Unnið hörðum höndum að viðgerð á Herjólfi

Unnið er hörðum höndum að því að lagfæra leka í skrúfubúnaði Vestmannaeyjaferjunnar Herljólfs til þess að hún komist sem fyrst í áætlun aftur. Eftir að Herjólfur komst loks til Þorlákshafnar í gær, eftir tafir á brottför vegna óveðurs, var skipinu siglt til Hafnarfjarðar þar sem það var tekið í stærri flotkví Vélsmiðju Orms og Víglundar. […]
Mikið verðfall hlutabréfa á mörkuðum í dag
Undanfarna daga hefur verið mikið verðfall á Íslenskum hlutabréfamarkaði og hafa íslenskir fjárfestar tappað miklum fjármunum á stuttum tíma. FL Group þar sem Magnús Kristinsson og félagar voru aðrir stærstu hlutahafar þar til í gær hefur fallið mikið undanfarna daga og vikur. Á hlutabréfamörkum í morgun hafa hlutabréf 16 fyrirtækja lækkað á meðan einungis þrjú […]
Er Kristján Möller samgönguráðherra stoltur af þessu?
Á Alþingi í gær fór fram umræða um störf Alþingis um samgöngumál Vestmannaeyja og var það Árni Johnsen sem hóf þá umræðu. Sagði Árni m.a. að það væri staðreynd að stærsta verstöð landsins væri nánast sambandslaus og einangruð með tilliti til samgangna. Árni sagði einnig þetta: “Herjólfur er löngu kominn á aldur og bilanir eru […]
Gullborgin mátuð við slippinn

Hafnarstjóri Faxaflóahafna segir að umhverfi sjóminjasafnsins muni taka á sig mynd á næstu mánuðum en framkvæmdir muni standa út næsta ár og fram á árið 2009. Reiknað er með gönguleið eftir trébryggjum alveg frá gömlu verbúðabryggjunni við Kaffivagninn, meðfram Sjóminjasafninu og Daníelsslipp og út á Ægisgarð. Varðskipið Óðinn og gamli Magni verða við verbúðabryggjuna og […]
Gera þarf hættumat vegna eldgosahættu í Vestmannaeyjum.

Síðastliðið mánudag fundaði almannavarnarnefnd í stjórnstöð Almannavarna sem staðsett er í húsnæði Björgunarfélags Vestmannaeyja við Faxastíg. Í almannavarnarnefnd sitja Karl Gauti Hjaltason sýslumaður, Ragnar Baldvinsson slökkviliðstjóri, Jóhannes Ólafsson yfirlögregluþjónn og frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja þeir Sigurður Þ. Jónsson og Adólf Þórsson. Á fundi almannavarnarnefndar var farið yfir áhættuskoðun í umdæmi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum en bréf frá […]
Sjónarmið ungs fólks í fyrirrúmi

Fimm ungmenni frá Þorlákshöfn skipa nýtt ungmennaráð Sveitarfélagsins Ölfus. Því er ætlað að vera bæjaryfirvöldum til ráðgjafar varðandi málefni ungs fólks í sveitarfélaginu. (meira…)
Helstu verkefni lögreglu frá 26. nóvember til 3. desember 2007.

Lögreglan hafði í mörg horn að líta í vikunni sem leið og var nóg að gera að kvöldi sl. fimmtudags og aðfaranótt sl.föstudags vegna óveðurs sem gekk yfir eyjarnar. Alls var óskað 6 sinnum eftir aðstoð lögreglu á þessu tímabili vegna veðurofsans. Töluverður fjöldi fólks var á ferðinni um helgina enda fyrsta helgin þar sem […]
�?akkargjörðarhátíð haldin 23. janúar á næsta ári

Á næsta ári eru 35 ár liðin frá eldgosinu á Heimaey en tímamótanna verður minnst veglega. Hátíðarhöldin verða tvískipt, annars þakkargjörðarhátíð 23. janúar næstkomandi og hins vegar hin eiginlega goslokahátíð sem hefst 3. júlí. Í dag voru drög að dagskrá þakkargjörðarhátíðarinnar kynnt á fréttamannafundi í Ráðhúsi Vestmannaeyja. (meira…)
Sauma þurfti fimm spor í andlitið

Lögreglan hafði í mörg horn að líta í vikunni sem leið og var nóg að gera að kvöldi sl. fimmtudags og aðfaranótt sl.föstudags vegna óveðurs sem gekk yfir eyjarnar. Alls var óskað 6 sinnum eftir aðstoð lögreglu á þessu tímabili vegna veðurofsans. Töluverður fjöldi fólks var á ferðinni um helgina enda fyrsta helgin þar sem […]
Tafir á innanlandsflugi

