30. aðventutónleikarnir í Selfosskirkju

Á sunnudaginn kemur, hinn 9. desember, verða haldnir árlegir aðventutónleikar í Selfosskirkju, kl. 17:00 og 20:00. Þetta eru þrítugustu aðventutónleikarnir í Selfosskirkju, en þeir hafa verið haldnir óslitið frá árinu 1978. (meira…)
Rífandi stemmning fyrir Hátíð í bæ

„Já ég get ekki sagt annað en að stemmningin sé góð fyrir tónleikunum og útlit sé fyrir fullt hús á jólatónleikum ársins hér um slóðir,“ segir Kjartan Björnsson sem skipuleggur jólatónleika í Iðu á Selfossi 12. desember. (meira…)
Rof á farbanni

Um þessar mundir eru 5 Pólverjar í farbanni að kröfu lögreglustjórans á Selfossi. Einn þeirra Przemyslav Pawel Krymski, sem kært hafði farbann til Hæstaréttar, sem staðfesti það, hefur nú yfirgefið Ísland. Lýst hefur verið eftir honum. Lögreglan á Selfossi hefur vegabréf hans og hinna fjögurra í vörzlum sínum. (meira…)
Herjólfur hefur áætlunarsiglingar í fyrramálið

Samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum mun Herjólfur hefja áætlunarsiglingar milli lands og Eyja í fyrramálið eins og áætlun skipsins segir til. Fyrsta ferð verður því frá Eyjum klukkan 8:15 og hafa forsvarsmenn Eimskips nú staðfest það. (meira…)
Stefnt að því að Herjólfur fari úr slipp í dag

Stefnt er að því að Herjólfur fari úr slipp í Hafnarfirði í dag og hefji þá siglingar milli lands og Eyja á morgun. Ekki liggur fyrir hvort hann nái fyrstu ferð úr Vestmannaeyjum eða hvort hann hefji áætlunarsiglingar úr Þorlákshöfn en það byggist á því hvenær viðgerð lýkur. (meira…)
TM-hlutur Guðbjargar í FL Group og Glitni hefur rýrnað um þrjá milljarða
Athafnakonan Guðbjörg Matthíasdóttir hefur þurft að horfa upp á hluti þá sem hún fékk í FL Group og Glitni fyrir bréf sín í Tryggingamiðstöðinni rýrna um þrjá milljarða á þeim tæpum þremur mánuðum sem hún hefur átt bréfin. Hlutur hennar hefur rýrnað um rétt rúm 25% og á Kristinn ehf, sem er alfarið í hennar […]
Herjólfur úr slipp í dag

Viðgerðir á Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi eru á undan áætlun og verður henni siglt úr slipp í Hafnarfirði síðdegis í dag. Áætlunarferðir hefjast svo aftur á hádegi á morgun. Leki kom upp í skrúfubúnaði Vestmannaeyjaferjunnar og henni siglt til viðgerða í Hafnarfirði í fyrradag. Þær munu á undan áætlun og ferjan fer úr slipp síðdegis. Áætlunaferðir hefjast […]
Selfoss kom í morgun með nauðsynjar til Vestmannaeyja

Gámaskipið Selfoss kom í morgun með nauðsynjarvörur og aðrar vörur til Vestmannaeyja. Þetta er fyrsta vörusendingin sem berst til Vestmannaeyja síðan á mánudag en Herjólfur er nú í slipp í Hafnarfirði og ekki væntanlegur í siglingar að nýju fyrr en á morgun, föstudag. Farið var að bera á vöruskorti í verslunum en vöruflutningar eru í […]
Jólin sett upp í Vestmannaeyjum

Bærinn er óðum að taka á sig jólalegri mynd en fyrirtæki og verslanir bæjarins eru að öllu jöfnu duglega að skreyta yfir jólahátíðina. Þegar blaðamaður var á ferðinni í morgun rakst hann á þá félaga, Óskar Valtýsson, Ólaf Sigurvinsson og Magnús Magnússon, bifreiðastjóra að koma upp einu af elsta jólaskrauti bæjarins, kertinu á Fiskimjölsverksmiðju Vinnslustöðvarinnar. […]
Sindri fékk eins leiks bann

Sindri Haraldsson, leikmaður ÍBV hefur verið dæmdur í eins leiks bann af aganefnd HSÍ en Sindri fékk að líta rauða spjaldið í leik ÍBV gegn HK um síðustu helgi. Óhætt er að segja að Eyjamönnum hafi reynst erfitt að hemja sig í leikjum vetrarins enda er Sindri ekki fyrsti Eyjamaðurinn sem fær að sjá rautt […]
Bæjarráð leggur til að fella skuli niður fasteignagjöld og holræsagjöld ellilífeyrisþega

