ÁRA-MÓTIÐ 2007

Skemmtiboltakeppni 2.flokks karla ÍBV. Innanhúsknattspyrnumót 29. desember kl. 15-17 og er fyrir blönduð lið hópa og fyrirtækja. Léttleiki í fyrirúmi, sannkölluð fótboltaveisla fyrir konur og karla, firmakeppni og hópakeppni þar sem “sá sigrar sem tekur þátt!” Tilvalið að fyrirtæki skori á hvert annað og hristi jólaspikið af starfsmönnum. Þora Glitnir og Sparísjóðurinn að keppa? Ná […]
2 úr ÍBV í 28 manna hóp landsliðsins

Í dag var valið í 28 manna hóp fyrir U-16 ára landslið Íslands eða öllu heldur strákar fæddir árið 1992. Voru 2 leikmenn frá ÍBV valdir í þennan hóp en það eru þeir Kristján Tómasson og Ólafur Sigurðsson. Hafa þessir peyjar verið að standa sig virkilega vel með 10.flokk félagsins ásamt því að vera að […]
Sektaður um 2,8 milljónir

56 árs gamall Selfyssingur var í Héraðsdómi Suðurlands dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir skattalagabrot. Honum var einnig gert að greiða 2,8 milljónir í sekt, ellegar sitja í fangelsi í 72 daga. (meira…)
Róleg vika hjá lögreglunni

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í vikunni sem leið. Samt sem áður hafði lögreglan í ýmsu að snúast við að aðstoða borgarana við hin ýmsu tilvik sem upp komu. (meira…)
Helstu verkefni lögreglu frá 3. til 10. desember 2007.

Það var frekar rólegt hjá lögreglunni í vikunni sem leið. Samt sem áður hafði lögreglan í ýmsu að snúast við að aðstoða borgarana við hin ýmsu tilvik sem upp komu. Ein eignaspjöll voru kærð til lögreglunnar í vikunni sem leið en um er að ræða skemmdir á bifreið sem stóð við Brimhólabraut 34. Bifreiðinni hafði […]
ÍBV í 8 liða úrslit í bikarkeppni KKÍ

Síðasta laugardag keppti 10.flokkur ÍBV í körfubolta við Grindvíkinga í þeirra heimbæ. Strákarnir létu það ekki stoppa sig að fara fram og til baka með Herjólfi á laugardaginn og keppa einn leik milli Herjólfsferða. Aðeins 7 leikmenn fóru í þessa ferð og var því einungis 2 varamenn til staðar ef einhver þurfti hvíld eða lenti […]
Fjárhagsleg staða félagsins mætti vera betri

Fjárhagsmál ÍBV íþróttafélags, einkanlega erfið skuldastaða, er mjög til umræðu á spjallvef félagsins. Ljóst er að lítið má útaf bera í fjáröflun félagsins eins og t.d. Þjóðhátíð, ef ekki á illa að fara. Það er því kannski ekki óeðlilegt að stjórn félagsins kanni alla möguleika að rétta fjárhaginn af, bæði í sparnaði og eins í […]
Óhjákvæmilegt að fella niður veggjald í Hvalfjarðargöngum

Oddviti Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi sagði í gærmorgun í viðtali við Stöð 2 að óhjákvæmilegt veggjald í Hvarfjarðargöngunum verði fellt niður. Að öðrum kosti verði að taka upp gjöld á öðrum stöðum á þjóðveginum.Þessi orð eru ótrúleg í ljósi þessi að á þjóðveginum Þorlákshöfn – Vestmannaeyjar hefur alltaf verið veggjald og hefur háttvirtur þingmaður ekkert tjáð […]
Kann að grínast og að taka gríni
„Það er bara allt slétt og leikandi þó nóg sé að gera,“ segir Árni Johnsen þingmaður. „Ég er með svona um tuttugu mál sem ég er tilbúinn til að leggja fyrir þingið enda af nógu að taka, mörg aðkallandi mál. Til dæmis er ég að berjast í því að Suðurlandsbraut verði tvöfölduð. Svo þarf […]
Sex sóttu um stöðu skólameistara
Sex sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands en þar af er tveir núverandi starfsmenn skólans. Umsóknarfrestur rann út síðastliðinn föstudag og eru umsækjendur eftirtaldir: (meira…)
Herjólfur tefst vegna veðurofsans

