Stefnumót DV og dv.is á Suðurlandi

Stefnumót DV og dv.is verður haldið á Suðurlandi að þessu sinni föstudagskvöldið 22. feb. n.k. klukkan 20 í Hvíta húsinu á Selfossi í samvinnu við Hrútavinafélagið. (meira…)

Hafró leggur til veiðistöðvun ef ekki finnst meira af loðnu

Loðnuleitin sem nú stendur yfir virðist ekki lofa góðu. Árni Friðriksson nánast búinn að leita á Vestfjarðarmiðum. Hitt rannsóknaskipið, Bjarni Sæmundsson, er við leit langt suðaustur í hafi. Þrjú loðnuveiðiskip leita síðan á miðunum norður með Austurlandi. Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri nytjastofnasviðs Hafrannsóknastofnunar, sagði útlitið dökkt í viðtali í hádegisfréttum RÚV og bætti því við að […]

Skaut mink í Vestmannaeyjum

Í dag skaut Ásmundur Pálsson, meindýraeyðir í Vestmannaeyjum mink á hafnarsvæðinu í Eyjum. Þetta er í fyrsta sinn sem minkur er veiddur í Vestmannaeyjum en í haust var sagt frá mink um borð í bátnum Stíganda Ve. Sá stökk út í sjó og náðist ekki. (meira…)

�?rír valdir í yngri landslið körfuboltans

Hinn ungi og efnilegi körfuknattleiksmaður Kristján Tómasson hefur verið valinn í 18 manna hóp U-16 ára landsliðs sem mun æfa í byrjun mars. Liðið tekur þátt í Norðurlandamótinu í enda apríl en í endanlegum hópi verða 12 leikmenn. Þá hafa þeir Jóhann Rafn Rafnsson og Alexander Jarl Þorsteinsson valdir í 24 manna æfingahóp U-15 ára […]

4 stúlkur í úrtakshóp 18 ára landsliðs kvenna í handbolta

Fjórar stelpur hafa verið valdar í úrtakshóp hjá 18 ára landsliði Íslands, þær eru Dröfn Haraldsdóttir, Elísa Viðarsdóttir, Eva María Káradóttir og Heiða Ingólfsdóttir sem einnig var valin til æfinga með Unglingalandsliði skipað leikmönnum 20 ára og yngri, til hamingju stelpur. (meira…)

Innbrot, bruni og vinnuslys

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið við að aðstoða borgarana vegna hinna ýmsu verkefna sem upp komu. Nokkrir þurftu aðstoð lögreglu við að komast heim af skemmtistöðum bæjarins, en þeir áttu í vandræðum með gang eftir að hafa verið búnir að fá sér heldur mikið neðan í því. (meira…)

Atli Heimsson og Andri �?lafsson framlengja við ÍBV

ÍBV framlengdi samninga sína við þá Atla Heimsson og Andra Ólafsson nú á föstudag. Atli framlengdi samning sinn við ÍBV til 2010 en Andri sem var samningslaus framlengdi til 2009. Atli kom til ÍBV frá Aftureldingu í byrjun sumars og lék vel með Eyjamönnum í fyrstu deildinni en hann skoraði átta mörk í sautján leikjum […]

HSK þingar um helgina í �?orlákshöfn

Héraðssambandið Skarphéðinn heldur sitt 86. héraðsþing í Ráðhúsinu í Þorlákshöfn, næstkomandi laugardag, 23. febrúar. Hefst þingið kl. 10 um morgunin og ætlunin er að því l júki kl. 18. – Rétt til setu á þinginu eiga 96 fulltrúar fr á 56 aðildarfélögum H SK og tveimur sérráðum sambandsins. Þá hefur eitt félag sótt um aðild […]

Loðnan að ganga upp á grunnslóð

Loðna virðist nú vera að ganga upp á grunnslóð suðaustur af landinu og eru nokkur skip þegar búin að fá all góðann afla. Þá er hafrannsóknaskip komið á svæðið og eru vonir bundnar við að fiskifræðingum takist að mæla stofninn á næstu dögum. (meira…)

Stórsigur ÍBV á útivelli

Meistaraflokkur vann Glóamenn í Seljaskóla í dag með 93 stigum gegn 66. Var þetta nokkuð öruggur og sannfærandi sigur en að sögn okkar manna vorum við ekki að spila neitt svakalega vel. En sigur er sigur og kvörtum við ekkert yfir því. Spiluðu allir leikinn sem voru með og stóðu sig þokkalega. Náðu allir að […]

