Fjórir í haldi vegna brunans í Fiskiðjunni
Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók fjóra karlmenn sem grunaðir eru um að hafa kveikt í gömlu Fiskiðjunni í nótt. Um er að ræða fjóra karlmenn um tvítugt. Skýrsla verður tekin af þeim síðar í dag. (meira…)
Vestmannaeyjar sleppa við mesta óveðrið
Svo virðist sem Vestmannaeyjar ætli að sleppa við mesta óveðrið en mikið óveður er nú frá Suðurnesjum og vestur eftir landinu. Ekkert ferðaveður er í dag en báðum ferðum Herjólfs hefur verið frestað. Klukkan 10 í morgun mældist vindur 11 metrar á sekúndu í Vestmannaeyjabæ samkvæmt Textavarpinu en meðalvindur á Stórhöfða er nú 31 metri. […]
Fjórir í haldi grunaðir um íkveikju

Lögreglan í Vestmannaeyjum handtók fjóra karlmenn sem grunaðir eru um að hafa kveikt í gömlu Fiskiðjunni í nótt. Um er að ræða fjóra karlmenn um tvítugt. Skýrsla verður tekin af þeim síðar í dag. Tilkynning um að eldur væri laus á annarri hæð í gamla frystihúsinu barst slökkviliði um kl. 3:30 í nótt. Slökkviliðsmenn voru […]
Söguleg fjárhagsáætlun, en vandi fylgir vegsemd hverri

Nú fyrr í kvöld fór fram fyrri umræða um fjárhagsáætlun samstæðu Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2008. Óhætt er að fullyrða að aldrei í sögu sveitarfélagsins hefur slík áætlun verið lögð fram. Það er alveg ljóst að slagkraftur samfélagsins til framtíðar er mikill. Það er líka ljóst að vandi fylgir vegsemd hverri. Niðurstöður fjárhagsáætlunar samstæðu sýna rekstrarhagnað […]
Báðum ferðum Herjólfs aflýst
Nú hefur verið tekin ákvörðun þess efnis að báðum ferðum Herjólfs hefur verið aflýst og mun skipið því ekki sigla seinni partinn. Fyrri ferð Herjólfs var aflýst í morgun en næsta ferð skipsins verður þá farin samkvæmt áætlun á morgun, laugardag. (meira…)
Grunur um íkveikju í Eyjum

Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum leikur grunur á að um íkveikju hafi verið að ræða þegar kviknaði í gamla Fiskiðjuhúsinu í Vestmannaeyjum í nótt. Tilkynnt var um eldinn um klukkan hálf fjögur í nótt en þegar slökkvilið kom á vettvang reyndist eldurinn ekki mikill þó að talsverður reykur hafi myndast. Vitað er […]
Engar samgöngur til né frá eyjum í dag

Samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands hefur verið tekin ákvörðun um að aflýsa öllu flugi félagsins til Vestmannaeyja í dag vegna veðurs. Einnig hefur verið ákveðið að Herjólfur fari ekki seinniferð sína í dag vegna veðurs. (meira…)
Vitlaus mynd í fasteignaauglýsingu

Vegna mistaka birtist vitlaus mynd í fasteignaauglýsingu í Vaktinni fyrir tveimur vikum. Þar var auglýst til sölu húsnæði við Bárustíg 1 en mynd birtist af rangri hlið hússins, sem ekki er til sölu. Myndin birtist af versluninni Jazz, sem er ekki til sölu. (meira…)
Athugað með seinniferð Herjólfs kl 14:00

Skrifstofa Herjólfs hefur sent frá sér tilkynningu um að athugað verður með seinniferð Herjólfs í dag klukkan 14:00. Farþegar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í síma 481-2800 til að fá frekari upplýsingar. (meira…)
Eldur kom upp í Fiskiðjunni

Eldur kviknaði í gömlu frystihúsi í Vestmannaeyjum í nótt. Að sögn lögreglu var tilkynnt um eldinn um kl. 3:30. Slökkviliðsmenn fóru á vettvang skömmu síða og slökktu eldinn sem var ekki mikill. Talsverður reykur myndaðist hinsvegar. Frystihúsið hefur ekki verið í notkun lengi. Að sögn lögreglu er ekki mikið um verðmæti í Fiskiðjunni gömlu. Hinsvegar […]
Fyrri ferð Herjólfs aflýst í dag

Vegna óveðursins sem nú geysar hefur verið ákveðið að aflýsa fyrri ferð Herjólfs en Herjólfur átti að leggja úr höfn nú rúmlega átta. Þá verður athugað með síðari ferð skipsins klukkan 14:00. Vindhraði á Stórhöfða klukkan sjö í morgun var 29 metrar á sekúndu en mestu hviður fóru upp í 38 metra. (meira…)
Mikill eldur kom upp í Fiskiðjunni í nótt

