Samgöngumál

Það er margt og mikið að gerast í samgöngumálum okkar eyjamanna þessa dagana. Fyrir það fyrsta, þá las ég í Fréttum (útgefið í Vestmannaeyjum) í síðustu viku grein, þar sem ritstjórinn Ómar Garðarsson kvartar sáran yfir Herjólfi, vegna þess að þar vanti bæði útvarp og tölvutengingar sem lofað hafði verið af núverandi rekstraraðilum. Sjálfur fór ég með skipinu á fimmtudaginn upp á land í fínasta veðri, en þar sem spáin var slæm seinnipartinn var hætt við seinni ferðina og til að kóróna það þá var hliðarskrúfan biluð morguninn eftir, þannig að skipið komst ekki af stað fyrr en upp úr kl. 10 . Veðrið var þá mjög slæmt og brimið það mikið í Þorlákshöfn, að gripið var til þess ráðs að fá lóðsinn þar til að hjálpa Herjólfi inn í höfnina. Ég fór aftur til eyja með fyrri ferð á sunnudag og þá hafði ástandið enn versnað, vídeótækin í skipinu voru biluð og einhver vandamál í sambandi við sjónvörpin í sjónvarpssal líka, og ein þernan sagði við mig, að það væri í raun og veru alt í drasli þarna umborð. Til að kóróna þetta, þá þarf skipið að fara núna í slipp, í vonandi ekki meira en tvo daga og á meðan verðum við að treysta á flug.

Ég frétti af því í gær, að fjöldi fólks hafði mætt í gær til að reyna að koma bifreiðum sínum til eyja, en því miður komust ekki allir með og þurfa sennilega að bíða, jafnvel alla vikuna eftir fari, en vonandi verður þetta bara tveir dagar.

Það er mjög merkilegt að lesa nýjasta bloggið hjá (vini) mínum, Sigursveini Þórðarsyni, sem nú alt í einu er farinn að heimta nýjan Herjólf (reyndar segir hann líka að Bakkafjara sé framtíðin) en merkilegt nokk, þá hefur Sigursveinn ítrekað haldið því fram, að kosið hafið verið um framtíðarsamgöngur okkar í bæjarstjórnarkosningunum 2006 og þar hafi nýjum Herjólfi verið hafnað og næsta skerf sé Bakkafjara. Vonandi hef ég þetta rétt eftir honum, en fyrir mér hljómar þetta svolítið vitlaust. Til að kóróna þetta, þá heyrði ég á Bylgjunni í gær, viðtal við bæjarstjórann okkar þar sem hann lýsir yfir áhyggjum sínum vegna ástandsins á Herjólfi og segir meðal annars: “Við höfum vitað það í næstum fimm ár, að tími sé kominn á að skipta út Herjólfi fyrir nýtt skip.” Þetta þykir mér mjög merkilegt, komandi frá bæjarstjóranum, því að ég veit ekki betur en að nú séu í gangi hugmyndir um að nota núverandi Herjólf í Bakkafjöru, eða þangað til Bakkafjöruferjan verður tilbúin, þetta hljómar altsaman frekar undarlega, en það kemur alt í ljós.

Á eyjar.net var nýlega viðtal við fjármálaráðherra, Árna Matt, þar sem hann var spurður að því, ef ég man rétt, sérstaklega hvaða samgöngubætur við gætum vænst á næsta ári og ég man ekki betur en hann hafi talað um að það eina sem hann sæi að við gætum fengið fram að Bakkafjöruferju, væri ein flugferð á dag, aukalega yfir sumarmánuðina, svo ekki er nú útlitið bjart. Meira seinna.

Nýjustu fréttir

Vertíðin 2026
Skoðar Vestmannaeyjar fyrir mögulega fóðurverksmiðju
Herjólfur III bíður enn eftir haffærisskírteini
Morgan Goði – Íþróttamaður mánaðarins
Þrír ættliðir stóðu vaktina í Tvistinum
Dagskrá 17. júní
Tekjur Vestmannaeyjabæjar langt yfir áætlun
Binni í Vinnslustöðinni – Kynni mín af Ísleifsfólki

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.