Hefni ófaranna eftir að plötusafnið var brennt

Í kvöld, föstudaginn 5. apríl mun hljóm­sveitin MEIK heiðra Eyjamenn með nærveru sinni. Hljóm­sveitina skipa margir af þekkt­ustu tónlistarmönnum landsins en hljómsveitin leikur eingöngu lög hinnar goð­sagna­kenndu rokksveitar KISS. Húsið verður opnað klukkan 22 en tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkutíma síðar. (meira…)

Af því að…

Ungirsjálfstæðismenn í Vestmannaeyjum fundu sig knúna til að svara greinarhöfundi einum sem lét birta nýverið mikl aáróðursgrein til höfuðs Sjálfstæðisflokknum. Í umræddri grein minnist greinahöfundur 13x á hinn ágæta flokk Sjálfstæðisflokkinn en finnur sig hvergi knúinn til að nefna sinn eigin flokk á nafn né þau gildi eða sjónarmið sem sá flokkur stendur fyrir, álasi […]

Baráttusigur ÍBV eftir framlengdan leik

FH-ingar mættu svo sannarlega tilbúnar í slaginn í leikinn gegn ÍBV í fyrstu umferð 8-liða úrslita. Leikurinn fór fram í Eyjum og það voru Hafnfirðingar sem leiddu framan af fyrri hálfleik. ÍBV náði svo undirtökunum og var með tveggja til þriggja marka forystu, allt þar til í lok leiks, að FH náði að jafna metin, […]

Eyjapeyi orðaður við ÍBV

Eyjapeyinn Gunnar Þorsteinsson, sem hefur undanfarin misseri verið á mála hjá enska félaginu Ipswich, hefur verið orðaður við ÍBV. Þetta kemur fram á Fótbolti.net Gunnar er sonur Þorsteins Gunnarssonar, sem lék í marki ÍBV á árum áður en Gunnar er 19 ára miðjumaður og á tvo leiki að baki í efstu deild með Grindavík. (meira…)

Vekur athygli á íslenskum fótbolta

Heimir Hallgrímsson, aðstoðarlands­liðsþjálfari og fyrrum þjálfari og leikmaður ÍBV, hefur sem stuðningsmaður Liverpool og áhugamaður um ensku knattspyrnuna fylgst með ferli David James, sem verja mun mark ÍBV í sumar. Hann sér ekkert nema jákvætt við það að fá James í raðir ­Eyjamanna og lofar skemmtilegu sumri í boltanum. (meira…)

Verður Kári rekinn frá Wetzlar?

Þýska dagblaðið Giessener Allgemeine greinir frá því í dag að forráðamenn Wetzlar eru afar óánægðir með að Kári Kristján Kristjánsson hafi spilað með íslenska landsliðinu í gær. Kári Kristján gekkst undir aðgerð í febrúar þar sem góðkynja æxli var fjarlægt úr baki hans. Síðan þá hefur hann ekkert spilað með Wetzlar og segir greinarhöfundur að […]

Hvers vegna?

Nú er stutt til kosninga. Í öllum könnunum vekur mesta athygli að fylgi Sjálfstæðisflokksins er á hraðri niðurleið svo annað eins hefur ekki gerst fyrr í sögunni. Þegar svo er komið veltir maður fyrir sér hvað þessu veldur. Ég held reyndar að skýringarnar séu tiltölulega einfaldar. Ég held að þjóðin sé loks búin að sjá […]

Búið að upplýsa innbrotið á Conero

Búið er að upplýsa innbrot á veitingastaðinn Conero. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá lögreglunni í Vestmannaeyjum en tilkynnt var um innbrotið í gærdag. Þrír aðilar voru handteknir síðdegis í gær, grunaðir um innbrotið og við leit í húsnæði hjá einum þeirra, fannst mest af því áfengi sem tekið var í innbrotinu. (meira…)

Taka á móti FH í dag

Kvennalið ÍBV tekur á móti FH í dag klukkan 18:00 í Íþróttamiðstöðinni í fyrstu umferð 8-liða úrslita Íslandsmóts kvenna í handbolta. ÍBV endaði í þriðja sæti deildarinnar á meðan FH endaði í því sjötta, eftir harða baráttu við HK og Stjörnuna um fjórða sætið. (meira…)

Eyjafréttir koma út á morgun, fimmtudag

Þar sem páskahelgin teygði sig inn í vinnuvikuna, seinkar útgáfu Eyjafrétta í þessari viku um einn sólarhring. Blaðið kemur út síðdegis á morgun, fimmtudag. (meira…)

