Bæjarstjórinn þjálfar hjá ÍBV

Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja hefur tekið að sér þjálfun í yngri flokkum handboltans hjá ÍBV. Elliða er þó ekki treyst fyrir aðalþjálfarastöðunni en hann verður Unni Sigmarsdóttur innan handar í þjálfun sjötta flokks drengja. Elliði var á árum áður nokkuð liðtækur í handbolta en bróðir hans, Svavar var lengi einn sterkasti línumaður landsins. (meira…)

Stjörnuprýtt lið Stjörnunnar í heimsókn í kvöld

Í kvöld, klukkan 19.00 leikur karlalið ÍBV annan heimaleik sinn á Íslandsmótinu þegar Stjarnan kemur í heimsókn. Stjörnunni var fyrir tímabilið spáð sigri í N1-deildinni á meðan ÍBV var spáð neðsta sætinu og því mætti sjá fyrir sér að Golíat heimsæki Davíð. (meira…)

Já…. ég veit!

Það er klikkun að gera í vinnunni, utan sem innan vinnutíma. Við erum að rembast við að klára að koma starfi félagsmiðstöðvarinnar á nýjum starfsstað af stað. Við erum að rembast við að koma Vosbúð, ungmennahúsinu okkar, í stand. Við erum að rembast við að gera allt klárt fyrir landsmót Samfés sem verður hjá okkur […]

Vill heilbrigðisþjónustu til sveitarfélaga

„Ég held að til lengri tíma sé betra ef sveitafélögin taka að minnsta kosti við hluta af heilbrigðisþjónustunni og að það verði gert með sama hætti og gert var með grunnskólana. Að málaflokkurinn sé fluttur yfir og einhverjir tekjustofnar með,” segir Hjalti Þór Vignisson, sveitarstjóri Hornafjarðar. Ríkisendurskoðun skilaði í byrjun þessa mánaðar niðurstöðum stjórnsýsluúttektar sinnar […]

Gunnar með fyrsta markið fyrir Vålerenga

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrir norska liðið Vålerenga í 2:0-sigri liðsins gegn Fredrikstad í lokaleik 21. umferðar úrvalsdeildarinnar í Noregi. Gunnar skoraði á 10. mínútu með skoti af stuttu færi en fyrra markið skoraði Dan Thomassen eftir aðeins 48 sekúndur. Þetta er fyrsta markið sem Gunnar skorar fyrir Vålerenga frá því hann var lánaður til […]

Stjörnur í Eyjum.

Eyjamenn taka á móti stjörnum prýddu handknattleiksliði Garðbæinga á morgun í N1 deildinni. Leikurinn hefst kl. 19.00. Þar gefst Vestmannaeyingum tækifæri á að sjá liðið, sem spáð er falli annars vegar, og hins vegar liðið, sem spáð er Íslandsmeistaratitli. Handknattleiksunnendur eru hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja, og mæta í Íþróttahúsið. Leikurinn er mikill […]

Gunnar Heiðar skoraði í 2:0-sigri Vålerenga

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrir norska liðið Vålerenga í 2:0-sigri liðsins gegn Fredrikstad í lokaleik 21. umferðar úrvalsdeildarinnar í Noregi. Gunnar skoraði á 10. mínútu með skoti af stuttu færi en fyrra markið skoraði Dan Thomassen eftir aðeins 48 sekúndur.Þetta er fyrsta markið sem Gunnar skorar fyrir Vålerenga frá því hann var lánaður til félagsins […]

Eru Bæjarveitur Vestmannaeyja framtíðin?

Í sumar seldi Vestmannaeyjabær sem kunnugt er hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja til Geysir Green Energy fyrir á fjórða milljarð króna. Síðan þá hefur farið fram fjörug umræða um hvað gera skuli við alla þessa peninga. Sýnist sitt hverjum og bæjarstjórn hefur lýst því yfir að ekki verði rasað um ráð fram við ráðstöfun þeirra. […]

�?rjár ferðir á dag yfir sumarið

Gert er ráð fyrir þremur flugferðum á dag, fimm til sex daga vikunnar yfir sumartímann, milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja, í nýjum samningi Vegagerðarinnar og Flugfélags Íslands, sem nú er í burðarliðnum. Núgildandi samningur um flugsamgöngur milli Reykjavíkur og Vestmannaeyja rennur út í lok október og nýr samningur tekur gildi frá og með 1. nóvember. (meira…)

Getraunastarfið hafið

Jæja góðir hálsar þá er getraunastarfið hafið og fór fyrsta vika í hópaleik haustsins fram um helgina og var árangur þokkalegur. Eftir fyrstu vikuna þykir liðið Pint of Foster's líklegast til að standa uppi sem sigurvegari, en það er en langt og strangt getraunahaust framundan og því getur ýmiselgt gerst. Spilaðar verða 12 vikur og […]

