Viljum fá skýr svör um framtíð Landeyjahafnar

Almennur borgarafundur um málefni Landeyjahafnar verður haldinn í Höllinni á morgun, fimmtudaginn 18. apríl klukkan 18:00. Horfum til framtíðar er yfirskrift fundarins en að fundinum stendur áhugahópur um samgöngur við Vestmannaeyjar. Fundarstjórar eru Guðmundur Þ. B. Ólafsson og Friðrik Björgvinsson en fjölmargir aðilar flytja stutt erindi á fundinum, auk þess sem ályktun hópsins er borin […]
Góður gangur í utankjörfundaratkvæðagreiðslu

Kjósendur í Suðurkjördæmi hafa níu daga til að ákveða sig hverjir verða fyrir valinu þegar kemur að kosningum til Alþingis þann 27. apríl nk. Yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi hefur úrskurðað ellefu framboð gild. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefur staðið í nokkurn tíma og hefur farið vel af stað í Vestmannaeyjum. (meira…)
Eigið fé í árslok nam 4,95 milljörðum króna

Ársreikningar Vestmannaeyjabæjar og stofnana hans fyrir árið 2012 voru lagðir fram á fundi bæjarráðs á mánudag og samdægurs samþykktir til seinni umræðu í bæjarstjórn. Rekstrartekjur á árinu námu um 4.267,6 millj. kr. samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir rekstrartekjum um 3.380,3 millj. kr. Rekstrartekjur A-hluta námu um 3.240,5 […]
ÍBV sigraði Fram í þriðja leik

ÍBV hafði sigur á FRAM, 19-18, í framlengdum þriðja leik undanúrslita N1-deildar kvenna í handknattleik í FRAMhúsinu í kvöld. Staðan í hálfleik venjulegs leiktíma var 8-7 fyrir ÍBV og jöfn, 16-16, að sextíu mínútum afloknum. Staðan í einvíginu er nú 2-1 fyrir Fram og fjórði leikurinn fer fram í Eyjum klukkan 15 á laugardag. Strax […]
�?tlar að beita sér fyrir því að virðisaukaskattur á gistingu hækki ekki í 14 prósent

Katrín Júlíusdóttir, fjármálaráðherra var stödd í Eyjum í dag. Fundaði hún meðal annars með stjórn Ferðamálasamtaka Vestmannaeyja. Á fundinum handsalaði hún það við Magnús Bragason, hótelstjóra á Hótel Vestmannaeyjum, að beita sér fyrir því að gistináttaskatturinn sem ríkisstjórnin hefur samþykkt að hækka í 14 prósent 1. september næstkomandi, verði ekki hækkaður. (meira…)
Hermann fékk hlýjar móttökur

Eins og áður hefur komið fram, lék karlalið ÍBV gegn Portsmouth á heimavelli þeirra síðarnefndu, Fratton Park í gær. Lokatölur urðu 2:1 fyrir Portsmouth en þjálfari ÍBV, Hermann Hreiðarsson fékk hlýjar móttökur þegar hann kom inn á í lið ÍBV. Hann skipti svo yfir og lék með Portsmouth síðustu fimm mínútur leiksins. Hægt er að […]
Fara leikmen ÍBV í sumarfrí í kvöld?

Í kvöld, klukkan 18:30 verður þriðji leikur ÍBV og Fram í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í handknattleik. Fram hefur unnið fyrstu tvo leikina og dugir sigur í kvöld til að komast áfram í úrslit. Eyjastúlkur eru í sárum eftir að Fram niðurlægði ÍBV í Eyjum á sunnudag þar sem þær völtuðu yfir Eyjaliðið. Allt bendir hins […]
Lóan er komin

Jóhann Guðjónsson, fyrrum skipstjóri og útgerðarmaður á Þristi VE og starfsmaður á grafskipinu Vestmannaey í nokkur ár, er mikill náttúrunnandi og eru það ekki síst fuglar sem eru honum hugleiknir. Hann snaraðist inn á ritstjórn Eyjafrétta í gær og sagði að lóan væri kominn. Hann hefði séð til hennar suður á Breiðabakka. (meira…)
Kosningafundir framundan

Í kvöld er komið að Suðurkjördæmi í kosningaumfjöllun RÚV. Kjördæmaþættirnir eru sendir út í beinni útsendingu á vefsíðu RÚV, www.ruv.is en einnig útvarpað á Rás 2. Útsendingin hefst klukkan 19:30 en oddvitar allra 11 framboðanna taka þátt í umræðunum. Fundurinn fer fram í Fjölbrautarskóla Suðurlands en hægt er að senda spurningar til frambjóðenda á vefsíðu […]
Samfylkingin opnar Pop-up kosningaskrifstofu í dag

Samfylkingin opnar í dag svokallaða Pop-up kosningaskrifstofu á Kaffi Varmá í dag, miðvikudag klukkan 17:00. Skrifstofan verður opin til klukkan 19:00 en meðal þeirra sem verða á staðnum eru Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, Björgvin G. Sigurðsson, alþingismaður, Árni Rúnar Þorvaldsson, 4. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi og Bergvin Oddsson sem er í 7. […]
Aðgerðir sem gagnast öllum!

