Jólatónleikar í Landakirkju í kvöld

Jólatónleikar Kórs Landakirkju verða í kvöld í Landakirkju. Einsöngvarar með kórnum eru Sigrún Hjálmtýsdóttir og Helga Jónsdóttir og stjórnandi verður Guðmundur H. Guðjónsson. Tónleikarnir hefjast kl 20:30.     (meira…)

Sólarlag yfir Álsey

Veðrið sem gengið hefur yfir suður og vesturlandið að undanförnu er helsta umræðuefni landans þessa dagana, enda veðrahamurinn slíkur að fólki stendur ekki á sama. Veðrið getur líka sýnt á sér ljúfari hliðar og verið dásamlegt í allri inni dýrð. Egill Egilsson er naskur á hin ýmsu tilbrigði og þessari einstaklega fallegu mynd náði hann […]

Akureyri lagði Eyjamenn

Akureyri lagði ÍBV 40:26 í N1 deild karla í handknattleik í dag. Staðan í leikhléi var 19:14 fyrir Akureyri sem skaut upp fyrir Aftureldingu í þriðja nesta sæti deildarinnar. Afturelding er þess stundina að leika við Stjörnuna og gæti farið upp fyrir Akureyri á ný.. (meira…)

ÍBV tapaði úrslitaleiknum stórt

Akureyri náði í dag sex stiga forystu á ÍBV í botnbaráttu N1 deildarinnar með öruggum sigri á heimavelli. Lokatölur urðu 40:26, Akureyri í vil en staðan í hálfleik var 19:14. Akureyringar eru í sjötta sæti deildarinnar með átta stig, Afturelding í sjöunda með sex stig og ÍBV er enn sem fyrr í neðsta sæti með […]

Gæsluvarðhalds krafist vegna brunans í Fiskiðjunni

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum mun í dag fara fram á í Héraðsdómi Suðurlands að maður sem er í haldi lögreglunnar vegna brunans í Fiskiðjunni í fyrrinótt verði úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. (meira…)

Gæsluvarðhalds krafist í kjölfar brunans í Eyjum

Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum mun í dag fara fram á í Héraðsdómi Suðurlands að maður sem er í haldi lögreglunnar vegna brunans í Fiskiðjunni í fyrrinótt verði úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknarhagsmuna. Í tilkynningu frá lögreglunni í Eyjum í dag segir ennfremur: Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur verið að rannsaka upptök brunans í Fiskiðjunni sem tilkynntur var […]

Hægt að fylgjast með beinni textalýsingu af leiknum fyrir norðan

Nú fyrir skömmu hófst leikurinn mikilvægi í N1 deild karla milli Akureyrar og ÍBV en leikurinn fer fram norðan heiða. Liðin hafa skipst á að skora fyrstu mínúturnar en þegar þetta er skrifað eru tíu mínútur búnar og staðan 6:4 fyrir norðanmenn. Hægt er að fylgjast með beinni textalýsingu á heimasíðu Akureyrarliðsins en linkur inn […]

Af eldsvoðum í Vestmannaeyjum

Athyglisvert er að skoða eldsvoða í Eyjum frá desember á síðasta ári til desember á þessu ári, sem tengja má við íkveikjur eða óvarkárni með eld. (meira…)

Sjóvá bauð slökkviliðsmönnum og eiginkonum í mat

Eins og Vestmannaeyingar hafa fengið að kynnast undanfarin misseri, er hverju bæjarfélagi nauðsynlegt að eiga öflugt slökkvilið. Mikið hefur reynt á slökkviliðið undanfarna mánuði en Slökkvilið Vestmannaeyja hefur staðið undir hverri þolrauninni á fætur annarri. Tryggingafélagið Sjóvá metur framgöngu strákanna og verðlaunaði vaskri framgöngu þeirra með því að bjóða þeim og mökum á jólahlaðborð á […]

Ekki allt sem sýnist

Listaverkin eru af mörgum toga og ekki allt sem sýnist. Sumir geta séð myndir í landslagi eða sjónum. Sjálfsagt ræður þar hugmyndaflug viðkomandi og listræni. Hér eru nokkrar athyglisverðar myndir sem þið ættuð að skoða. (meira…)

Eyjar í landsfjölmiðlunum 355 sinnum á árinu

Á heimasíðu bæjarstjórans Elliða Vignissonar, kemur fram, að sýnileiki Vestmannaeyjabæjar í fjölmiðlum það sem af er árinu 2007 er mjög ásættanlegur. Samkvæmt úttekt hefur Vestmannaeyjabær verið í fréttum 355 sinnum á þessu ári. 136 sinnum í ljósvakamiðlunum og 219 sinnum í prentmiðlunum. (meira…)

