Steingerður og Sædís fá uppsveitarbrosið 2007

Steingerður Hreinsdóttir og Sædís Íva Elíasdóttir, ráðgjafar hjá Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands, fengu Uppsveitabrosið 2007 en það var afhent í síðustu viku. Uppsveitabrosið er viðurkenning sem Uppsveitir Árnessýslu og ferðamálafulltrúi uppsveita veita árlega einstaklingi eða fyrirtæki. Þær stöllur fá brosið m.a. fyrir framúrskarandi samvinnu við ferðaþjónustuaðila á svæðinu. (meira…)

400 þúsund í sekt fyrir hraðakstur undir áhrifum fíkniefna

Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í vikunni karlmann á fertugsaldri í 400 þúsund króna sekt og svipti hann ökuréttindum í 14 mánuði eftir að hann var staðinn að því að aka bíl á 143 km hraða á Suðurlandsvegi í sumar undir miklum áhrifum amfetamíns og kannabisefna.Við húsleit hjá manninum fannst smáræði af fíkniefnum en einnig fundust óskráður […]

Hrunamenn unnu alla leiki

Fyrri umferðin í héraðsmóti karla í blaki var leikin á Hvolsvelli 24. janúar sl. og mættu fimm lið til leiks. Mótið gekk vel og var keppnisgleðin og léttleikin í fyrirrúmi eins og á undanförnum mótum.Lið Hrunamanna heldur áfram sigurgöngu sinni og vann alla leikina og eru með fullt hús stiga. Hamar og Samhygð eru með […]

Selfoss náði bikarnum eftir 10 ára hlé

Umf. Selfoss sigraði í heildarstigakeppni HSK fyrir árið 2007. Keppnin var æsispennandi á árinu og munaði aðeins 1,5 stigi á Selfoss og Dímon þegar mótum ársins var lokið. Þessi félög höfðu mikla yfirburði á önnur félög, Selfoss hlaut 207,5 stig en Dímon 206 stig. Hamar varð síðan í þriðja sæti með 115,5 stig. (meira…)

Minnti á þjóðveginn til Vestmannaeyja

Þessa stundina er verið að taka fyrir 148. mál á Alþingi en flutningsmenn tillögunnar eru þingmenn Frjálslyndra Kristinn H. Gunnarsson, Guðjón A. Kristjánsson, Grétar Mar Jónsson, Jón Magnússon. Í tillögunni er það lagt til að ríkið yfirtaki veggöngin undir Hvalfjörð og felli strax niður veggjaldið um göngin. Hanna Birna Jóhannsdóttir, sem tók sæti Grétars Mars […]

Herjólfur siglir kl. 17.00 frá �?orlákshöfn

Í morgun hefur verið ófært um Hellisheiði og einnig um Þrengslin. Herjólfur fór í morgun sína venjulega áætlun en vegna þessara aðstæða á fjallvegunum, hefur verið ákveðið að skipið fari ekki fyrr en kl. 17.00 frá Þorlákshöfn. (meira…)

Mikið fjör á öskudeginum

Eins og gefur að skilja var mikið líf og fjör í miðbæ Vestmannaeyja í gær á öskudeginum þegar krakkar fóru á milli fyrirtækja og verslana, sungu og fengu að launum eitthvað góðgæti. Fjölmargir komu við á Eyjasýn en allir krakkarnir voru myndaðir og er búið að setja myndirnar inn á myndasíðu Eyjafrétta. (meira…)

Sparisjóðurinn gefur endurskinsmerki

Sparisjóður Vestmannaeyja er þessa dagana að afhenda grunnskólabörnum og leikskólabörnum í Vestmannaeyjum endurskinsmerki. Ljósmyndari leit við í Hamarsskólanum í dag þar sem fulltrúi Sparisjóðsins, Gísli Gunnar Geirsson afhenti börnum í 2. bekk sitt merki. (meira…)

Eyjamenn afgreiddu Armena

Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Tryggvi Guðmundsson sáu til þess að íslenska karlalandsliðið sigraði Armena á Möltu í kvöld. Ísland lék þar í fjögurra landa móti en hafði tapað fyrstu tveimur leikjum sínum. Auk þeirra Gunnars og Tryggva var Heimakletturinn Hermann Hreiðarsson á sínum stað í vörn Íslands og sjálfsagt verið fyrirliði liðsins í leiknum. (meira…)

Aron var keppandi mótsins

Annað mót TSH-bikarmótaraðarinnar í taekwondo fór fram um síðustu helgi í Iðu á Selfossi. Alls tóku um 160 keppendur þátt frá ellefu félögum. Selfyssingar náðu góðum árangri og mörgum verðlaunum en Aron Bragason, Umf. Selfoss, var keppandi mótsins í barnaflokki. (meira…)

