Baráttukonan Stella kvödd

Minningardagskrá um Stellu Hauks, sem lést 17. janúar síðastliðinn, var á Obladí Oblada í Reykjavík í gær. Fréttastofa Stöðvar 2 fjallaði um dagskrána og Stellu í gærkvöldi. Í fréttinni er meðal annars rætt við tónlistarmanninn Egil �?lafsson um Stellu, sem sagði að hún hafi verið mikil baráttukona en jafnframt einlægur tónlistarmaður. �??Mér fannst hún oft […]

Strákarnir í Höllina

ÍBV er komið í undanúrslit í Coca-cola bikarnum eftir sigur í spennandi leik við Aftureldingu 25-23. Leikurinn var jafn og spennadi allan tímann, jafnt var á öllum tölum þangað til á 20. mínútu þegar ÍBV náði tveggja marka forskoti 8-6. Mikil munur var á leik strákanna í dag en þeir spiluðu illa á móti Haukum […]

Vestmannaeyjahlaupið kosið Götuhlaup ársins 2014

Hlaup.is hefur nú tekið saman einkunnir sem hlauparar gáfu hlaupum ársins 2014. Í annað skiptið er hlaupunum skipt niður í tvo flokka, götuhlaup og utanvegahlaup og hæsta einkunn í hvorum flokki fyrir sig skilar titlinum “Götuhlaup ársins 2014” og “Utanvegahlaup ársins 2014”. Að baki valinu eru rétt rúmlega 1400 einkunnir þar sem hinum ýmsum þáttum […]

Bikarleikur í dag

Í dag klukkan 16:00 tekur ÍBV á móti Aftureldingu. Búast má við spennandi leik en Afturelding situr í 3. sæti Olísdeildarinnar en ÍBV í því 5. Eflaust muna margir eftir því þegar ÍBV datt út í fyrra gegn Aftureldingu eftir framlengdan leik í Mosfellsbænum. Strákarnir vilja eflaust hefna fyrir það og munu mæta vel stemmdir […]

Myndband: Bikarævintýri B-liðsins

Bikarævintýri B-liðs ÍBV lauk í dag þegar liðið tapaði fyrir Haukum í 8-liða úrslitum Coca Cola bikarkeppni karla 21-33. Í samantekt frá leiknum sem Sighvatur Jónsson hjá SIGVA media gerði má sjá snilldartakta og viðtöl við Heimi �?la Heimisson, leikmann Hauka, og Benóný Friðriksson, leikmann ÍBV, um hversu erfiðlega Haukum gekk að eiga við hin […]

Stelpurnar sigruðu FH sannfærandi

Í dag spiluðu stelpurnar við FH, stelpurnar unnu stórsigur 30-19. Sigurinn var aldrei í hættu og var staðan 14-9 í hálfleik fyrir ÍBV. Stelpurnar eru vonandi komnar á sigurbraut eftir slaka byrjun eftir áramót. Næsti leikur stelpnanna er næstkomandi laugardag gegn Haukum. Dí­ana Dögg Magnús­dótt­ir var marka­hæst í liði ÍBV með sex mörk en Elín […]

Bikardraumur B liðsins úti

Mikið var um dýrðir í Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja þegar ÍBV B tók á móti Bikarmeisturum Hauka. Eyjamenn voru ekki síðra liðið í dag þó að Haukar hafi að lokum unnið góðan sigur 21-33. ÍBV skoraði fyrsta mark leiksins þegar Daði Magnússon kom ÍBV yfir. Strákarnir spiluðu góðan leik í dag og þegar 10. mínútur voru liðnar […]

Skemmdir þegar Herjólfur fékk á sig brot

Engin slys urðu á fólki þegar Herjólfur fékk á sig brot og lagðist á hliðina á leið frá Vestmannaeyjum til �?orlákshafnar síðdegis í gær. Skemmdir urðu á bíladekki og illa hefði getað farið þegar hitaborð í borðsal áhafnar kastaðist út í síðu. Talsvert af leirtaui brotnaði og var mikið verk að taka til. Brottför frá […]

Ísfélagið og Vinnslustöðin í hópi best reknu fyrirtækjanna

Ísfélag Vestmannaeyja er í 12. sæti á lista fyrirtækja sem stóðust styrkleikapróf Creditinfo og Vinnslustöðin er í 18. sæti. �?etta eru fyrirtæki sem útnefnd eru framúrskarandi fyrirtæki 2014. Bæði þessi fyrirtæki sýna með þessu að þau eru vel rekin og standa vel, sem endurspeglast í stöðu Vestmannaeyja. Talsvert þarf til að standast kröfur Creditinfo en […]

ÍBV B mæta Haukum í dag

Mikið verður um dýrðir í íþróttahúsi Vestmannaeyja í dag þegar ÍBV B tekur á móti Bikarmeisturum Hauka klukkan 13:30. Síðastliðinn fimmtudag sást til nokkura leikmanna B liðsins skoða leikmenn andstæðinganna og telja þeir sig hafa fundið góðar lausnir til bera sigur úr bítum. Mikil leynd hefur hvílt yfir leikmannahópi ÍBV B, hafa ýmis nöfn verið […]

