Sirrý Rúnarsdóttir verðlaunahafi í Eldvarnarátaki 8 ára barna

Á laugardaginn 9. febrúar kom til okkar á slökkvistöðina Sirrý Rúnarsdóttir Foldahrauni 27, nemandi Hamarsskóla til að taka við viðurkenningu fyrir þátttöku í Eldvarnaátaki sem allir 8 ára nemendur í landinu tóku þátt nú fyrir síðustu jól. Þátttakan var mjög góð um 4000 börn tóku þátt og var rétt lausn Sirrýar dregin úr 34 réttum […]

Í GSM sambandi 30 kílómetra frá Eyjum

Trillusjómenn hafa lengi vel notast mikið við NMT símakerfið en sjómaður einn varð hissa þegar hann var staddur 30 kílómetra frá Eyjum. Þá komst hann í fullt símasamband með GSM símann sinn. Hann hringdi í kjölfarið í þjónustuver Vodafone og tilkynnti þeim að NMT símanum yrði hér eftir stungið ofan í skúffu. (meira…)

Smáey meðal stærstu hluthafa Landsbanka

Smáey ehf., eignarhaldsfélag í eigu Magnúsar Kristinssonar, hefur bæst í hóp stærstu hluthafa Landsbankans. Samkvæmt lista yfir tuttugu stærstu hluthafa bankans í lok janúar er Smáey orðin 12. stærsti hluthafinn með 1,75% hlut. (meira…)

Góður dagur í gær fyrir fótboltaliðin

Bæði ÍBV og KFS léku æfingaleiki í gær. ÍBV mætti Selfyssingum í Kórnum í Kópavogi og höfðu betur 4:2. Eyjamenn komust í 1:0 en Selfyssingar svöruðu með tveimur mörkum. ÍBV skoraði svo þrjú mörk áður en yfir lauk en tvö markanna gerði kantmaðurinn snaggaralegi Junior. (meira…)

Ekki svo galið gegn toppliðinu

Í dag mættust botnlið ÍBV og topplið Hauka N1 deildarinnar á heimavelli toppliðsins. Fyrir leikinn munaði hvorki meira né minna en 21 stigi á liðunum en það var ekki að sjá í leiknum. Eyjamenn byrjuðu af miklum krafti, komust í 1:4 en Haukar komust aftur inn í leikinn og voru yfir í hálfleik 15:10. Lokatölur […]

Eyjamenn töpuðu fyrir U-19 ára landsliðinu

Í gær lék karlalið ÍBV í knattspyrnu æfingaleik gegn U-19 ára landsliði Íslands en leikurinn fór fram í knattspyrnuhúsinu Kórnum í Kópavogi. Lokatölur urðu 0:2 fyrir ungmennalandsliðinu. Í dag leikur ÍBV svo gegn Selfossi á sama stað, í Kórnum. (meira…)

ÍBV hefur leik gegn Leikni á heimavelli 12. maí

Nú liggja fyrir drög að leikjarfyrirkomulagi á Íslandsmótinu í knattspyrnu. Karlalið ÍBV leikur í 1. deild eða næst efstu deild og byrjar sumarið á heimaleik gegn Leikni 12. maí. 18. maí er svo útileikur gegn Þór frá Akureyri en 23. maí er heimaleikur gegn Stjörnunni. ÍBV endar svo tímabilið á útileik gegn Selfoss laugardaginn 20. […]

Engin Herjólfsferð í dag

Veðurspá Veðurstofunnar fyrir daginn í dag er slæmi: Suðvestan 8-13 og él. Hvessir síðdegis, 15-23 í kvöld, hvassast við ströndina, en 10-15 á morgun. Hiti um frostmark. Það hefur því verið tekin ákvörðun um að Herjólfur siglir ekki til Þorlákshafnar í dag. Kl. 9 í morgun var vindur af suðvestri, 26 metrar á Stórhöfða og […]

�?akplötur fuku af húsi í Eyjum

Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur verið á ferðinni síðan síðdegis í dag en fram eftir degi voru skemmdir vegna óveðursins sem nú geisar, óverulegar. Um átta leytið var Björgunarfélagið og lögregla hins vegar kölluð að húsi við Heiðarveg þar sem þakplötur höfðu losnað af einu húsanna og fuku um hverfið. Því varð að loka götunni á meðan […]

