Safna myndum áhugaljósmyndara úr Heimaeyjargosinu

Kiwanisklúbburinn Eldfell, sem að mestu er skipaður Eyjamönnum á höfuðborgarsvæðinu, hefur hleypt af stokkunum söfnun á ljósmyndum frá því í Heimaeyjargosinu 1973. Einnig hafa þeir áhuga á myndum frá Surtseyjargosinu. Myndir sem ekki eru á stafrænu formi verða skannaðar fyrir fólk og fær það myndir sínar til baka, bæði frummyndirnar og myndirnar á stafrænu formi. […]
Engin sanddæla og hönnun Herjólfs ekki lokið

Í gær var greint frá því að frumhönnun á nýjum Herjólfi væri lokið og að sanddæla yrði áföst skipinu þannig að Herjólfur myndi sjá um að dæla upp sandi í Landeyjahöfn. Það er auðvitað ekkert til í þessu enda 1. apríl í gær og fréttin sett inn af því tilefni. (meira…)
Eyjamenn lögðu Víking �?. að velli

Í dag áttust við úrvalsdeildarliðin ÍBV og Víkingur Ólafsvík í Lengjubikarnum. Víkingar komust í fyrsta sinn upp í úrvalsdeild síðasta sumar og hafa verið að spila vel í Lengjubikarnum, hafa m.a. unnið bæði FH og Fylki í keppninni og eru efstir í 1. riðsli A-deildar. En fyrsta tap Ólsara kom í dag gegn ÍBV, því […]
Gunnar Heiðar fagnaði afmælinu með sigurmarki

Eyjamaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson fagnaði 31. afmælisdegi sínum með því að skora sigurmark Norrköping þegar liðið lagði Mjallby að velli 2:1 í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Gunnar Heiðar skoraði markið á 69. mínútu en leikirnir voru í fyrstu umferð sænsku deildarinnar. (meira…)
Léttir sleginn af

Jæja þá er búið að taka ákvörðun um að slá hið aldna fley Létti af sem hafnsögubát. Það er kanski ástæða að óska Vestmannaeyjingum til hamingju með þessa ákvörðun og góð afmælisgjöf handa Létti sem verður jú 80 ára á næsta ári. En svona án alls gríns hvað er í gangi Léttir þessi gamli og […]
Herjólfur í Landeyjahöfn síðdegis

Herjólfur mun sigla til Landeyjahafnar síðdegis í dag, 1. apríl. Brottför verður frá Vestmannaeyjum klukkan 17:30 og 19:00 og frá Landeyjahöfn klukkan 20:30 og 21:30. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Eimskip en þar segir jafnframt að ef aðstæður breytast til verri vegar fram að brottför, verður send út tilkynning þess efnis. (meira…)
Sanddæla fylgir nýjum Herjólfi

Nú er frumhönnun á nýjum Herjólfi lokið. Reiknað er með að skipið verði 52 metra langt og 10 metra breitt en skipið mun rista 2,3 metra. Sérstök sanddæla verður föst við botn skipsins sem getur dælt upp sandi meðan Herjólfur siglir inn í Landeyjahöfn, og þannig séð alfarið um dýpkunarframkvæmdir í höfninni yfir sumartímann. Það […]
Herjólfur sigldi í morgun til �?orlákshafnar, en kannski til Landeyjahafnar seinnipartinn

Herjólfur sigldi til Þorlákshafnar í morgun en þar er nú 2.2 metra ölduhæð. Ekki var hægt að mæla dýpi í Landeyjahöfn í gær, sunnudag vegna ölduhæðar. Ölduspá gerir ráð fyrir lækkandi ölduhæð í dag, mánudag. Ef það gengur eftir mun dýpi verða mælt og ef aðstæður leyfa mun Herjólfur sigla til Landeyjahafnar seinni part annars […]
Upprisan er mikilvægust

Páskahátíðin er mikilvægasta hátíð kristinna manna. Þá reis Jesús Kristur upp frá dauðum og kristnir menn hafa alla tíð litið á upprisuna sem grundvöll trúar sinnar. Upprisan breytti því öllu. Við minnumst þess um helgina að Kristur var krossfestur, dáinn og grafinn en á þriðja degi reis hann aftur upp frá dauða og situr nú […]
James í Eyjum

