�?að er verið að sækja um vinnu hjá þér

Segjum sem svo að þú eigir fyrirtæki og ert að leita að nýjum starfskrafti. Þú auglýsir og í viðtal til þín kemur einstaklingur. Hann hefur augljóslega farið í atvinnuviðtal áður, kemur vel fyrir, dásamar sig og lofar öllu fögru. „Ég mun ALDREI mæta of seint, ég mun ALDREI verða veikur, ég mun ALLTAF vinna yfirvinnu […]
Tölum saman!

Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi hafa verið á ferðinni í Vestmannaeyjum í dag, mánudaginn 22. april. Opinn stjórnmálafundur verður haldinn í Ásgarði í kvöld og hefst hann kl. 20.00. Á fundinum kynna frambjóðendur málefnaáherslur Sjálfstæðisflokksins. Gefst fundarmönnum gott tækifæri til að spyrja frambjóðendur út í málefni er brenna á Eyjamönnum. (meira…)
10 milljarða gjöf VG og S úr galtómum ríkissjóði, Á ÁRI!

Árið 1983 ákvað hópur manna að sölsa undir sig og þröngan hóp manna langverðmætustu auðlind Íslendinga. Þessi gerningur hefur valdið gríðarlegum og hatrömmum deilum á meðal þjóðarinnar alla tíð síðan. Deilan hefur klofið þjóðina í tvennt. Samfylkingin og VG voru kosin út á fögur loforð um að leysa þessa deilu í eitt skipti fyrir öll. […]
James gæti spilað sinn fyrsta leik með ÍBV á morgun

David James gæti spilað sinn fyrsta leik með ÍBV á morgun þegar liðið mætir Njarðvík í æfingaleik á grasi í Njarðvík. James er væntanlegur til landsins í dag en hann greindi frá þessu á Twitter síðu sinni. (meira…)
Herjólfur í Landeyjahöfn í morgun

Herjólfi var siglt í fyrstu ferð í Landeyjahöfn en brottför frá Landeyjahöfn var svo klukkan 10:00. Í tilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila Herjólfs, kemur fram að ágætar líkur eru fyrir siglingum í Landeyjahöfn í dag. Hins vegar sé ölduspá næstu daga enn óhagstæð. (meira…)
Hólí Mólí með vinsælasta lagið

Þeir Birgir Davíð Óskarsson, Guðbjörn Guðjónsson, Patrick Maximilian Rittmüller og Jón Þór Guðjónsson í söngkvartettinum náðu markmiði sínu í Söngkeppni framhaldsskólanna. Aðalkeppnin var haldin í kvöld en þangað komust strákarnir með góðri frammistöðu í gær. Aðalkeppnin var í beinni útsendingu og svo fór að lokum að strákarnir, sem kalla sig Hólí Mólí, eða FÍV strákarnir, […]
Af og frá að tekin hafi verið áhætta þegar Baldur sigldi í Landeyjahöfn

Siggeir Pétursson, skipstjóri á Breiðarfjarðarferjunni Baldri, segir það af og frá að tekin hafi verið áhætta þegar Baldur sigldi inn í Landeyjahöfn eins og gefið var í skyn í Kastljósi á miðvikudaginn. Breiðarfjarðarferjan Baldur hefur nokkrum sinnum siglt milli Landeyjahafnar og Vestmannaeyja í stað Herjólfs. Í Kastljósi á miðvikudaginn var sagt frá því að siglingin […]
Skorar á Eyjamenn að styðja sig

Snorri Þór Guðmundsson 41 árs stýrimaður á Vestmannaey VE 444 reynir nú allt hvað hann getur til að láta draum sinn rætast sem er að taka þátt í siglingaskútukeppni í kringum heiminn sem ber heitið Clipper Round The World Yacht Race. Til að eiga sem mesta möguleika á að komast í hópinn þarf Snorri að […]
Heimaey með fyrsta kolmunnann

Nýja flaggskipið í fiskiskipaflota Eyjamanna, Heimaey VE-1, kom til hafnar í vikunni með fyrsta kolmunnaaflann sem landað hefur verið í Vestmannaeyjum á þessu ári. Um borð voru 2.100 tonn af ágætis kolmunna. (meira…)
�?rslitaleikur gegn Fram í dag

Kvennalið ÍBV leikur í dag fjórða leik sinn í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta en leikurinn fer fram í Eyjum og hefst klukkan 15:00. Staðan í rimmu liðanna er 2:1 fyrir Fram en þrjá sigurleiki þarf til að komast áfram. Fram dugir því að vinna í dag til að komast í úrslit en ef ÍBV hefur […]
Lundakomuhátíð í fyrsta sinn