Vestmannaeyjabær sýnilegur í fjölmiðlum

Sýnileiki er sveitarfélögum og fyrirtækjum afar mikilvægur.  Það er því fróðlegt að skoða hversu sýnilegur Vestmannaeyjabær hefur verið í fjölmiðlum núna í upphafi desember.  Samkvæmt úttekt á þessu hefur Vestmannaeyjabær nú þegar verið í fréttum 355 sinnum á þessu ári, 136 sinnum í ljósvakamiðlum og 219 sinnum í prentmiðlum.   Hér er átt við miðla aðra […]

Kennari sagður slíta fræðslu úr samhengi

Barnaskólakennari telur fyrirlesara Alnæmissamtakanna hafa verið utanvelsæmismarka á fræðslufundi með unglingum í Vestmannaeyjum. Fulltrúisamtakanna segir kennarann slíta orð fyrirlesarans úr samhengi. Birna Þórðardóttir, framkvæmdastjóri fræðsluverkefnis Alnæmissamtakanna, segir Gísla Óskarsson, barnakennara í Vestmannaeyjum, slíta orð fyrirlesara samtakanna úr samhengi í kvörtunum sínum um fræðslu sem Alnæmissamtökin veittu unglingunum í níunda og tíunda bekk í Eyjum í […]

Veiðigjald útgerðarinnar lækkað

Útgerðin sparar 300 milljónir króna með lækkun veiðigjalds á yfirstandandi fiskveiðiári, samkvæmt tillögu meirihluta sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis. Nefndin leggur til að veiðigjald á aðrar tegundir en þorsk verði lækkað á sama tíma og veiðigjald á þorsk er fellt niður. (meira…)

�?rskurðaður í síbrotagæslu

Maðurinn sem handtekinn var á innbrotsvettvangi í Ísakoti, ofan Búrfellsvirkjunar þann 29. nóvember sl. hefur nú verið ákærður fyrir tíu brot, nytjastuld, þjófnað, húsbrot og hylmingu. Ákæran var þingfest í dag og játaði maðurinn brot sín. Gæsluvarðhald yfir manninum var framlengt til 4. janúar nk. en þó ekki lengur en fram að því að dómur […]

Einn handtekinn í kvöld vegna brunans í Fiskiðjunni

Lögregla sendi frá sér tilkynningu nú undir kvöld vegna brunans í Fiskiðjunni. Þar kemur fram að lögregla hafi handtekið einn mann nú undir kvöldið sem lögregla telur hafa verið í húsinu stuttu fyrir brunann. Fjölmargir hafa verið yfirheyrðir og hefur sumum verið haldið á lögreglustöðinni í allan dag. Fréttatilkynninguna má lesa í heild sinni hér […]

Handtekinn vegna bruna í Fiskiðjunni

Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók nú undir kvöld mann sem talinn er hafa verið í gamla Fiskiðjuhúsinu við Ægisgötu skömmu áður en eldur kom þar upp í nótt. Skýrsla verður tekin af honum í kvöld vegna málsins. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að hún hafi í dag yfirheyrt um tíu unga menn í tengslum við […]

Margir yfirheyrðir vegna brunans í Eyjum

Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur í dag yfirheyrt hátt í tíu unga menn vegna brunans í gömlu Fiskiðjunni í nótt. Talið er að kveikt hafi verið í, þótt ekki sé það óyggjandi, en enginn ákveðinn liggur undir grun um verknaðinn. Tilkynning um eldinn barst á fjórða tímanum í nótt. Allir sem lögreglan hefur haft í haldi […]

Jólapartý Minniboltans

Á morgun laugardag, er glæsilegt jólapartý hjá Minniboltanum. Verður farið í ýmsa skotleiki eins og troðslu, víta og 3ja stiga keppni sem og hörku þrautakeppni verður í gangi. Einnig verður farið í stingerkeppni og verða flott verðlaun fyrir hinar og þessar þrautir. Dregið verður í happdrætti og einnig verða veitt verðlaun fyrir bestu mætingarnar það […]

Jólaball fyrir stóru krakkana

Á morgun, laugardagskvöld, verður hljómsveitin OFL með ball á Draugabarnum á Stokkseyri. Þetta er í fyrsta skipti í fjögur ár sem hljómsveitin kemur saman í upprunalegri mynd. „Þetta er jólaball fyrir stóru krakkana,” segir Helgi Valur Ásgeirsson, gítarleikari hljómsveitarinnar. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.