Bærinn tekur frumkvæði í uppbyggingu Setursins

Í tillögum þeim er bæjarstjórn Vestmannaeyja lagði fram um mótvægisaðgerðir vegna niðurskurðar í þorskkvóta kennir ýmissa grasa. Tillögurnar eru um margt metnaðarfullar og sýna að bæjaryfirvöld eru reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að draga úr því höggi sem sveitarfélagið verður fyrir. Því eru það nokkur vonbrigði að ríkisstjórnin skuli skella skollaeyrum við flestu […]

Samkeppni um hönnun menningarhúss

Ráðgert er að efnt verði til samkeppni meðal arkitekta um hönnun menningarhúss í Vestmannaeyjum, sem rísa mun á lóðinni milli Safnahússins og Alþýðuhússins. Stýrihópur á vegum bæjarins og menntamálaráðuneytisins sem vinnur að málinu telur að rekstri nýs menningarhúss verði best fyrir komið í tengslum við rekstur Safnahússins. (meira…)

Langt og strangt getraunahaust framundan

Jæja góðir hálsar þá er getraunastarfið hafið og fór fyrsta vika í hópaleik haustsins fram um helgina og var árangur þokkalegur. Eftir fyrstu vikuna þykir liðið Pint of Foster’s líklegast til að standa uppi sem sigurvegari, en það er en langt og strangt getraunahaust framundan og því getur ýmiselgt gerst. Spilaðar verða 12 vikur og […]

Stórhuga feðgar ætla að opna fullkomið upptökustúdíó í eyjum

Nýverið festi ljósa -og hljóðkerfaleigan Span kaup á fasteigninni Gamla Betel (Leikskólinn) og þar ætla þeir sér að byggja upp fullkomið upptökustúdíó, eyjar.net heyrði í þessum ofurhugum og vildi fá að vita meira um þessa stórtæku hugmynd. Eigendur ljósa-og hljóðkerfaleigunnar eru feðgarnir Ólafur Guðjónsson (Óli áHvoli/Gæfunni) og Árni Óli. Eyjar.net tók púlsinn á framkvæmdarstjóra Span […]

Stoppdagar Herjólfs

25. september verður viðhaldsdagur Herjólfs og munu siglingar falla niður þennan dag. Forsvarsmenn Herjólfs vona að þetta valdi ekki mikilli röskun fyrir viðskiptavini. (meira…)

Ekki krafist gæsluvarðhalds yfir manni sem var handtekinn vegna nauðgunarkæru

Maður sem var handtekinn í gærkvöldi af lögreglunni á Selfossi vegna nauðgunarkæru konu á fertugsaldri í Vestmannaeyjum í gærmorgun var í kvöld sleppt úr haldi lögreglunnar á Selfossi. Rannsókn málsins heldur áfram og hefur hinn kærði verið boðaður til frekari yfirheyrslu á morgun. Unnið er að skýrslutöku af vitnum og beðið niðurstöðu rannsókna, samkvæmt upplýsingum […]

Lundaballið nálgast

Þrátt fyrir að lundaveiði hafi ekki verið með besta móti sumar, veiðimenn hafi haft háfinn sinn í bóli, meira eða minna allan lundaveiðitímann, verður ekki slegið slöku við á lundaballinu. Það verður haldið um næstu helgi í Höllinni. Að þessu sinni eru það Elliðaeyingar sem sjá um ballið. (meira…)

�?etta endalausa dekur við Vestfirðinga

Þetta endalausa dekur við Vestfirðinga er orðið þjóðinni til skammar. Ég hef svo sem bent á það áður, en grein Árna Johnsen í Morgunblaðinu í morgun vakti mig til umhugsunar um kvótaaðstoðina sem ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku. Ég er ekki hissa á að Grindvíkingar séu ósáttir. Það er ekki minnst á þá í tillögum […]

Nauðgun kærð í Vestmannaeyjum

Kona á fertugsaldri kærði að morgni laugardags nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum. Við rannsókn málsins bárust böndin að erlendum ríkisborgara og var hann handtekinn að kvöldi sama dags af lögreglunni á Selfossi, að beiðni lögreglunnar í Vestmannaeyjum, en maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis á laugardag. (meira…)

Kærði nauðgun til lögreglunnar

Kona á fertugsaldri kærði nauðgun til lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun. Fljótlega beindist grunur að erlendum ríkisborgara. Lögreglan á Selfossi handtók hann að kvöldi sama dags. Maðurinn hafði farið frá Vestmannaeyjum með Herjólfi síðdegis á laugardag. Maðurinn, sem er á fertugsaldri, er nú í haldi lögreglunnar á Selfossi. Síðar í dag verður tekin ákvörðun um […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.