Landaður heildarafli hefur minnkað um 95 þúsund tonn
Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni, voru lagðar fram tölur yfir landaðan afla í Vestmannaeyjum árin 2012-2014. Fram kom að heildarafli hefur minnkað úr 233 þúsund tonnum árið 2012 niður í 138 þúsund tonn árið 2014. Mestu munar um samdrátt í loðnuafla en minnkun aflamagns er í flestum tegundum.
Ráðið lýsir yfir áhyggjum af samdrætti í lönduðum afla og minnir enn og aftur á mikilvægi þess að treysta undirstöður sjávarbyggða á Íslandi.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri segir að þetta sé auðvitað slæmt fyrir okkur öll. �??Landaður afli er undirstaða alls hér í Eyjum. Laun og þar af leiðandi neysla dregst eðlileg saman í kjölfarið á aflabresti. Minni afli merkir einfaldlega lægri laun almennt í samfélagi okkar Eyjamanna og þar af leiðandi lægra útsvar. �?etta kemur því af sjálfsögðu niður á rekstri Vestmannaeyjabæjar. �?annig lítur nú út fyrir að útsvarstekjur okkar hafi verið 120 milljónum lægri árið 2014 en við gerðum ráð fyrir í fjárhagsáætlun okkar. �?etta er samt ekkert fyrir okkur hjá bænum til að væla yfir. Við búum alltaf við það að þurfa að glíma við aflabrest og þar með forsendubrest í áætlunum. Vestmannaeyjabær er vel rekinn og þess gætt að borð sé fyrir báru til að ekki þurfi að koma til þjónustuskerðing þegar þessi staða kemur upp. �?etta er eingöngu hvatning til að fara áfram vel með og vanda okkur í rekstri.�??
�?á sagði hann að hitt væri svo annað �??að þetta sýni vel hversu mikilvægt það er fyrir okkur að girða okkur í brók þegar kemur að þróun atvinnulífsins hér í Eyjum og nýsköpun. Með því að fjölga eggjunum í körfunni temprum við áhrif af þessari stöðu. �?að er orðið löngu tímabært að við tökum til endurskoðunar allt sem lítur að atvinnuþróun og nýsköpun. Með samstilltu átaki hljótum við að geta fundið leið til að viðhalda byggð þar sem íbúarnir eru 1,2% þjóðarinnar og fyrirtækin halda utan um 11% til 13% af kvótanum. Ef ekki þá er rangt gefið.�??

Nýjustu fréttir

Viðgerð Herjólfs dregst fram í júlí
Standa þarf vörð um hafrannsóknir
Stórseiðahús reist á aðeins tíu mánuðum
Hafró leggur til minni þorskkvóta en mikla aukningu í loðnu
Leiðin liggur á Eyjuna fögru
Enn að eftir 40 ár sem blaðamaður
Dýpkun í Landeyjahöfn sett á bið vegna mikillar siglingaumferðar
Sjómannakaffið – ÍBV-stelpurnar tóku við keflinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.