�?órarinn Ingi maður leiksins þrátt fyrir tap

Þórarinn Ingi Valdimarsson, leikmaður ÍBV sem nú er á láni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Sarpsborg, var valinn maður leiksins í leik liðsins gegn Álasund. Leikurinn fór fram á heimavelli Sarpsborg en Álasund hafði betur 0:2. (meira…)
Tóku karateæfingu á ströndinni

Nú þegar við erum komnir vel inn í seinnihálfleik ferðarinnar þá er spennan farin að magnast upp fyrir leik Portsmouth og ÍBV. Dagurinn í gær fór að hluta til í undirbúning fyrir leikinn en á æfingu var skipt í lið og var byrjunarliðið í leik dagsins í einu liðinu á móti rest. Þegar að fótboltaæfingunni […]
Samstaða um tillögu um framhaldsaðalfund

Aðalstjórn ÍBV Íþróttafélags, að tillögu deildanna þriggja, knattspyrnudeildar karla og kvenna og handknattleiksdeildar, hefur samþykkt að leggja það fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður fimmtudaginn 18. apríl n.k. að boða til framhaldsaðalfundar að loknum aðalfundinum sjálfum. Fyrirhugað er, samþykki aðalfundur félagsins það, að dagskrá aðalfundarins verði hefðbundin s.s. að farið verið yfir ársskýrslu og ársreikning, […]
Afkoma Vestmannaeyjabæjar langt yfir væntingum

Rekstrarafkoma Vestmannaeyjabæjar var jákvæð um 530 milljónir króna í fyrra. Þetta er talvert umfram væntingar en gert var ráð fyrir 73,5 milljóna króna afgangi eftir árið. Fram kemur í ársreikningi Vestmannaeyjabæjar að rekstrarafkoma A hluta var jákvæð um 456,4 milljónum króna en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir jákvæðri afkomu upp á 116,5 milljónir króna. Eigið fé […]
Brotist inn í Lundann

Það var í ýmsu að snúast hjá lögreglu í vikunni sem leið og ýmis mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór að mestu þokkalega fram en eitthvað var um ágreining á milli aðila sem fóru heldur ótæpilega með áfengi. (meira…)
Leikmenn ÍBV á Wembley

Helgin var heldur betur tekin með trompi. Það var æfing á laugardagsmorgun en tapliðið af æfingunni þarf að fara í sjóinn í 10 mínútur. Eftir æfingu fórum við í hádegismat á hótelinu en þar var boðið upp á kjúklingapasta og laxa-risotto. Strákarnir fengu svo laugardagskvöldið til að fara út á lífið en kvöldið byrjaði í […]
Margrét Lára sneri aftur

Margrét Lára Viðarsdóttir, markadrottning íslenska landsliðsins, lék í gær fyrsta knattspyrnuleik sinn síðan hún gekkst undir stóra aðgerð á læri snemma vetrar. Hún kom inn á sem varamaður í 1:1 jafntefli Kristianstad við Piteå í fyrstu umferð sænsku úrvalsdeildarinnar. (meira…)
Nemanja ekki með ÍBV næsta vetur

Það verður ekkert úr því að skyttan öfluga, Nemanja Malovic, sem varð markahæsti leikmaður 1. deildar í vetur, spili á ný með ÍBV næsta vetur. Nemanja þurfti að yfirgefa landið þar sem hann var ekki með landvistaleyfi en náði þó að spila alla leiki liðsins, utan þess síðasta. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu […]
�?að er ekki öll vitleysan eins

Með fullri virðingu fyrir þeim öllum, þá má sjá að flokkarnir nálgast skuldavandamál heimilinna og önnur stórmál með ærið misjöfnum hætti. Skoðum það aðeins. Einn gamall og gróinn Einn hinna ágætu flokka vill afnema almenna verðtryggingu, halda í krónuna og í núverandi kvótakerfi. Hann vill 20% leiðréttingu á húsnæðislánunum, en hefur ekki greint fá því […]
Ellefu framboð í Suðurkjördæmi

Yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi hefur úrskurðað að öll ellefu framboðin í kjördæminu gild og afgreiddi þau til Landskjörstjórnar eins og lög gera ráð fyrir. Fjögur einstaklingsframboð voru úrskurðuð ógild og er sú ákvörðun kæranleg til Landskjörstjórnar. Þeir einstaklingar sem hyggja á framboð í Suðurkjördæmi eru Sturla Jónsson, Benedikt Stefánsson, Ragnar M. Einarsson og Arngrímur F. Pálmason. […]
Áttu aldrei möguleika gegn Fram