Ásmundur Friðriksson og Óli Björn Kárason verða á opnum fundi í Ásgarði í kvöld, miðvikudaginn 17. apríl kl. 20.00. Á fundinum mun Óli Björn kynna tillögur Sjálfstæðisflokksins í skattamálum. (meira…)
2:1 tap gegn Portsmouth

Portsmouth hafði betur gegn ÍBV í góðgerðarleik á Fratton Park í kvöld en allur ágóði leiksins rennur beint til enska félagsins, sem á í verulegum fjárhagsvandræðum. Lokatölur urðu 2:1 fyrir Portsmouth en staðan í hálfleik var 1:0. Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV kom inn á og var vel fagnað enda dáður af stuðningsmönnum Portsmouth. Ekki minnkaði […]
Hægt að hlusta á lýsingu á leik Portsmouth og ÍBV

ÍBV leikur í kvöld gegn enska félaginu Portsmouth en leikurinn fer fram á heimavelli Portsmouth, Fratton Park. Fram hefur komið að forsala miða á leikinn hafi gengið vel, búið er að selja meira en 7000 miða á leikinn og er búist við að nokkur þúsund miðar verði seldir áður en leikur hefst. Stuðningsmenn ÍBV geta […]
�?órarinn Ingi maður leiksins þrátt fyrir tap

Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV sem nú er á láni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Sarpsborg, var valinn maður leiksins í leik liðsins gegn Álasund. Leikurinn fór fram á heimavelli Sarpsborg en Álasund hafði betur 0:2. (meira…)
Tóku karateæfingu á ströndinni

Nú þegar við erum komnir vel inn í seinnihálfleik ferðarinnar þá er spennan farin að magnast upp fyrir leik Portsmouth og ÍBV. Dagurinn í gær fór að hluta til í undirbúning fyrir leikinn en á æfingu var skipt í lið og var byrjunarliðið í leik dagsins í einu liðinu á móti rest. Þegar að fótboltaæfingunni […]
Samstaða um tillögu um framhaldsaðalfund

Aðalstjórn ÍBV Íþróttafélags, að tillögu deildanna þriggja, knattspyrnudeildar karla og kvenna og handknattleiksdeildar, hefur samþykkt að leggja það fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 18. apríl n.k. að boða til framhaldsaðalfundar að loknum aðalfundinum sjálfum. Fyrirhugað er, samþykki aðalfundur félagsins það, að dagskrá aðalfundarins verði hefðbundin s.s. að farið verið yfir ársskýrslu og ársreikning, […]
Afkoma Vestmannaeyjabæjar langt yfir væntingum

Rekstrarafkoma Vestmannaeyjabæjar var jákvæð um 530 milljónir króna í fyrra. Þetta er talvert umfram væntingar en gert var ráð fyrir 73,5 milljóna króna afgangi eftir árið. Fram kemur í ársreikningi Vestmannaeyjabæjar að rekstrarafkoma A hluta var jákvæð um 456,4 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 116,5 milljónir króna. Eigið fé […]
Brotist inn í Lundann

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og ýmis mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór að mestu þokkalega fram en eitthvað var um ágreining á milli aðila sem fóru heldur ótæpilega með áfengi. (meira…)
Leikmenn ÍBV á Wembley

Helgin var heldur betur tekin með trompi. Það var æfing á laugardagsmorgun en tapliðið af æfingunni þarf að fara í sjóinn í 10 mínútur. Eftir æfingu fórum við í hádegismat á hótelinu en þar var boðið upp á kjúklingapasta og laxa-risotto. Strákarnir fengu svo laugardagskvöldið til að fara út á lífið en kvöldið byrjaði í […]
Margrét Lára sneri aftur

Margrét Lára Viðarsdóttir, markadrottning íslenska landsliðsins, lék í gær fyrsta knattspyrnuleik sinn síðan hún gekkst undir stóra aðgerð á læri snemma vetrar. Hún kom inn á sem varamaður í 1:1 jafntefli Kristianstad við Piteå í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. (meira…)