Á slóðum Jane Austen
Ferðasaga leshrings á Suðurlandi sem fór á slóðir Jane Austen til Suður-Englands síðastliðið sumar verður flutt og sýnd í Bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi fimmtudagskvöldið 31. janúar 2008 kl. 20.15. Hlíf Arndal forstöðumaður Bókasafnsins í Hveragerði flytur ferðasöguna og sýnir myndir úr ferðinni , talar um rithöfundinn Jane Austen og skáldverk hennar sem ekki eru […]
Byssusýning 2008 í Veiðisafninu á Stokkseyri
Starfsár Veiðisafnsins á Stokkseyri 2008 hefst með árlegri byssusýningu í samvinnu við verslunina Vesturröst laugardaginn 2. og sunnudaginn 3. febrúar 2008 frá kl. 11-18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 Stokkseyri. Verður fjölbreytt úrval skotvopna svo sem haglabyssur, rifflar, vélbyssur, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu frá seinni heimstyrjöld til sýnis og einnig framhlaðningar svo eitthvað sé nefnt. […]
Kirkjuskólinn í Mýrdal
Kirkjuskólinn verður með samveru í Grunnskóla Mýrdalshrepps laugardaginn 2. febrúar 2008, kl. 11:15. Nýjar bækur með skemmtilegum myndum og fróðlegum texta. Verið nú dugleg að mæta. Sóknarprestur. (meira…)
ALFA-námskeið í Selfosskirkju
Á næstunni er fyrirhugað að halda svonefnt ALFA-námskeið í Selfosskirkju. Námskeiðið verður kynnt á sérstökum fundi, sem haldinn verður í safnaðarheimil Selfosskirkju þriðjudaginn 5. febrúar næstkomandi og hefst hann kl. 19:30. (meira…)
Lifandi kór í aldarfjórðung !

Í febrúar næstkomandi verða liðin 25 ár frá því að kór var stofnaður við Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Fáir kórar við framhaldsskóla hafa náð svo háum aldri því framhaldsskólakórum hættir til að lognast útaf annað slagið. En kór FSu hefur aldrei lagst í dvala eða gefið upp öndina! Raunar er bara vitað um einn framhaldsskólakór […]
Dæmdir fyrir dekkjastuld
Héraðsdómur Suðurlands fann í vikunni fimm karlmenn á aldrinum 17 til 21 árs seka um að stela dekkjum á felgum af bíl, sem stóð á Bílasölu Selfoss í júlí í fyrra. Tveir mannanna voru dæmdir til að greiða sekt fyrir brotið en refsingu þriggja var frestað. (meira…)
Blómlegt starf og fjölmargt framundan

Félag um Tyrkjaránssetur í Vestmannaeyjum heldur aðalfund sinn laugardaginn 2. febrúar nk. kl. 17 í Bókasafninu. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf en auk þess verður horft til framtíðar og næstu skref í starfi félagsins ákveðin. (meira…)
Engin loðna hefur fundist í tvær vikur
Þrjú fiskiskip og eitt hafrannsóknaskip eru að leita að loðnu austur af landinu en engin afli hefur fengist í rúmar tvær vikur. Togarasjómenn hafa heldur ekki séð neinar vísbendingar um loðnu, en í venjulegu árferði ætti veiðin að vera komin í fullan gang. Þar sem hafrannsóknaskipið hefur ekkert fundið, er ekki enn grundvöllur til að […]
Með smá hnút í maganum

Hanna Birna Jóhannsdóttir, stuðningsfulltrúi í Vestmannaeyjum mun taka sæti sem varamaður á Alþingi á næstu dögum. Hanna Birna, sem var í þriðja sæti framboðslista Frjálslyndra mun leysa af Grétar Mar Jónsson, þingmann af hólmi en Grétar er á leið í veikindafrí. Óskar Þór Karlsson, sem sat í öðru sæti listans, hefði að öllu jöfnu tekið […]
Flugfélag Vestmannaeyja með lægsta tilboðið

Flugfélag Vestmannaeyja átti lægsta tilboðið í sjúkraflug á Vestmannaeyjasvæðinu en tilboð í verkið voru opnuð hjá Ríkiskaupum í dag. Kostnaðaráætlun vegna grunngjalds sjúkraflugsins var samkvæmt kostnaðaráætlun tæpar 29 milljónir en tilboð FV var upp á tæpar 28. FV skilaði inn tveimur tilboðum en tvö önnur flugfélög skiluðu inn tilboði í sjúkraflugið, Fjarðarflug sem bauð tæpar […]
�?g sendi inn eina spurningu

