Strákarnir í Höllina
ÍBV er komið í undanúrslit í Coca-cola bikarnum eftir sigur í spennandi leik við Aftureldingu 25-23. Leikurinn var jafn og spennadi allan tímann, jafnt var á öllum tölum þangað til á 20. mínútu þegar ÍBV náði tveggja marka forskoti 8-6. Mikil munur var á leik strákanna í dag en þeir spiluðu illa á móti Haukum síðastliðin fimmtudag. Agnar Smári Jónsson átti góðan leik og hreyf áhorfendur með sér í fögnum sínum og bar uppi sóknarleik Eyjamanna í fyrri hálfleik og skoraði 6 mörk. Staðan í hálfleik var 14-12 ÍBV í vil.
Í seinni hálfleik hélt spennan áfram, ÍBV leiddi allan leikinn en náðu aldrei að slíta leikmenn Aftureldingar af sér en mest náðu eyjamenn þriggja marka forskoti. Strákarnir áttu allir góðan dag, mikið jafnvægi var í leik liðsins, skynsamur sóknarleikur og agaður varnaleikur. Síðustu mínúturnar voru æsispennandi. ÍBV hafði tveggja marka forskot þegar þrjár mínútu voru eftir. Afturelding átti þá sókn sem var mjög löng eða tæpar tvær mínútur og náðu að lokum að skora eftir að hendinn var löngu komin upp. Munurinn kominn í eitt mark og ÍBV með boltann. Magnús Stefánsson skoraði þá mikilvægt mark fyrir eyjamenn, Pétur Júníusson nældi þá í víti fyrir Aftureldingu sem Jóhann Gunnar Einarsson skoraði úr og 34 sekúndur eftir. Spennan í húsinu var rafmögnuð, áhorfendur staðnir á fætur, Gunnar Magnússon þjálfari ÍBV tók þá leikhlé þegar um 11 sekúndur voru eftir. Eyjamenn náðu að vinna vel úr kerfinu sem þeir tóku og Magnús Stefánsson innsiglaði sigur ÍBV og farmiðinn í höllina tryggður.
Leikirnir í undanúrslitum fara fram síðustu helgina í febrúar en bæði karla- og kvennalið ÍBV eru komin í undanúrslit. Búast má við magnaðri stemningu þessa helgi enda er maí á síðasta ári enn í fersku minni allra Eyjamanna.
Mörk ÍBV skoruðu þeir: Agnar Smári Jónsson 9, Magnús Stefánsson 6, Grétar �?ór Eyþórsson 5, Einar Sverrisson 3, Andri Heimir Friðriksson 1 og Theodór Sigurbjörnsson 1.
Kolbeinn Aron Arnarsson varði 17 skot í marki ÍBV og þar af 1 víti.

Nýjustu fréttir

Hvað gerist næst
Jóhann Ingi skipar þriðja sætið á lista Miðflokksins
Líflegur framboðsfundur Eyjafrétta – upptaka
Herjólfur fer næstu ferðir til Þorlákshafnar
Sterk hagsmunagæsla
Hildur Rún skipar fjórða sæti á lista Eyjalistans 
Gústav Axel með kraftmikinn sjávarréttaseðil á Einsa Kalda á MATEY
Öflug menning mótar lífið
viðburðir
Matey 2022
22. maí 2026
18:00
MATEY Seafood Festival

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.