Stefnt á Landeyjahöfn síðdegis

Stefnt er að því að Herjólfur sigli til Landeyjahafnar síðdegis í kvöld, miðvikudag. Eins og staðan er nú í og við höfnina, þarf að haga siglingum þangað eftir flóðatöflu og því breytist áætlun skipsins. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 19:00 og 21:00 en frá Landeyjahöfn klukkan 20:00 og 22:00. Ölduhæð nú er innan mark, 2,1 […]

Jethro Tull á leiðinni til Eyja

Breska sveitin Jethro Tull er væntanleg til Íslands í byrjun júní og efnir til þrennra tónleika í heimsókn sinni, þar sem sveitin flytur öll sín þekktustu lög. Tónleikarnir verða í Hofi á Akureyri föstudaginn 7. júní, í Höllinni í Vestmannaeyjum laugardaginn 8. júní og í Eldborgarsal Hörpu í Reykjavík sunnudaginn 9. júní. Íslenskir tónlistarmenn koma […]

Hvað ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að gera?

Hvað á að gera? 20% lægri höfuðstóll meðal íbúðarláns á næstu árum með skattaafslætti og skattfrjálsum séreignarsparnaði. Hvernig virkar þetta? Þeir sem greiða af húsnæðislánum fá skattaafslátt sem getur verið allt að 40.000 kr á mánuði sem verður notaður til að greiða niður höfuðstól lánsins. (meira…)

Framsóknarmenn funda í kvöld

Í kvöld klukkan 20:00, mun Framsóknarflokkurinn halda fund á veitingastaðnum Einsi Kaldi á Hótel Vestmannaeyjum. Á fundinum verður varaformaður flokksins og efsti maður á lista í Suðurkjördæmi, Sigurður Ingi Jóhannsson, Páll Jóhann Pálsson, þriðji maður á lista í Suðurkjördæmi og Eyjamaðurinn Jónatan Guðni Jónsson sem situr í áttunda sæti á lista Framsóknar. (meira…)

Er mjög spennandi

„Ég hef verið atvinnumaður í 26 ár en nú tekur við nýr kafli á mínum ferli sem ég er mjög spenntur fyrir. Ég vildi spila með ÍBV á móti Víkingi Ólafsvík í fyrrakvöld en Hermann vildi það ekki þar sem ég var ekki búinn að skrifa undir samning. Það er komnar um átta vikur síðan […]

David James skrifar undir í dag

David James, markvörður tilkynnti það í dag á Twitter, að hann muni skrifa undir hjá ÍBV í dag, þriðjudag. James var hér á landi um páskana, æfði m.a. með Eyjaliðinu í Vestmannaeyjum um helgina og var á bekknum þegar liðið lagði Víking Ólafsvík í Lengjubikarnum í gær. (meira…)

Hittu gamlan félaga

Þeir Heimir Hallgrímsson, aðstoðarþjálfari A-landsliðsins og Jóhannes Ólafsson, stjórnarmaður KSÍ hittu á fyrrum leikmann ÍBV á ferð sinni með íslenska landsliðinu í Slóveníu á dögunum. Andrej Jerina er einn eftirminnilegasti leikmaður sem hefur spilað með ÍBV og líklega einn af betri erlendu leikmönnum sem hingað hafa komið. (meira…)

Patrick og Guðbjörn Vestmannaeyjameistarar í FIFA 2013

Þeir Patrick Ritmüller og Guðbjörn Guðjónsson, sem skipuðu liðið Khedira eru Vestmannaeyjameistarar í FIFA 2013 en mótið fór fram föstudaginn 29. mars síðastliðinn. Mótið fór þannig fram að tveir skipuðu hvert lið en fyrst fór fram riðlakeppni og svo útsláttarfyrirkomulag eftir það. Alls voru keppendur rúmlega 30 talsins, sem er metþáttaka en þetta var í […]

Víða erfiðar hafnaraðstæður

Nú gengur um manna á milli á Facebook myndband þar sem afar sérstöku hafnarlægi er gerð góð skil. Myndbandið sýnir ferjuna Adamantios Korais nálgast höfnina í Kimolos í Grikklandi en ferjunni er bakkað að hafnarkantinum við afar erfiðar aðstæður. Farþegar hlaupa svo í land og enda margir vel blautir eftir ágang sjávar yfir bryggjuna. Sjón […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.