Hef mikla trú á liðinu í ár

Í dag birtum við leikmannakynningu úr körfuboltanum en sá sem gefur lesendum eyjar.net upplýsingar um sjálfan sig er Brynjar Ólafsson eða Binni eins og hann er alltaf kallaður. Fullt nafn: Brynjar Ólafsson Fæðingarár og staður:  1985 – Vestmannaeyjar Fjölskylduhagir & foreldrar:Á kærustu sem heitir Ragnheiður Lind Geirsdóttir. Foreldrar eru Ólafur Óskar Stefánsson og Edda Úlfljótsdóttir […]

Samgöngur til Vestmannaeyja og Jökulfjarða eru sambærilegar, sem sagt engar.

Samgöngur til Vestmannaeyja komu til umræðu á alþingi í dag.  Eins og fyrr er öllum ljóst að núverandi ástand er algerlega óþolandi.  Með sanni má segja að samgöngur við Vestmannaeyjar séu svipaðar og við Jökulfirði, sem sagt engar.  Munurinn er þó sá að í Vestmannaeyjum búa milli fjögur og fimmþúsund manns.  Hér er atvinnulíf öflugt, […]

Samgöngumál

Það er margt og mikið að gerast í samgöngumálum okkar eyjamanna þessa dagana. Fyrir það fyrsta, þá las ég í Fréttum (útgefið í Vestmannaeyjum) í síðustu viku grein, þar sem ritstjórinn Ómar Garðarsson kvartar sáran yfir Herjólfi, vegna þess að þar vanti bæði útvarp og tölvutengingar sem lofað hafði verið af núverandi rekstraraðilum. Sjálfur fór […]

Lúðusteik með kúskús

Í dag birtum við gómsæta uppskrift af lúðusteik en þessar góðu uppskrift fékk ég hjá vinkonu minni sem upphaflega fékk uppskriftina á femin.is. Þetta er skotheld uppskrift enda lúða herramansmatur.   Fyrir 4 1 sítróna 4 sneiðar stórlúða 3 msk. ólífuolía 1 laukur, skorinn í sneiðar 1 rauð paprika, söxuð 2 sellerístönglar, saxaðir 175 g […]

Árni færir Kvennafangelsinu ný rúm

„Við höfum verið gleymda fangelsið. Það að Árni skuli hafa munað eftir okkur gerir hann að vinsælasta manninum hér,“ varð einum fanganum í Kvennafangelsinuí Kópavogi að orði í gær þegar Árni Johnsen mætti með flutningabíl fullan af nýjum springdýnum fyrir fangana. Tildrög gjafarinnar eru þau að daginn eftir að Árni færði Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg sjónvörp […]

Fyrstu nemendurnir útskrifaðir frá Háskólanum í Bifröst

Í gær útskrifuðust í Vestmannaeyjum átta nemendur úr fjarnámi við Háskólann á Bifröst. Þetta er í fyrsta sinn sem nemendur í Vestmannaeyjum eru útskrifaðir á staðnum en Háskólinn á Bifröst og fræðslu- og símenntunarmiðstöðin Viska hófu samstarf á haustmánuðum. Nemendurnir útskrifuðust úr upplýsingatækni og bókhaldi en nemendurnir átta unnu allt sitt nám úr sinni heimabyggð […]

Telur að Árni Johnsen sé með litla tónlistarhæfileika

Stundum er sagt a glöggt sé gests augað og vel má vera að eitthvað sé til í því. Á síðustu þjóðhátíð kom til eyja einstaklingur frá vefsíðunni TheInterviewpoint.com en það er vefsíða sem birtir umfjallanir og viðtöl við áhugavert fólk og fjallar um áhugaverða hluti. Þegar blaðamaðurinn kom hingað þá ætlaði hann ekki að vera […]

Stoltur samgönguráðherra

Það er margt athyglisvert sem kom fram í ræðum þingmanna um samgöngur í gær, miðvikudag á Alþingi. Reyndar vakti það athygli mína hversu fáir þingmenn tóku þar þátt. Hægt er að skoða ræðurnar hér. Árni Johnsen hóf umræðuna. Talaði hann um verkfælni Vegagerðarinnar og metnaðarleysi stjórnvalda. Eins minntist hann á 12 kílómetra göng Færeyinga. Einhversstaðar […]

Málaferli við �?jórsá verði ekki hætt við virkjanir

„Dómstólaleiðin lítur nú út fyrir að verða sú eina færa fyrir landeigendur við Þjórsá sem draga í efa lögmæti Títansamningsins og réttmæti aðgerða Landsvirkjunar við Þjórsá. Undirbúningur bótakrafna á hendur sveitarfélögum er einnig hafinn. Þetta kom fram á fundi landeigenda og andstæðinga virkjana í Sól á Suðurlandi á fundi í Flóanum í síðustu viku. Á […]

