Sérstök framsetning hjá Páli og Stefáni

Páll Scheving Ingvarsson, formaður þjóðhátíðarnefndar, svarar nafna sínum Magnússyni og Stefáni Jónssyni fullum hálsi en hvetur um leið til málefna­legrar umræðu um málefni félagsins sem hann segist ekki óttast. (meira…)

Sjúkrahúsið í Eyjum skuldar 100 milljónir

Skuldastaða Heilbrigðisstofnunar Vestmannaeyja hefur aldrei verið verri. Hópur á vegum velferðarráðuneytisins mun á næstunni fara yfir reksturinn með stjórnendum stofnunarinnar. (meira…)

Kára meinaður aðgangur að æfingu hjá Wetzlar

Landsliðsmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson lét sjá sig á æfingu hjá Wetzlar í morgun. Hann hafði lýst því yfir að hann myndi gera það þó svo félagið væri búið að reka hann. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis mætti Kári framkvæmdastjóra félagsins, Björn Seipp, fyrir utan íþróttahöllina er hann ætlaði sér að ganga inn. Seipp meinaði Kára inngöngu […]

David James reynir að sannfæra Phil Neville um að koma í ÍBV

David James, markvörður ÍBV, er strax farinn að reyna að sannfæra samlanda sína og fyrrum landsliðsfélaga um að koma til Eyja. Phil Neville staðfesti í dag að hann myndi hætta í liði Everton eftir tímabilið og vill James endilega fá hann í ÍBV. Þetta kemur fram á 433.is. (meira…)

Ágreiningur um �?jóðhátíð en ekki deildir

Vegna yfirlýsingar frá Jóhanni Péturssyni og Guðnýju Hrefnu Einarsdóttur, stjórnarmönnum í ÍBV Íþróttafélagi, viljum við undirritaðir stjórnarmenn taka fram eftirfarandi: Það er rétt hjá þeim Jóhanni og Guðnýju Hrefnu að talsvert hefur skort á eindrægni innan stjórnar ÍBV Íþróttafélags á síðasta starfsári. Þær deilur hafa þó ekki snúist um hagsmunabaráttu milli einstakra deilda innan félagsins, […]

�?fingar vegna ferminga í dag

Í dag, þriðjudaginn 9. apríl er æfing fyrir fermingar þeirra barna sem fermast helgina 13. og 14. apríl. Þau sem fermast laugardaginn 13. apríl eiga að mæta á æfingu klukkan 17:00 í safnaðarheimilið ásamt foreldrum. Þau sem fermast 14. apríl mæta á sama stað klukkan 18:00 með foreldrum. (meira…)

Jóhann og Guðný hætta í stjórn ÍBV

Jóhann Pétursson, formaður ÍBV-íþróttafélags undanfarin ár, og Guðný Einarsdóttir, sem hefur lengst af starfað sem gjaldkeri í stjórn félagsins, hafa ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 18. apríl og verður þá kosið í nýja stjórn. Tilkynningu frá þeim Jóhanni og Guðnýju má lesa hér að neðan. […]

Eyjamenn ekki áfram eftir jafntefli

Eyjamenn sóttu Fylki heim í Árbæinn í síðasta leik sínum í 1. riðli Lengjubikarsins. Eyjamenn áttu afar veika von um að komast í úrslit keppninnar og þurftu nauðsynlega á sigri að halda, auk þess sem úrslit úr öðrum leikjum þurftu að falla með liðinu. ÍBV byrjaði vel, skoraði fyrstu tvö mörkin en Fylkir náði að […]

Gunnar skoraði aftur fyrir Norrköping

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrra mark Norrköping í kvöld þegar lið hans lagði Gefle að velli, 2:1, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gunnar kom Norrköping yfir í fyrri hálfleiknum en gestirnir jöfnuðu og allt stefndi í jafntefli þegar Imad Khalili skoraði sigurmarkið rétt fyrir leikslok, eftir sendingu Gunnars Heiðars. (meira…)

David James spilar ekki í kvöld

David James spilar ekki með ÍBV gegn Fylki í Lengjubikarnum í kvöld en leikur liðanna fer fram á gervigrasinu í Árbænum. Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV staðfestir þetta í samtali við Vísir.is. Leikur ÍBV og Fylkis hefst klukkan 18:15 en á morgun halda Eyjamenn í æfingaferð til Englands. (meira…)