Á fundi bæjarráðs síðastliðinn mánudag var tekin fyrir tillaga vegna álagningar gjalda fyrir árið 2008. Bæjarráð leggur m.a. til að útsvar verði 13.03%, að veittur verði 5% staðgreisluafsláttur verði veittur af af fasteignagjöldum, holræsagjöldum og sorpgjöldum. Og einnig leggur bæjarráð til að fasteigna- og holræsagjöld ellilífeyrisþega skulu felld niður njóti þeir tekjutrygginga af eigin íbúð […]
Kviknar ljós …

Kristján segir það bagalegt að skipið hafi þurft að fara í slipp. Hver voru viðbrögð hans ráðuneytis og stofnana? Að skilja svoleiðis við þetta að ekkert kom í staðinn. Jú, Selfoss á að sigla hingað á morgun… Annars var ég að lesa yfir þessar fimm bloggfærslur um fréttina sem voru komnar þegar þetta er skrifað. […]
Í svona aðstæðum getum maður bara orðið svo svakalega reið

Ég sá grein inná eyjafréttum þar sem Georg Eiður Arnarson var að skrifa um Herjólf og útganginn á honum. Mig langaði aðeins að segja ykkur frá hvernig ferð systur minnar var um daginn. Það er nefninlega þannig að hún er líkamlega fötluð og sökum þess þarf hún að nota lyftuna frá bílaþilfarinu til þess að […]
Er Kristján Möller samgönguráðherra stoltur af þessu?

Á Alþingi í gær fór fram umræða um störf Alþingis um samgöngumál Vestmannaeyja og var það Árni Johnsen sem hóf þá umræðu. Sagði Árni m.a. að það væri staðreynd að stærsta verstöð landsins væri nánast sambandslaus og einangruð með tilliti til samgangna. Árni sagði einnig þetta: “Herjólfur er löngu kominn á aldur og bilanir eru […]
Viðunandi lausn
Skólastjórn Grunnskólans á Hellu hefur tekist að leysa húsnæðisvanda sem hrjáð hefur kennslustarfi í haust. Lausnin fellst í því að kenna einum bekk í húsnæði skóladagheimilisins sem er lokað fyrri hluta dags. (meira…)
Lægsta bensínverðið í Skandinavíu
Verð á 95 oktana bensíni á sjálfsafgreiðslustöð Orkunnar á Selfossi hefur hríðlækkað á einni viku, frá því Atlantsolía kveikti á dælum sínum í síðustu viku. Samkvæmt heimildum blaðsins er Selfoss nú með eitt lægsta bensínverð í allri Skandinavíu. (meira…)
Kviknar ljós……….

Það var kominn tími til að þessi umræða næðist inn á þing. Reyndar hef ég ekki séð þetta, spurning hvort það voru einhverjir aðrir en Árni og Kristján sem tóku þátt í umræðunni? Kristján samgönguráðherra segir það bagalegt að skipið hafi þurft að fara í slipp. Hver voru viðbrögð hans ráðuneytis og stofnana? Að skilja […]
Jólagjafahandbók Frétta kemur út á morgun

Með Fréttum á morgun fylgir hin árlega jólagjafahandbók Frétta. Handbókin er glæsileg að vanda og stútfull af skemmtilegu efni. M.a. er farið í heimsókn í föndrið á Hraunbúðum, rætt við Svavar Steingrímsson sem hefur haft yfirumsjón með ljósaskreytingum í kirkjugarðinum og sömuleiðis rætt við þær Rósu Sigurjónsdóttur, sjúkraliða og Steinunni Einarsdóttur, hjúkrunarfræðing sem oftar en […]
Grannur, krullhærður kall sem að talar mjög skemmtilega íslensku

Í vetur munu vikulega birtast á vefsíðunni www.ibvfan.is leikmannakynning á leikmönnum ÍBV í handbolta. www.ibvfan.is og www.eyjar.net hafa gert með sér samkomulag að fylgja strákunum í handboltanum eftir í vetur og reyna fylgjast vel með því sem þeir eru að gera. Að þessu sinni er það Grétar Stefánsson leikmaður ÍBV sem svarar spurningum ÍBVfan.is Nafn. Grétar […]
Nýr Herjólfur nauðsynlegur strax

Árni Johnsen, alþingismaður, sagði á Alþingi, að nauðsynlegt væri að kaupa nú þegar nýtt skip til að leysa af hólmi Herjólf á siglingaleiðinni milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar. Herjólfur væri kominn til ára sinna og bilaði oft en 3-4 ár væru þar til ný ferja hæfi siglingar milli Eyja og Bakkafjöru. Árni sagði, að stærsta verstöð […]