Af gefnu tilefni ein spurning frá mér: Er það ekki rétt skilið hjá mér að samkvæmt mælingum ykkar í Bakkafjöru, verði skipið að vera lágmark 67 metra að lengd, en samkvæmt bæklingi sem samgönguráðherra dreifði hér í Eyjum um síðustu helgi er gert ráð fyrir því að skipið verði aðeins 62 m.? Gaman væri að […]
Guðbjörg með fimm í mikilvægum sigri

Guðbjörg Guðmannsdóttir var markahæst hjá Frederikshavn FOX með 5 mörk þegar lið hennar vann Team Esbjerg, 23:19, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik um helgina. Þetta var gífurlega dýrmætur sigur fyrir Frederikshavn sem komst með honum úr fallsæti og er nú með 10 stig eftir 15 leiki en fjögur lið eru fyrir neðan, öll með 9 […]
Losuðu rær á hjólbarða sem datt undan bílnum þegar keyrt var af stað
Lögreglan hafði í nógu að snúast í vikunni sem leið við að hjálpa fólki sem komst ekki leiðar sinnar sökum veðurs og ófærðar. Jafnframt var Björgunarfélagið lögreglu til aðstoðar við að ferja fólk á milli staða og losa bifreiðar sem sátu fastar. Ein eignaspjöll voru tilkynnt til lögreglu í vikunni sem leið en um var […]
Íslandsmeistaratitill til Eyja

Taflfélag Vestmannaeyja sendi um helgina hóp barna á Íslandsmót barna í skák sem haldið var í Reykjavík. Alls voru keppendur á mótinu 100 og þar af voru 18 frá Vestmannaeyjum sem sýnir hversu blómlegt starf skákíþróttarinnar er í Eyjum. Kristófer Gautason, varð Íslandsmeistar ogRóbert Aron Eysteinsson og Ágúst Már Þórðarson efstir í sínum aldursflokki. Kristófer […]
ÍBV tapaði úrslitaleiknum

Karlalið ÍBV í knattspyrnu tapaði í dag fyrir Val í úrslitaleik Íslandsmótsins í Futsal innanhúsknattspyrnu. Lokatölur urðu 7:2 Valsmönnum í vil en Hlíðarendaliðið skoraði þrjú síðustu mörk leiksins. Leikurinn þótti hins vegar bráðfjörugur eins og lesa má í umfjöllun á vef knattspyrnusambandsins en lesa má umsögnina hér að neðan. Þórarinn Ingi Valdimarsson skoraði bæði mörk […]
ÍBV mætir Val í úrslitaleik
Karlalið ÍBV leikur til úrslita í Íslandsmótinu í Futsal, sem er ný tegund innanhússknattspyrnu. Í gær sigraði ÍBV Víking frá Ólafsvík í átta liða úrslitum og svo Víði úr Garði í undanúrslitum, eftir æsispennandi leik. Úrslitaleikurinn hefst klukkan 16.00 og fer fram í Laugardalshöll. (meira…)
Herjólfur siglir ekkert í dag

Nú hefur verið tekin ákvörðun um að Herjólfur siglir ekkert í dag vegna veðurs. Fyrri ferð skipsins var aflýst en athuga átti með síðari ferð síðar í dag en vegna óveðursins sem nú geysar og ófærðar á vegum uppi á landi, hefur verið ákveðið að aflýsa einnig síðari ferðinni. (meira…)
�?egar hafa margar góðar ábendingar borist

„Við höfum nú þegar fengið þónokkur viðbrögð og margar góðar ábendingar og ég hvet Vestmannaeyinga til þess að skoða gögnin á Netinu og vera óhræddir við að notfæra sér þetta tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri,“ sagði Sigurður Áss Grétarsson, forstöðumaður hafnasviðs Siglinga stofnunar, í viðtali við Vaktina, en útboðsgögn væntanlegrar Bakkafjöruferju […]
Brottför Herjólfs frá �?orlákshöfn seinkað til 14.00

Herjólfur mun aðeins fara eina ferð í dag en skipið er nú í Þorlákshöfn. Skipið fór samkvæmt áætlun frá Vestmannaeyjum klukkan átta í morgun en vegna ófærðar í þrengslum hefur brottför skipsins úr Þorlákshöfn verið frestað til klukkan 14.00 í dag. Síðari ferð hefur þess vegna verið aflýst. (meira…)
Vaktinni ekki dreift með póstinum vegna ófærðar
Vegna erfiðrar færðar í Vestmannaeyjum í dag er óvíst hvort hægt verði að bera út póst fyrr en á mánudag. Af þeim sökum verður Vaktin ekki borin út þessa vikuna en þess í stað mun blaðið liggja í öllum helstu verslunum bæjarins. Auk þess er hægt að lesa blaðið hér á netinu. Í Vaktinni er […]