Stellu Hauks verður minnst á Obladí Oblada í Reykjavík á morgun

Stellu Hauks verður minnst á Obladí Oblada í Reykjavík á morgun, laugardag og hefst dagskráin klukkan fjögur en staðurinn er opnaður um hádegisbil. Guðný Stella Hauksdóttir, eins og hún hét fullu nafni var fædd 17. nóvember 1953 og lést 17. janúar 2015. Hún var jarðsungin frá Landakirkju síðasta laugardag að viðstöddu fjölmenni. �??Margir minnast Stellu […]

Loðna, loðna

Í morgun kom Sigurður VE 1 með 500 tonn af loðnu til Eyja, sem fer í bræðslu hjá fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins. Alls á Ísfélagið nærri 80 þúsund tonna kvóta, svo menn þurfa að hafa sig alla við að ná kvótanum. Í kvöld er von á Tune, gamla �?orsteini, til Eyja með loðnu. (meira…)

Dónaskapurinn

Bankastjóri kemur inn í fiskbúð. Bankastjórinn: – Góðan daginn hr. fisksali Fisksalinn: – Góðan daginn hr. bankastjóri, hvað má bjóða þér í dag? Bankastjórinn: – Hvað kostar nætursöltuð ýsa? Fisksalinn: – Hún kostar 2000 kr. kílóið Bankastjórinn: – �?á ætla ég að fá eitt kíló takk. Fisksalinn: – Já það gera 2500 kr. Bankastjórinn: – […]

Lagfæringar á Vestmannabraut kostuðu 107 milljónir

Fyrir síðasta fundi framkvæmda- og hafnarráð lá fyrir uppgjör vegna kostnaðar við gatnagerð og lagfæringar á Vestmannabraut sem lauk á síðasta ári. Fram kom að heildarkostnaður var 107 milljónir króna en gert hafði verið ráð fyrir fjármagni að upphæð 103 milljónir króna til verksins. Ráðið þakkaði upplýsingarnar. Hluti Vestmannabrautarinnar frá Heiðarvegi að Skólavegi var tekinn […]

Siglt til Landeyjahafnar í 4.146 ferðir

Landeyjahöfn var tekin í notkun 21. júlí árið 2010. Frá þeim degi til 31. desember 2014, hefur Herjólfur siglt 4.146 ferðir í Landeyjahöfn og 1.142 ferðir til �?orlákshafnar. Meðalfarþegafjöldinn þegar siglt er til �?orlákshafnar eru 134 farþegar en þegar siglt er til Landeyjahafnar er meðalfarþegarfjöldinn 236. �?etta kemur fram yfirliti sem Eyjafréttir fengu hjá Gunnlaugi […]

Tap í fyrsta leik eftir hlé

Haukar sigruðu ÍBV i kvöld 17-21. Eyjamenn byrjuðu leikinn af krafti og virtust koma vel útúr fríinu en þeir leiddu leikinn 6-5 eftir 15. mínútna leik. Grétar �?ór Eyþórsson byrjaði leikinn af krafti og skoraði fimm af fyrstu sex mörkum ÍBV. Haukar komust í fyrsta skipti yfir í leiknum eftir 24 mínútur, 8-9 eftir það […]

�?rír stórleikir í handboltanum

Í kvöld, fimmtudag, kl. 18.00 mæta strákarnir í mfl. karla Haukum í Olísdeildinni og er þetta fyrsti deildarleikur strákanna á nýju ári. �?etta er fyrsta heimsókn Hauka til Eyja eftir að félögin háðu eftirminnilega rimmu um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili. Strákarnir okkar sitja í 5. Olísdeildarinnar sem stendur og geta með sigri vonandi fikrað sig […]

Landaður heildarafli hefur minnkað um 95 þúsund tonn

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni, voru lagðar fram tölur yfir landaðan afla í Vestmannaeyjum árin 2012-2014. Fram kom að heildarafli hefur minnkað úr 233 þúsund tonnum árið 2012 niður í 138 þúsund tonn árið 2014. Mestu munar um samdrátt í loðnuafla en minnkun aflamagns er í flestum tegundum. Ráðið lýsir yfir áhyggjum af […]

Verð í sund hækkar

“Verðlagseftirlit ASÍ kannaði verðbreytingar á gjaldskrám sundstaða hjá 15 stærstu sveitarfélögum landsins frá 1.janúar 2014 til 1. febrúar 2015. �?ll nema Sveitarfélagið Árborg hafa hækkað gjaldið á stökum miða í sund fyrir fullorðna, mesta hækkunin var hjá Reykjanesbæ eða um 38%. Árskort fullorðinna hefur einnig hækkað í verði hjá 11 sveitarfélögum af 15.” �?etta kemur […]

Gullbergsmenn komu með gaddakrabba á Fiskasafnið

Áhöfnin á Gullbergi VE færði Sæheimum flottan gaddakrabba í dag. �?að var Emma Ey Sigfúsdóttir sem kom með krabbann á safnið. �?að má segja að krabbinn hafi átt viðburðaríkan dag því hann kom við á leikskólanum Kirkjugerði og í grunnskólanum á leið sinni á safnið. Nú er hann að eignast nýja vini því að fyrir […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.