Páll Pálmason Íslandsmeistari

Páll Pálmason tryggði sér um helgina Íslandsmeistaratitil í snóker 67 ára og eldri. Mótið fór fram í Reykjavík en tveir Eyjamenn tóku þátt í mótinu, Páll og Kristján Egilsson. Þeir félagar æfa saman snóker í Kiwanis og sú æfing skilar greinilega árangri því Kristján varð í öðru sæti í mótinu. (meira…)

Tveir nýir leikmenn í ÍBV

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu hefur samið við Nadia Lawrence um að spila með liðinu næsta sumar. Nadia er 24 ára sóknarmaður frá Cardiff en hún kemur að mestu á eigin vegum. Þá hefur félagið einnig samið við sóknarmanninn Rosie Sutton frá Ástralíu en Rosie er 23 ára og kemur frá félaginu Perth Glory. (meira…)

Svava Tara úr leik

ÍBV hefur orðið fyrir enn einu áfallinu því varnarmaðurinn efnilegi, Svava Tara Ólafsdóttir mun ekkert leika með liðinu í sumar. Kristín Erna Sigurlásdóttir sleit krossband í hné og mun ekki heldur leika með liðinu í sumar. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV (meira…)

Íhugun á páskum

Þessa dagana er vel við hæfi að lesa og velta fyrir sér Passíusálm­um Hallgríms Péturssonar. Þeir eru sannkallað meistaraverk og eiga í svo mörgum skilningi fullt og ótvírætt erindi við nútímann. Þeir geta einnig verið okkur víti til ­varnaðar nú á þeim tæpa mánuði sem lifir fram að kosningum. Hrun- og útrásarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, […]

Sköpum ungu menntuðu fólki í Eyjum tækifæri

Eitt mikilvægasta verkefni okkar er að líta til framtíðar og finna leiðir til að skapa ný tækifæri. Hve mörg okkar eiga ekki börn sem hafa ­menntað sig, en eiga ekki tækifæri til að vinna í samræmi við menntun sína á heima­slóð. (meira…)

Herjólfur, vorboðinn ljúfi

Góðar og greiðar samgöngur eru undirstaða byggðar og forsenda eflingar og þróunar hennar. Þetta vita Eyjamenn enda eru góðar samgöngur þeim sérstaklega mikilvægar. Uppbygging Landeyjahafnar var að sönnu mikið framfaraskref í samgöngumálum Vestamannaeyja. En betur má ef duga skal. Land­eyja­höfn er ekki enn orðin heilsárs­höfn – því verður að breyta. (meira…)

ÍBV áfram eftir sigur í Hafnarfirði

ÍBV er komið í undanúrslit eftir sex marka sigur á FH í síðari leik liðanna sem fram fór í Hafnarfirði í dag. Tvo sigurleiki þurfti til að komast áfram í undanúrslitin en ÍBV vann fyrri leik liðanna í Eyjum eftir framlengdan leik. Í undanúrslitum un ÍBV mæta Fram, sem lagði Gróttu að velli í tveimur […]

Af hverju?

Hvernig tókst að plata þig í þetta, var spurning sem ég fékk fljótlega eftir að ég ákvað að taka efsta sæti á lista Hægri grænna fyrir komandi kosningar til Alþingis. Ég viður­kenni það að ég var á báðum áttum. Stjórnmálastarf hér á landi hefur ekki beint góða ímynd á sér. Traust á Alþingi og stjórnmálaflokka […]

Theodór og Drífa áfram hjá ÍBV

Í gær skrifuðu tvö af efnilegustu handboltafólki landsins, þau Drífa Þorvaldsdóttir og Theodór Sigurbjörnsson, undir nýjan samning hjá ÍBV. Drífa skuldbindur sig til að leika með félaginu út næstu tvö tímabil en Theodór næstu þrjú. Bæði hafa þau blómstrað í vetur, hafa bæði leikið með yngri landsliðum Íslands og hafa leikið lykilhlutverk í meistaraflokkum félagsins. […]

Telja sig í fullum rétti að fá Kára í landsleikina

Svo virðist sem þýska félagið Wetzlar sé á mjög þunnum ís varðandi riftun samnings við Eyjamanninn sterka Kára Kristján Kristjánsson. Kári segist sjálfur hafa óskað eftir því að vera tekinn af sjúkralista félagsins og búinn að tilkynna læknum félagsins að hann teldi sig fullfrískan. Því hafi hann talið sig í fullum rétti að leika með […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.