Rétt uppúr klukkan hálf fjögur í nótt var slökkvilið í Vestmannaeyjum kallað að húsi Fiskiðjunnar, vestuhúsi sem áfast er gamla Ísfélaginu, og var mikill eldur í sal á annarri hæð þegar að var komið. Ekki er vitað um eldsupptök en lögreglan rannsakar mannferðir í Fiskiðjunni í nótt. (meira…)
Kvörtum bara yfir einhverju…
Það er varla hægt að lýsa því með orðum hvað maður hefur komist af mörgu hvernig fólk hagar sér í verslunum, bara með því að vinna í nokkra mánuði í Húsasmiðjunni. Það er ekki hægt að segja það nógu skýrt hvað margir eru rosalega þroskaheftir sem koma þarna niður eftir. Í fyrsta lagi er ekki […]
Ég hef reyndar alltaf frekar vilja líta á mig sem fastan fyrir heldur en að vera eitthvað grófur leikmaður

Í dag birtum við leikmannakynningu úr körfuboltanum en sá sem gefur lesendum eyjar.net upplýsingar um sjálfan sig er Baldvin Johansen. Baldvin starfar sem fjárreiðustjóri hjá Ísfélagi Vestmannaeyja en Baldvin er einn leikreyndasti leikmaður ÍBV í körfubolta. Fullt nafn: Baldvin Johnsen Fæðingarár -og staður: 11. nóvember 1976, Reykjavík. Fjölskylduhagir & foreldrar: Giftur Aldísi Gunnarsdóttur eyjamær og saman […]
70. grunnskólabörn heimsækja slökkviliðið nú á aðventunni.
Eins og undanfarin ár heimsóttu okkur 8 ára grunnskólabörn úr Hamarsskólanum til að fræðast um eldvarnir í heimahúsum. Farið var yfir þær hættur sem geta skapast af kertaskreytingum og hvernig skuli bregðast við þeim hættum. Farið yfir þau öryggistæki á heimilum sem eru nauðsynleg eins og reykskynjarar, eldvarnateppi, slökkvitæki og einnig þarf fjölskyldan að ræða […]
Ráðinn í menntamálaráðuneytið

Ráðinn í menntamálaráðuneytiðSigurður Sigursveinsson, fráfarandi skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurlands, tekur við starfi í Menntamálaráðuneytinu þann 1. febrúar næstkomandi. Þar mun hann vinna að verkefnisstjórn við gerð skólasamninga við einstaka framhaldsskóla. (meira…)
Slæm veðurspá fyrir morgundaginn
Stjórnendur m.s. Herjólfs hafa sent frá sér tilkynningu þar sem segir að útlit sé fyrir að skipið sigli ekki fyrri ferð sína í fyrramálið, vegna slæmrar veðurspár. Samkvæmt veðurspá belgings.is verður komið snælduvitlaust veður seinnipartinn í nótt og mun standa eitthvað fram á daginn. (meira…)
Vildi hafa lifandi gínur í verslunarglugganum sínum

Enginn miskunn er bók um lífshlaup ævintýramannsins Eyþórs Þórissonar, núverandi veitingamanns á Seyðisfirði. Hann hefur lengst af verið kvensamur og drykkfeldur en komið ótrúlega víða við. Eyþór dvaldi um nokkurra ára skeið í Vestmannaeyjum og setti sinn svip á bæjarlífið. Hann rak hér verslun, stundaði sjóinn og sitthvað fleira. Í bókinni fjallar hann um kynni […]
Vann heitan pott

Eyjamærin Sjöfn Ólafsdóttir sigraði í heitapottaleik Poulsen og Vísir.is. Dómnefnd þótti mynd Sjafnar Ólafsdóttur í Kóngsbakka í Reykjavík bera af. Hún hlýtur að verðalaunum glæsilegan heitapott frá Poulsen. Sjöfn, sem er dóttir Stellu Skaptadóttur og Ólafs Elíssonar sparisjóðsstjóra, er mikill áhugamaður um ljósmyndun og hafa myndir eftir hana hafa birst í fjölmörgum blöðum og tímaritum hér […]
Duglegir skólakrakkar

Í þeim veðraham sem verið hefur í haust er það varla nema fyrir hraustustu krakka að ganga í skólann sinn. Þessir krakkar, sem heita Arna Dögg, Óliver og Arnar Þór, nemendur í 1.ÍR og Þórey, nemandi í 4. HA, eru meðal annarra duglegra krakka sem ganga í skólann, nánast uppá hvern dag. (meira…)