Frábær sigur Sigurðar og Yls

Gríðarleg spenna og góð stemmning var á fyrsta móti Meistaradeildar VÍS í hestaíþróttum sem fram fór á Ingólfshvoli í Ölfusi sl. fimmtudag, þar sem keppt var í fjórgangi. Sigurður Sigurðarson og Ylur frá Akranesi sigruðu nokkuð óvænt á mótinu. Þeir félagar fóru löngu leiðina á toppinn, höfnuðu í B úrslitum eftir forkeppnina en báru síðan […]

�?etta vilja börnin sjá…

Sögusetrið Hvolsvelli opnar á laugardaginn sýninguna „Þetta vilja börnin sjá. Á sýningunni má sjá myndskreytingar úr nýútkomnum íslenskum barnabókum. Myndlistarmennirnir sem sýna á sýningunni kepptu jafnframt um íslensku myndskreytiverðlaunin sem kennd eru við Dimmalimm. “ (meira…)

Meðgöngujóga á Selfossi

Meðgöngujóga hefst í Jógastöðinni Selfossi þann 14. febrúar n.k. Kennt verður einu sinni í viku á fimmtudögum kl. 16:30. Kenndar verða þægilegar jógastöður sem létta meðgönguna og undirbúa mæður fyrir fæðinguna. Flestar konur sem stundað hafa meðgöngujóga eru sammála því að jóga gerir þeim afar gott. Skráning stendur yfir í síma 898 2295 einnig hægt […]

Tilviljun réði því að maðurinn lenti í höndum björgunarsveitamanna

Alvarlegt slys varð við Sátu við Landmannahelli klukkan rúmlega eitt aðfaranótt sunnudags. Vélsleðamaður velti vélsleða sínum og fótbrotnaði illa auk þess sem hann hlaut áverka á andliti. Maðurinn skreið frá slysstaðnum að skála við Landmannahelli og tók ferðalagið eina klukkustund. Þar tóku björgunarsveitarmenn á móti honum en tilviljun ein réði því að þeir voru staddir […]

Eindæmum róleg vika að baki

Það var með eindæmum rólegt hjá lögreglu í vikunni sem leið og þurfti lögreglan lítið að hafa afskipti af fólki. Eins og undanfarnar vikur fór mesti tími lögreglu í að aðstoða fólk vegna þeirrar ófærðar sem er búin að vera á götum bæjarins. Nokkur umferðaróhöpp má rekja til ófærðarinnar á götum bæjarins, en alls voru […]

Fjör í bænum á öskudegi

Það er mikið líf og fjör í miðbæ Vestmannaeyja þessa stundina en nú ganga börn í fyrirtæki, syngja fyrir þá sem þar eru og fá eitthvað sniðugt fyrir. Fjölmargir hafa komið við á ritstjórn Frétta en myndum af börnunum verður komið á myndasíðu Eyjafrétta síðar í dag. Allskonar fígúrur sjást á sveimi, allt frá prinsessum […]

Ísfélagið lætur smíða annað skip fyrir sig

Ísfélag Vestmannaeyja hf samdi sl. haust við skipasmíðastöðina ASMAR í Talcahuano í Chile um smíðarétt á öðru uppsjávarskipi. Félagið hefur ákveðið að nýta sér þennan rétt og undirritaði smíðasamning fyrir skemmstu. Samningurinn kveður á um að ASMAR annist smíði á nýju og fullkomnu uppsjávarskipi fyrir Ísfélagið sem verður afhent á fyrri hluta árs 2011. (meira…)

Dans á rósum í útrás

Eyjastuðbandið Dans á Rósum lagði á dögunum land undir fót og hélt í víking til Brüssel í Belgíu. Þar var Þorrablót og var sveitin fengin til að halda uppi stuðinu. Eyjabandið var ekki í vandræðum með það og spilaði eins lengi og lögregluyfirvöld borgarinnar leyfðu. Sveitin stillti sér svo upp ásamt ræðumanni kvöldsins, Össuri Skarphéðinssyni, […]

Ferskur fiskur – frá veiðum til neytenda

Fimmtudaginn 7 febrúar klukkan 16:30 verður haldin opinn fundur í Kaffi kró um virðiskeðju gámafisks sem seldur er í Bretlandi. Á fundinum verða fulltrúar Matís, Atlantic Fresh, Seafish og kaupenda í Bretlandi með framsögu, en á eftir verða almennar umræður. (meira…)

Spurt og svarað

Vestmannaeyjar og allt sem heyrir til þeirra er Árna Johnsen hugleikið. Nú spyr hann samgönguráðherra í þinginu: „Eru mörg dæmi um að Flugfélag Vestmannaeyja hafi flogið á milli lands og Eyja á sl. sex mánuðum þegar Flugfélag Íslands hefur ekki flogið? og má vænta svars innan nokkurra daga. Í takt við leikreglur í pólitíkinni spyr […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.