Allt innanlandsflug liggur nú niðri vegna aðvörunar frá Veðurstofunni um ókyrrð í lofti, samkvæmt upplýsingum frá Flugfélagi Íslands. Ein vél hefur farið í dag til Egilsstaða og tvær til Akureyrar. Athugað verður upp úr klukkan 17 hvort hægt verður að hefja flug að nýju. (meira…)
Bingó miðvikudagskvöld

Stórbingó verður í Týsheimilinu miðvikudagskvöld á vegum væntanlegrautanlandsfara 3.fl drengja og stúlkna. Stórglæsilegir vinningar. Allir velkomnir. Sjoppan opin. 3.fl. ÍBV í knattspyrnu. (meira…)
Galaxy Caramel súkkulaðiköku
Nú þegar líða fer að jólum og smákökkurnar eru fjölda framleiddar á flestum heimilum þá býð ég upp á þessar góðu smáköku uppskrift. Þessi er algjört sælgæti og þeir sem nenna ekki að baka þá er bara gott að skella sér út í næstu sjoppu og fá sér Galax Caramel súkkulaði og Coca Cola. 100 […]
Mikilvægt að þyrla verði staðsett úti á landi

Þýðingarmikið skref í þá veru að tryggja aukið öryggi sjófarenda á miðunum í kringum landið í framtíðinni var stigið s.l. föstudag þegar dómsmálaráðherrar Íslands og Noregs skrifuðu undir samkomulag um samstarf Íslands og Noregs um kaup og rekstur nýrra langdrægra björgunarþyrla. LÍÚ ítrekar á heimasíðu sinni samþykkt aðalfundar samtakanna um að mikilvægt sé að þyrla […]
Ferð Herjólfs frestað til ellefu

Herjólfur leggur af stað frá Vestmannaeyjum klukkan 11:00 í dag en ferð skipsins var frestað í morgun vegna veðurs. Þetta er jafnframt síðasta ferð skipsins áður en það verður tekið í slipp vegna bilaðrar pakkningar við skrúfuás. Áætlað er að viðgerð taki tvo sólarhringa. Þessa stundina er snarvitlaust veður í Vestmannaeyjum, á Stórhöfða er meðaltalsvindur […]
Eyjamenn öflugir á Facebook

Það eru endalausar nýjungar á netinu og eitt það heitasta í dag er vefurinn www.facebook.com. Þessi vefur inniheldur upplýsingar um einstaklinga út um allan heim og á auðveldan hátt geturðu athugað hvort að gamlir vinir eða kunningjar eru á facebook. Vefurinn bíður t.d. upp á þá möguleika að senda myndir á milli vina, videobrot, spurningar […]
Vestmannaeyjabær að komast í jólabúninginn

Aðventan er gengin í garð með þeirri spennu og þeim hátíðleika, sem fylgir aðdragandanum að jólum. Jólaljósin kvikna eitt af öðru og bærinn er að komast í jólabúning. Í gær var kveikt á jólaljósum á Ráðhúsi Vestmannaeyja, þessu einstaklega fallega húsi. – Eitt fallegasta hús landsins, segja sumir. (meira…)
Fréttatilkynning frá Herjólfi.

Herjólfur fer frá Vestmannaeyjum kl 10:00 í dag en ekki 08:15 Frekari upplýsingar í síma 481-2800 (meira…)
Ullarþvottastöðin keypt til niðurrifs
Hveragerðisbær hefur keypt Ullarþvottastöðina á 95,5 milljónir króna af Sigurði Eiríkssyni, framkvæmdastjóra 5X. Þetta eru ein stærstu fasteignakaup sem Hveragerðisbær hefur fjármagnað en um að ræða 1800 fermetra húsnæði með 6634 fermetra lóð. (meira…)
Sérsveitin kölluð á Draugabarinn
Aðfaranótt sunnudags kom til átaka milli lögreglu og gesta á Draugabarnum á Stokkseyri. Leitað var eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra en þegar sú aðstoð barst var mönnum runnin reiðin. (meira…)
Af umburðarlyndi okkar Eyjamanna

Ef lýsa ætti Eyjamönnum í dag yrði lýsingin eitthvað á þessa leið: Með eindæmum skapgott fólk og seinþreytt til vandræða. Þá sjaldan sem það fýkur í Eyjamenn, rennur þeim fljótt reiðin og allt dettur í sama farið. Í fyrramálið siglir Herjólfur til Þorlákshafnar eftir sinni áætlun en engin ferð er til baka. Skipið siglir til […]