Lundakomuhátíðin verður haldin í fyrsta sinn í Vestmannaeyjum í dag, laugardaginn 20. apríl. Á hátíðinni er komu lundans fagnað en margir telja að þá sé sumarið komið með formlegum hætti. Dagskrá Lundakomuhátíðarinnar má finna hér að neðan. (meira…)
Skilaði 155 milljón króna hagnaði

Rekstur Vestmannaeyjahafnar gekk vel á árinu 2012. Samkvæmt ársreikningi hafnarinnar var rekstararafkoma hennar jákvæð um 155 milljónir króna fyrir fjármagnsliði. Eignfærðar framkvæmdir við höfnina, viðhald og endurnýjun mannvirkja voru uppá 120 milljónir króna, þar af efni í Binnabryggju fyrir tæpar 60 milljónir króna. Þetta kom fram á fundi framkvæmda- og hafnarráðs í vikunni. (meira…)
Hólí Mólí áfram í Söngkeppni framhaldsskólanna

Í gærkvöldi fór fram undankeppni í Söngkeppni framhaldsskóla en keppnin fer fram á Akureyri. Hólí Mólí eða FÍV strákarnir eru fulltrúar Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum í keppninni en sveitina skipa þeir Birgir Davíð Óskarsson, Guðbjörn Guðjónsson, Patrick Maximilian Rittmüller og Jón Þór Guðjónsson. Þeir tóku lagið Let’s get it started með Black eyed peas og komust […]
Gunnar hjá ÍBV næstu tvö árin

Eyjapeyinn Gunnar Þorsteinsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning hjá ÍBV. Gunnar fæddist í Eyjum og bjó hér fyrstu árin en flutti svo til Grindavíkur þar sem hann æfði og spilaði fótbolta. Gunnar á að baki tvo leiki með meistaraflokki Grindavíkur en síðustu ár hefur hann verið hjá enska félaginu Ipswich Town. Gunnar kom […]
Ríflega 300 manns á opnum borgarafundi

Ríflega 300 manns sátu opinn Borgarafund í Höllinni í Vestmannaeyjum í gær, miðvikudaginn 18. apríl. Eins og sagt var frá fyrir fundinn, voru bornar upp kröfur áhugahóps sem stóð að fundinum og þær samþykktar. Kröfurnar má sjá hér að neðan. (meira…)
Lenging hafnargarða breytir engu

Lenging hafnargarða Landeyjahafnar yrði ekki breyting til batnaðar, segir forstöðumaður hafnasviðs Siglingastofnunar sem sat fjölmennan borgarafund í Eyjum um samgöngumál. Hann segir nýjan Herjólf þó ekki vera lausn allra mála, einnig þurfi að koma upp dælubúnaði í höfninni. (meira…)
Árétting vegna umfjöllunar í Kastljósi 17. apríl

Vegna umfjöllunar í Kastljósi í gær, miðvikudaginn 17. apríl, um siglingar Herjólfs og Landeyjahöfn, vilja innanríkisráðherra og vegamálastjóri koma eftirfarandi á framfæri. Landeyjahöfn hefur þegar sannað gildi sitt sem stórkostleg samgöngubót. Farþegafjöldi og áhrif á samfélagið í Vestmannaeyjum hefur verið framar björtustu vonum, þótt náttúruöflin hafi vissulega sýnt mátt sinn og átt þátt í að […]
Eyjakvöld og ball á eftir

Á morgun, laugardag verður haldið Eyjakvöld í Höllinni en kvöldið er með svipuðu formi og Eyjakvöld sem haldin hafa verið á höfuðborgarsvæðinu undanfarin misser, nú síðast á Spot í janúar á þessu ári. Þar fjölmenntu Eyjamenn og komust færri að en vildu. Blítt og létt, Stertimenni, Logar, Dans á Rósum og Bjartmar Guðlaugsson koma fram […]
�?g biðst afsökunar á ummælum sem voru óviðeigandi

Ég undirritaður, Sigmar Jónsson, harma þau ummæli sem ég lét falla í viðtali við fréttamann Kastljós og birt voru í þættinum 17.apr sl. Hið rétta er að í þeim tilfellum þar sem aðstæður í Landeyjahöfn eru erfiðar siglir Herjólfur ekki til hafnarinnar. Ég hef aldrei orðið vitni að því að skipstjórar Herjólfs hafi vísvitandi tekið […]
�?tvarpað frá borgarafundinum um samgöngumál

Borgarafundurinn um samgöngumál, sem haldinn verður í Höllinni kl. 18.00 í kvöld, verður útvarpað á Útvarpi Suðurlands. Í Eyjum verður sent út á tíðninni 96,3 en á Suðurlandi á tíðninni 93.3. (meira…)