahill. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.