Samtal við morgunverðarborðið

Hjónin sitja við morgunverðarborðið að gæða sér á Cornflexi með mjólk útá – og kaffi á eftir. Hún veltir fyrir sér, hvað framtíðin beri í skauti sér. Hann verður fyrir svörum, – og segir meira en hann vildi. (meira…)

Fermingarmóti frestað um viku vegna veðurs

Fyrirhuguðu fermingarmóti sunnudaginn 10. febrúar hefur verið frestað um eina viku vegna óhagstæðra veðurskilyrða. Sama fyrirkomulag verður haft á hlutunum og ætlað var. Lagt verður af stað sunnudaginn 17. febrúar kl. 16:00 og komið heim með seinni ferð mánudaginn 18. febrúar. (meira…)

Klúbbakvöld og þorrablót partur næturlífi þessa helgina.

Í Hvíta húsinu, Selfossi, verður Rosalegt klúbbakvöld. Félagar úr PLUGG’D-flokknum, DJ Frigore og DJ Joey D, munu svala þorsta dansþystra sunnlendinga með svaðalegri danstónlist. Heimildamaður Eftir 8 sagði að öllu yrði til tjaldað í Hvíta húsinu þetta kvöld. Frábært ljósashow, reykur og laser. Húsið opnar klukkan 23 og er aldurtakmarkið 18 ár. Fólk er hvatt […]

Olíufélögin sköðuðu Vestmannaeyjar verulega, skylda okkar að gæta hagsmuna sveitarfélagsins

Nú liggur það fyrir að Hæstiréttur hefur dæmt olíufélögin þrjú, Ker, Skeljung og Olís til að greiða Reykjavíkurborg tæpar 73 milljónir króna í bætur vegna tjóns sem borgin varð fyrir vegna ólögmæts samráðs olíufélaganna. Eins og áður hefur komið fram teljum við hjá Vestmannaeyjabæ einsýnt að olíufélögin hafi með samráði valdið sveitarfélaginu verulegum fjárskaða með […]

Símasamband komið í lag við Sparisjóðinn

Búið er að laga bilun í símkerfi Sparisjóðs Vestmannaeyja sem varð í morgun en ekki hefur verið hægt að ná sambandi við Sparisjóðinn. Nú er það hins vegar hægt. (meira…)

Veðurhæðin verður komin í 32 metra á Stórhöfða kl.18.00

Veðurhorfur fyrir daginn í dag og á morgun eru afar slæmar. Veðurstofan spáir því að um kl. 18.00 í dag verði vindhraði á Stórhöfða kominn í 32 metra af suð-austan með talsverðri rigningu. Á morgun verður áttin vestlæg og vindhraði eitthvað á þriðja tuginn. (meira…)

Stefnumóti DV og dv.is á Suðurlandi frestað

Vegna veðurs og aðstæðna verður stefnumóti DV og dv.is sem átti að fara fram í Hvíta húsinu á Selfossi í kvöld frestað. Ekki hefur verið ákveðin tímasetning á nýtt stefnumót. (meira…)

Vaktin á leið inn á hvert heimili í Eyjum

Vaktin er komin út og er nú í dreifingu hjá Póstinum. Í blaðinu ræðir m.a. Vilhelm G. Kristinsson við Sigurgeir Scheving, sem á farsælan feril í leiklistinni að baki en stendur nú í ströngu í ferðamannaþjónustu. Þá er rætt við Ægi Pál Friðbertsson, framkvæmdastjóra Ísfélagsins um nýja skipið, Valgerði Guðjónsdóttur, forstöðumann Visku um námsefnið á […]

Seinni ferð Herjólfs í dag slegin

Enn ein djúpa lægðin stefnir nú upp að landinu og mun valda mjög hvassri suðaustanátt, 25 – 30 metrum hér við suðurströndina og mikilli rigningu þegar liða tekur á daginn. Það hefur því verið ákveðið að slá af seinni ferð Herólfs. (meira…)

636 milljóna króna hagnaður hjá Vinnslustöðinni

Hagnaður Vinnslustöðvarinnar nam 636 milljónum króna á síðasta rekstarári en var 207 milljónir króna árið á undan. Heildartekjur félagsins voru 5618 milljónir króna og drógust saman um 175 milljónir króna frá fyrra ári. (meira…)

Tveimur fartölvum stolið

Tveir nemendur í Fjölbrautaskóla Suðurlands misstu fartölvur sínar í hendur þjófa sl. föstudag. Annarri tölvunni var stolið úr anddyri skólans en hinni á nemendagörðunum í Fosstúni. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.