Gjafmildir Kiwanismenn

Sl. föstudag afhentu Kiwanismenn í Ölfusi Heilsugæslu Þorlákshafnar skoðunarbekk og tilheyrandi búnað. Kiwanisklúbburinn Ölver hefur lengi staðið við bakið á heilsugæslunni og skemmst er að minnast röntgenbúnaðar sem klúbburinn gaf á síðasta ári. (meira…)

Á sama afmælisdag og kóngurinn í Tælandi

Veitinga- og gistihúsið Menam á Selfossi fagnar 10 ára afmæli í desember með því að bjóða 10 prósent afslátt af öllu á tælenskum matseðli staðarins. Kristín Árnadóttir, sem hefur rekið staðin í átta og hálft ár, segir umsvifin hafa stóraukist á þeim tíma. (meira…)

Sjúkraþjálfun Selfoss 20 ára

Á föstudag fagnar Sjúkraþjálfun Selfoss 20 ára starfsafmæli. Boðið verður upp á veitingar og tónlistaratriði í húsakynnum fyrirtækisins að Austurvegi 9 milli klukkan 15 til 18 á afmælisdaginn. (meira…)

Eftir 8

Hljómsveitin Vítamín verður eiturhress á Draugabarnum á laugardag. Lokað á föstudag. (meira…)

Umdeildur malarvegur malbikaður í vor

Bíll valt við umdeildan malarveg í landi Vestri-Loftsstaða á Gaulverjabæjarvegi fyrir skemmstu. Sveitarstjórn Flóahrepps hefur margoft lýst yfir áhyggjum af slysahættu á staðnum. Svanur Bjarnason, verkefnastjóri Vegagerðarinnar, segir að vegspottinn verði í fyrsta lagi malbikaður í vor því yfir veturinn sé slíkt ekki hægt. (meira…)

22 milljónir til menningarmála

Menningarráð Suðurlands úthlutaði tæpum 22 milljónum króna til menningarstarfs á Suðurlandi og Vestmannaeyjum við hátíðlega athöfn í Listasafni Árnesinga í Hveragerði sunnudaginn 2. desember. Þetta var í fyrsta sinn sem ráðið úthlutaði styrkjum í samstarfi við menntamálaráðuneyti, samgönguráðuneyti og sveitarfélög á Suðurlandi. (meira…)

Guðni og Sigmundur á Gömlu Borg

Guðni Ágústsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson lesa uppúr og kynna ævisögu Guðna, Guðni – Af lífi og sál, á Gömlu Borg, þriðjudaginn 11. desember kl. 20:30. (meira…)

Vatnalíf fékk góðar móttökur

Heimildarmynd Gunnars Sigurgeirssonar, Vatnalíf, var frumsýnd í Sambíóunum á Selfossi í síðustu viku. Frumsýningargestir voru virkilega ánægðir með myndina og uppskar Gunnar gott lófaklapp að henni lokinni. (meira…)

Jólasveinarnir koma á Selfoss

Laugardaginn 8. desember verður kveikt á jólatrénu á Tryggvatorgi. Þá munu jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli koma til byggða og heilsa upp á bæjarbúa og nærsveitunga. Dagskráin hefst kl.15:45 en þá syngur Karlakór Selfoss og bæjarstjórinn Ragnheiður Hergeirsdóttir flytur ávarp. Kl. 16:00 koma síðan jólasveinarnir á torgið og í framhaldinu verður kveikt á jólatrénu. Þá verður sungið […]

Jólatónleikar í �?orlákshöfn

Söngfélag Þorlákshafnar og Lúðrasveit Þorlákshafnar halda sína árlegu jólatónleika í Versölum, Ráðhúsi Ölfuss, í Þorlákshöfn fimmtudag 6. desember kl. 20:30. Söngfélag Þorlákshafnar og Lúðrasveit Þorlákshafnar syngja og leika í sitt hvoru lagi auk þess að flytja tvær skemmtilegar jólalagasyrpur saman. (meira…)

Opið hús Viss �?orlákshöfn

Föstudaginn 7. des nk. verður opið hús á Viss, vinnu- og hæfingarstöð að Unubakka 4, frá kl.12.00 – 16.00. Þar mun starfsemin verða kynnt og einnig verða til sölu handunnar vörur og listmunir eftir þá einstaklinga sem þar starfa. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.