Loðnan: Tvisvar áður svipað hegðunarmynstur

Þótt útlitið sé dökkt í augnablikinu hvað loðnuvertíðina varðar er kannski ekki ástæða til þess að gefa upp alla von. Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur upplýsir í viðtali í nýjustu Fiskifréttum sem koma út í dag að a.m.k. tvisvar áður hafi komið upp svipað ástand og nú, en í bæði skiptin hafi loðnan skilað sér um síðir […]

Skjálfti á markað 1.mars

Sunnlenski bjórinn Skjálfti, sem bruggaður er í Ölvisholt brugghúsi í Flóahreppi, fer á markað 1. mars nk. Í byrjun verður hannseldur í tveimur vínbúðum ÁTVR í Reykjavík og vonandi í Vínbúðinni á Selfossi. Bjórinn er 5% að styrkleika. Þeir, sem hafa fengið að smakka bjórinn gefa honum hæstu einkunn enda um úrvals sælkerabjór að ræða. […]

Raunhæft að verðbólga náist niður segir Vilhjálmur Egilsson

Raunhæfur möguleiki á að ná niður verðbólgu skapast með þeim kjarasamningum sem verið er að leggja lokahönd á. Þetta segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í leiðara fréttabréfsins Af vettvangi. Í samningunum felast engar almennar flatar launahækkanir og eru umsamdar hækkanir mjög sambærilegar við niðurstöður samninganna 22. júní 2006. Verðbólgan á síðari hluta árs 2006 lækkaði […]

Glæsilegur sigur á Stjörnunni

Það verður ekki annað sagt en að það hafi verið dramatík af bestu gerð þegar leik ÍBV og Stjörnunnar lauk í dag í N1 deild karla. Eyjamenn komu Garðbæingum í opna skjöldu og voru yfir allan leikinn, 17:15 í hálfleik. Þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir var hins vegar jafnt, 33:33 en þá kórónaði Sergey […]

Búið að skrifa undir kjarasamninga bræðslustarfsmanna

Búið er að skrifa undir kjarasamninga starfsmanna í bræðslum en Drífandi og verkalýðsfélagið Afl á Austurlandi hafa samið sérstaklega fyrir hönd þeirra. Um er að ræða sérkjarasamninga sem þó fylgir í megindráttum því sem Starfsgreinasambandið hefur náð í sínum kjaraviðræðum. Verið er að kynna samninginn félagsmönnum og verður kosið um hann í dag. Niðurstaða kosningarinnar […]

Gunnar Sig í FH

Markvörðurinn Gunnar Sigurðsson er genginn í raðir FH og hefur gert samning við félagið út þetta ár. Þetta staðfesti Lúðvík Arnarsson varaformaður knattspyrnudeildar FH í samtali við Fótbolta.net í kvöld. Gunnar sem er 33 ára gamall hefur mikla reynslu úr fótboltanum. Hann hefur áður leikið með ÍBV, KFS, Brage í Svíþjóð og Fram þar sem […]

Vaktin á leið inn á öll heimili í Eyjum

Nýtt tölublað Vaktarinnar er nú í dreifingu og er á leið inn á hvert heimili í Eyjum. Auk þess má finna blaðið í helstu sjoppum bæjarins og þá er auðvitað hægt að lesa blaðið hér á Eyjafréttum. Í blaðinu er m.a. rætt við Bylgju Dögg Guðjónsdóttur en hún og Óskar Þór Kristjánsson, eiginmaður hennar söfnuðu […]

Veiðum hætt í bili

Lítið sem ekkert hefur veiðst af loðnu undanfarið. Hafrannsóknarstofnun vill að hlé verði gert á veiðunum í nokkra daga svo hægt sé að meta ástandið. Fulltrúar Hafrannsóknarstofnunar áttu fund með hagsmunaaðilum í dag um dræmar loðnuveiðar. Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknarstofnunar segir að stofnunin vilji að útgerðarmenn haldi að sér höndum á meðan sérfræðingar Hafró geri […]

Samið við Brassana

Þrír Brasilíumenn munu leika með ÍBV í fyrstu deild karla í sumar en þeir hafa verið á reynslu hjá félaginu undanfarnar vikur. Þetta staðfesti Huginn Helgason í knattspyrnuráði ÍBV við Fótbolta.net í dag. Verið er að ganga frá lausum endum áður en félagaskiptin ganga í gegn en leikmennirnir hafa leikið nokkra æfingaleiki með Eyjamönnum að […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.