�?rír stórleikir í handboltanum
Í kvöld, fimmtudag, kl. 18.00 mæta strákarnir í mfl. karla Haukum í Olísdeildinni og er þetta fyrsti deildarleikur strákanna á nýju ári. �?etta er fyrsta heimsókn Hauka til Eyja eftir að félögin háðu eftirminnilega rimmu um Íslandsmeistaratitilinn á síðasta tímabili. Strákarnir okkar sitja í 5. Olísdeildarinnar sem stendur og geta með sigri vonandi fikrað sig nær efstu fjórum sætum deildarinnar sem gefa heimaleikjarétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í vor.
Á laugardag er svo komið að leiknum sem bæjarbúar hafa beðið eftir með óþreyju síðan á aðventunni en þá koma Haukar aftur í heimsókn og leika við B-lið ÍBV í 8-liða úrslitum Coca-cola bikarkeppninnar. �?trúleg forréttindi fyrir Hauka að fá að koma tvisvar til Vestmannaeyja í sömu vikunni. B-liðið hefur æft að krafti síðan liðið lagði �?rótt að velli um miðjan desember í einum ótrúlegasta bikarleik sögunnar. Leikurinn hefst kl. 14 á laugardag og er miðasala þegar hafin hjá leikmönnum B-liðsins. �?essu vill enginn missa af!
Á sunnudag kl. 16 er svo komið að öðrum stórleik í 8-liða úrslitum Coca-cola bikarsins, er strákarnir í mfl. karla mæta Aftureldingu . Liðin hafa mæst tvívegis í vetur og hefur Afturelding haft betur í bæði skiptin. Okkar strákar hafa því harma að hefna. Um mikilvægi leiksins þarf ekki að fjölyrða, í húfi er sæti í úrslitahelgi Coca-cola bikarsins í Laugardalshöll í lok mánaðarins.
Fyrir Eyjamenn búsetta á fastalandinu minnum við einnig á leik FH og ÍBV í Olísdeild kvenna á laugardag kl. 14 í Kaplakrika. Áfram ÍBV, alltaf, allsstaðar!

Nýjustu fréttir

Gera ráð fyrir 610 milljóna afgangi á næsta ári
Hausttónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja í myndum
Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.