Svellkaldir Skagamenn unnu 3:2

Knattspyrnulið ÍBV lék æfingaleik gegn úrvalsdeildarliði ÍA á laugardag en leikurinn fór fram í hinni glæsilegu knattspyrnuhöll þeirra Skagamanna, Akraneshöll. Knattspyrnuhöllin hefur allt það sem góð knattspyrnuhús þurfa að bera fyrir utan upphitun enda var 8 stiga frost þegar leikurinn fór fram, en þá hafði hlýnað um fjórar gráður eftir að ljósin voru kveikt. (meira…)
Veður- og umhverfismælingastöð í Surtsey

Á fundi bæjarráðs í síðustu viku lá meðal annars fyrir erindi frá Náttúrufræðistofnun Íslands um að komið verði upp veður- og umhverfismælingastöð í Surtsey. Erindið er dagsett 10. janúar sl. þar sem óskað er eftir aðkomu Vestmannaeyjabæjar að veður- og umhverfismælingastöð í Surtsey til uppsetningar árið 2008. (meira…)
Eyjamenn eiga enn góða möguleika á sæti í úrslitum

Körfuknattleikslið ÍBV vann góðan útisigur á laugardaginn þegar liðið lagði KKF Þóri að velli 79:95. Eyjamenn eiga því enn góðan möguleika á að komast í úrslitakeppni 2. deildar en ÍBV er í þriðja sæti B-riðils með tíu stig, jafn mörg stig og Álftanes sem er í öðru sæti og tveimur stigum á eftir Mostra sem […]
Sjúkraflugið
Enn og aftur hafa embættismenn í Reykjavík ákveðið að skerða þjónustu sem við eigum rétt á. Líklega út af því að það leit betur út í excel skjalinu. Það var hægt að spara einhverjar krónur á því að gambla” með sjúkraflugið. Þvílík endemis vitleysa. Hver ber ábyrgðina? Ef svo illa vill til að einhver deyr […]
Bakkafjöruhöfn í útboð í mars

Framkvæmdir vegna Bakkafjöruhafnar eiga að hefjast á þessu ári. Heildarkostnaður við hafnargarða og varnargarða er áætlaður um 2,1 milljarður króna auk vegagerðar. Er Bakkafjöruhöfn stærsta einstaka verkefni Siglingamálstofnunar frá upphafi og stærsta hafnargerðarverkefni á Íslandi síðan ráðist var í gerð aðal hafnargarða Reykjavíkurhafnar árið 1917. (meira…)
Eyjamenn hjakka enn í sama farinu

Karlalið ÍBV í handbolta virðist ekki ætla að komast í gang í vetur en liðið lék afar illa fyrir áramót og er aðeins með tvö stig á botni deildarinnar. Stuðningsmenn liðsins vonuðust eftir kraftaverki eftir pásuna sem gerð var á Íslandsmótinu vegna Evrópumóts landsliða en svo virðist sem liðið hjakki enn í sama farinu og […]
Róðurinn þyngist á botninum
Róður Hamars þyngdist verulega á botni Iceland-Expressdeildar karla í körfuknattleik eftir tap í uppgjöri botnliðanna sl. fimmtudag. Hamar mætti Fjölni á útivelli og sigruðu heimamenn, 77-74, eftir spennuþrungnar lokamínútur. (meira…)
Eyjamaður yfir Hagstofunni

Geir H. Haarde, forsætisráðherra hefur skipað Ólaf Hjálmarsson, skrifstofustjóra í embætti hagstofustjóra til næstu fimm ára frá og með 1. mars. Níu sóttu um starfið. Ólafur er sonur hjónanna Hjálmars Þorleifssonar, rafvirkja og Kristínar Björnsdóttur frá Bólstaðarhlíð. Æskuslóðir Ólafs voru austur í Grænuhlíð en þar bjuggu foreldrar hans fram að gosi. Systkini Ólafs eru Inga, […]
Stanslaust stuð með Páli �?skari

Skífuþeytarinn, diskókóngurinn og glyspopparinn Páll Óskar Hjálmtýsson mun skemmta í Vestmannaeyjum á föstudag. Ekki dugar minna en tvö böll sama kvöldið til að stuðið skili sér almennilega en klukkan 21 hefst dansleikur fyrir elstu bekki grunnskólans en Féló heldur ballið. Á miðnætti er svo komið að nemendum Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum að reima á sig diskóskóna […]
�?rír brasilískir leikmenn í ÍBV