ÍBV átti aldrei möguleika gegn Fram í dag þegar liðin áttust við í annarri umferð undanúrslita Íslandsmótsins. Fram tók völdin strax í upphafi og var átta mörkum yfir í hállfeik, 7:15. Seinni hálfleikur var því nánast formsatriði enda bættu gestirnir aðeins við og voru mest 11 mörkum yfir en lokatölur urðu 18:28. (meira…)
Stefna Sjálfstæðisflokksins á mannamáli

Forgangsmál Sjálfstæðisflokksins á næsta kjörtímabili eru: Að lækka skatta og auka ráðstöfunartekjur. Hvernig: Með því að afnema þriggja þrepa tekjuskattskerfi og lækka tekjuskatta. Lækka verðið á innkaupakörfunni og bensíni með lækkun virðisaukaskatts, vörugjalda og eldsneytisgjalds. (meira…)
�?sigur í kaflaskiptum leik

Leikur ÍBV og Fram í fyrstu umferð undanúrslita Íslandsmóts kvenna í handknattleik var vægast sagt mjög kaflaskiptur. Eyjastúlkur byrjuðu mjög vel í leiknum og komust m.a. í 3:8 en þá fór að síga á ógæfuhliðina, Fram náði að jafna en í hálfleik var staðan 13:13. Í síðari hálfleik snerist dæmið við, Fram náði fimm marka […]
Skora á Bjarna Ben að halda áfram sem formaður

Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á nýliðnum stærsta landsfundi nokkurs stjórnmálaafls í sögu lýðveldis Íslands. Í fjórgang hefur hann sótt umboð sitt flokksmanna og hvergi brugðist því trausti sem honum hefur verið falið. Hann er með óskorað umboð flokksmanna til forystu þess flokks sem að okkar mati hefur upp á að bjóða skynsamlegustu lausnir […]
Skálmöld á �?jóðhátíð í Eyjum

Rokksveitin Skálmöld er á meðal þeirra hljómsveita sem koma fram á Þjóðhátíð í Vestmanneyjum í sumar. Að sögn Snæbjörns Ragnarssonar bassaleikara eru meðlimir Skálmaldar óþarflega spenntir fyrir tónleikunum. (meira…)
Góður leikur gegn varaliði Bournmouth

Á vefsíðunni Eyjamenn.com skrifar Valur Smári Heimisson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar pistla um ferðalag karlaliðs ÍBV í Englandi. „Fyrsti heili dagurinn á Englandi byrjar vel en við spiluðum fyrsta leik ferðarinnar á móti varaliði Bournemouth og sigruðum 0 – 2,“ skrifar Valur Smári en pistilinn má lesa í heild sinni hér að neðan. (meira…)
�?ryggi, stöðugleiki og störf

Ég trúi því að framtíð Íslands sé björt. Við eigum miklar auðlindir sem okkur ber að nýta skynsamlega með það að markmiði að auka lífskjör allra landsmanna. Öflugt atvinnulíf, aukin fjárfesting og hagvöxtur er grundvöllur þess að efnahagur landsins nái sér á strik og stöðugleiki náist að nýju. (meira…)
Sendiherrarnir heimsækja Vestmannaeyjar

Hlutverk Sendiherranna er að kynna samning S.Þ. um réttindi fatlaðs fólks. Í byrjun var um að ræða samstarfsverkefni milli Landsamtakanna Þroskahjálpar og Fjölmenntar. Verkefnið var í upphafi jafningjafræðsla sem miðaði að því að fræða fólk með þroskahömlun um ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. (meira…)
ÍBV vann varalið Bournemouth

Karlalið ÍBV í knattspyrnu er nú í æfingaferð í Englandi en liðið hélt utan á þriðjudag. Liðið lék æfingaleik gegn varaliði Bournmouth í gær og hafði betur 0:2. Á vefsíðunni Eyjamenn.com kemur fram að Gunnar Már Guðmundsson hafi skorað fyrsta markið á 11. mínútu en James nokkur Freny, 25 ára frændi David James hafi svo […]
Íslenskt ríkisfang dugar ekki til

Ég fór ungur til náms í Ameríku árið 1986 og kláraði þar BS gráðu í fjármálafræði. Eftir námið vann ég í meira en áratug á Wall Street sem bankamaður, en eftir árásirnar á Tvíburaturnana (e.World Trade Center) 11. september 2001, fór botnin úr verðbréfamarkaðnum og óhug sló í mig. Í lok árs 2002 flutti ég […]