Herjólfur, er nú staddur fjórtán mílum undan Vestmannaeyjum. Mikið hvassviðri er við Eyjarnar og því er talið að skipið ná ekki að landi fyrr en um tvöleytið í nótt. Skipið átti að koma til Eyja um klukkan tíu í kvöld. (meira…)
Illa slasaður eftir árekstur

Fólksbíll rann í hálku í veg fyrir jeppling í Hveradalabrekku á Hellisheiði um klukkan hálf níu í kvöld. Bílstjórar voru einir í bílunum og slasaðist annar þeirra töluvert, að sögn lögreglu. Hellisheiði var lokað um stund vegna slyssins. (meira…)
Ekkert þunglyndi hjá leikmönnum ÍBV

Þótt gengi ÍBV í handbolta hafi ekki verið upp á sitt besta, hafa leikmenn liðsins ekki lagst í þunglyndi. Um leið og snjó festi á jörð tóku erlendu leikmennirnir Sergey Trotsenko, frá Úkraínu, Nikolay Kulikov, frá Rússlandi og Zilvinas Grieze, frá Litháen, sig saman og bjuggu til þessa myndarlegu, austur-evrópsku snjókarla (meira…)
Suðurey in the middle of nowhere

Á vefsíðu Helga nokkurs Ólafssonar http://helgi.vinirketils.com er að finna tengil á vefsíðu sem að birtir myndir af húsum sem vefsíðan flokkar undir hús sem eru stödd “In the middle of nowere”. Þessi skilgreining á kofa þeirra Suðureyinga gleður Helga mikið enda Helgi einn af svokölluðum Bröndurum. Helgi segir m.a. á vefsíðu sinni þetta um Suðureyinga:“Vil […]
Jet Black Joe með Pál Rósinkrans í broddi fylkingar

Í Laugardalshöll þann 16.maí ásamt félögum úr Gospelkór Reykjavíkur undir stjórn Óskars Einarssonar, einnig koma fram fjöldi söng & gestahljóðfæraleikara. Forsala miða hefst: Þriðjudaginn 11.desember kl. 10:00 á midi.is, Skífunni & verslunum BT úti á landi. Tryggði þér miða í tíma á þennan einstaka viðburð. Takmarkað magn miða í boði. Miðaverð, A svæði kr. 6900 […]
Veðurstofan sendir frá sér viðvörun
Viðvörun: Búist er við stormi og talsverðri rigningu sunnan- og vestanlands seint í dag. Spá: Vaxandi suðaustanátt og þykknar upp, 18-25 m/s síðdegis og talsverð slydda eða rigning sunnan- og vestanlands í kvöld. (meira…)
Skuldamál ÍBV íþróttafélags rædd á spjallsíðu félagsins

Frétt birtist í Vaktinni í síðustu viku, um að hugsanlega yrði byggingu knattspyrnuhúss frestað um eitt ár. Í staðinn myndi Vestmannaeyjabær greiða ÍBV íþróttafélagi ákveðna upphæð, ígildi vaxta af byggingarupphæðinni. Einar Hlöðver Sigurðsson hefur bryddað uppá umræðu um skuldastöðu ÍBV og fengið gríðarleg viðbrögð á spjallsíðu félagsins og þá einnig um frestun á byggingu knattspyrnuhússins. […]
Snjótittlingur við Bókasafnið

Talsverður snjór er í Eyjum dag og fallegt var um að litast í morgunsárið. Egill Egilsson var á sinni venjubundnu morgungöngu og smellti myndum ótt og títt af landslagi og mannlífi morgunsins. Fyrir utan Bókasafnið sá hann þetta listaverk og stóðst ekki að mynda það. Ekki er hægt að segja annað en að það sé […]
Dodge auglýsir Eyjar

Íslendingum flestum er kunnugt um þá gríðarlegu náttúrufegurð sem víða er að finna í Vestmannaeyjum. Þótt landfræðileg einangrunin valdi okkur stundum vanda þá ljær hún umhverfinu sérstakt andrúmsloft sem hrífur og laðar. (meira…)
Margt að gerast í Eyjum

Margt hefur verið að gerast síðustu dagana í eyjum. Fyrir það fyrsta fór Herjólfur í viðgerð vegna leka með skrúu en er sem betur fer kominn aftur. Það var eins og eyjamenn vöknuðu upp við vondan draum við það að missa Herjólf og sýnir okkur hversu mikilvægur hann er fyrir okkur og það að samgöngur […]