Þrír brasilískir leikmenn hafa æft með knattspyrnuliði ÍBV undanfarið. Búið er að gera reynslusamning við leikmennina í mánuð og að honum liðnum verður tekin ákvörðun um hvort samið verði við þá. Alexandre da Silva Cerdeira er 27 ára sóknarmaður sem var m.a. í herbúðum Vasco de Gama, skoska úrvalsdeildarliðsins Dundee og var fastamaður í liði […]
Gáfu bæði sjúkrahúsinu og dvalarheimili aldraðra

Slysavarnadeildin Eykyndill kom færandi hendi bæði á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja og Hraunbúðir á mánudag. Stjórn Eykyndils afhenti Karli Björnssyni, yfirlækni Heilsugæslunnar, tæki sem koma að góðum notkun við stofnunina. Eykyndilskonur gáfu gifssög og brennara til að brenna fyrir æðar og fjarlægja húðbreytingar. Einnig gáfu Eykyndilskonur eyrnasjá og augnskoðunartæki sem nýtist vel til að skoða skemmdir vegna […]
Hótað að kvarta við Umboðsmann Alþingis

Opus lögmenn hafa sent bæjarstjórn Vestmannaeyja bréf fyrir hönd Bergs Sigmundssonar, eiganda Vilbergs kökuhúss. Er það vegna ákvörðunar umhverfis- og skipulagsráðs að banna bifreiðastöður fyrir framan húsnæði fyrirtækisins að Bárustíg 7. Bréfið er ítrekun erinda frá maí, september og nóvember á síðasta ári þar sem farið er fram á endurskoðun á þessari ákvörðun ráðsins. (meira…)
Bætt þjónusta við bæjarbúa

Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum hefur opnað heimasíðu á slóðinni http://www.hsve.is Þar er að finna allar helstu upplýsingar um starfssemi og þjónustu stofnunarinnar, komur sérfræðinga, tímabókanir, neyðarþjónustu, laus störf, aðrar tilkynningar og fréttir. Það er von okkar að heimasíðan verði til að bæta þjónustu og upplýsingaflæði til bæjarbúa. (meira…)
�?ryggismál verða hert
Jólasveinanefnd Umf. Selfoss fundaði á dögunum þar sem farið var yfir öryggismál. Þetta var gert í kjölfar þess að Þröstur Ingvarsson, brennustjóri, brenndist þegar sprenging varð er kveikt var í bálkestinum þann 6. janúar sl. (meira…)
FSu fær Króata

1. deildarlið FSu í körfuknattleik hefur fengið Króatann Ante Kapov til liðs við sig. Kapov er 31 árs og tveir metrar á hæð og mun því nýtast liðinu vel inni í teig. (meira…)
Jóhann �?lafur í Selfoss
Samkvæmt heimildum blaðsins hefur markvörðurinn Jóhann Ólafur Sigurðsson ákveðið að ganga í raðir 1. deildarliðs Selfoss frá Fylki þar sem hann hefur verið varamarkvörður undanfarin ár.Jóhann er 22 ára gamall, uppalinn á Selfossi, og hefur m.a. leikið með yngri landsliðum Íslands. (meira…)
�?rskurður Mannréttindanefndarinnar á íslensku

Fiskistofa hefur látið þýða umdeildan úrskurð Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna yfir á íslensku. Hér má sjá þýðinguna. (meira…)
Fjölskyldan saman gaman

Gera – teikna – lita – mála. Hvaða hugrenningar vakna þegar listaverk eru skoðuð? Klæjar ykkur að prófa sjálf? Á sýningunni Stefnumót við safneign – listir·leikur·lærdómur, hefur gestum verið boðið að reyna sig með litum og nokkra sunnudaga hafa myndlistarkennarar verið þeim til aðstoðar. Ekki er krafist neins undirbúnings og litir og pappír eru á […]
100 ára afmæli á vordögum
Aðalfundur Umf. Baldurs í Hraungerðishreppi var haldinn í byrjun nýs árs. Mæting var góð eða 26 félagsmenn sem ræddu af kappi málefni hins gamla félags en það fagnar 100 ára afmæli á vordögum. Í tilefni af því var snædd dýrindis ísterta skreytt með merki félagsins. Tveir nýir félagar gengu í félagið. (meira…)
�?órður frá Skarði nýr stallari

Stjórnarskipti voru hjá Mími, nemendafélagi Menntaskólans að Laugarvatni í síðustu viku. Þórður Sigurbjartsson, frá Skarði í Þykkvabæ, tekur við embætti stallara frá sveitunga sínum, Arnari Ármannssyni. (meira…)