Enski landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi, David James er þessa stundina staddur í Vestmannaeyjum. Sem kunnugt er, hefur James verið orðaður við lið ÍBV í nokkrar vikur enda æfði hann með félaginu fyrr í vetur og hefur sjálfur gefið í skyn að hann spili með ÍBV. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta er verið að leggja lokahönd á samning við leikmanninn […]
Vits er þörf þeim er víða fiskar

Aukning á gagnsæi á öllum stigum samfélagisins er eitt aðaláherslumála Pírata, en fólk spyr oft hvernig gagnsæi eigi við og hvernig það bæti samfélagið. Við verðum að muna að gagnsæi er ekki markmið í sjálfu sér, heldur er það nauðsynlegur undanfari þess að geta tekið upplýstar ákvarðanir. Fiskiðnaðurinn er einn mikilvægasti iðnaðurinn á Íslandi. Hann […]
Herjólfur siglir til �?orlákshafnar það eftir er mars

Samkvæmt núgildandi ölduspá eru verulegar líkur á því að siglt verði til Þorlákshafnar frá föstudegi og fram í næstu viku. Allir farþegar sem eiga bókað far með Herjólfi föstudag til sunnudags eru þegar skráðir til Þorlákshafnar þannig að sú niðurstaða að sigla þangað kallar ekki á nein viðbrögð eða breytingar. (meira…)
Er framtíðin björt?

Mér finnst hafa skapast undarlegt andrúmsloft á Alþingi undanfarið sem ekki er vænlegt til árangurs. Einhver hroki og besserwisseraháttur – það virðast allir vita hvernig á að leysa málin og hinn aðilinn virðist ALLTAF hafa vitlaust fyrir sér. Hvernig getur það verið? Í staðinn fyrir að þetta fólk sem er í vinnu hjá íslensku þjóðinni, […]
Metnaðarfull og fagleg sýning

Leikfélag Vestmannaeyja frumsýnir á morgun, fimmtudag, söngleikinn Grease í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Kvikmyndina Grease, eða Koppafeiti eins og hún hét á okkar ylhýra móðurmáli, þekkja allir enda ein allra vinsælasta söngvamynd kvikmyndasögunnar. Veturliði Guðnason samdi íslenska texta laganna en í aðalhlutverki eru þau Ævar Örn Kristinsson, sem leikur Danny Zuko, Emma Bjarnadóttir, sem leikur Sandy […]
Á þriðja tug listamanna frá Eyjum á leiðinni vestur

Um helgina fer fram á Ísafirði hin árlega rokkhátíð alþýðunnar Aldrei fór ég suður. Þar eigum við Eyjamenn að sjálfsögðu okkar fulltrúa og það á þriðja tug. En það eru hljómsveitin Blind Bargain og Lúðrasveit Vestmannaeyja. (meira…)
Nóg af stórum og góðum þorski

Þrír bátar eru gerðir út á net í Vestmannaeyjum og nú er ekki verið að eltast við tonnin. Það er verðmætið sem skiptir máli og er allt kapp lagt á að koma með sem best hráefni að landi. Þegar spáir brælu er dregið í og legið með netin í landi frekar en að draga tveggja […]
Opnun á sýningar á verkum Kjarvals klukkan 11:00 á morgun

Á morgun, Skírdag opnar sýning á verkum Jóhannesar Kjarvals sem eru í eigu Vestmannaeyjabæjar. Sýningin opnar klukkan 11:00 í Einarsstofu, ekki klukkan 14:00 eins og misritað er í auglýsingu Vestmannaeyjabæjar í Eyjafréttum. Þá verður sýningin opin frá 11 til 17, bæði á skírdag og annan í páskum. (meira…)
Lokaúttekt á nýjasta skipi flotans

Heimaey VE 1, nýjasta skip Ísfélags Vestmannaeyja, er í slipp í Reykjavík. Að sögn Eyþórs Harðarsonar, útgerðarstjóra Ísfélags Vestmannaeyja, eru ástæður þessa þær að ábyrgð skipsins rennur út fljótlega og venjan er að skoða skip rækilega við þau tímamót. Heimaey kom til landsins í apríl 2012 og var smíðuð í Síle. (meira…)
Árleg Páskagang á páskadag, Kjarvalsýning í safnhúsi

Framundan er fjölbreytt páskahelgi í Vestmannaeyjum. Í fréttatilkynningu frá Vestmannaeyjabæ segir að m.a. verði boðið upp á sýningu á verkum Kjarvals í Einarsstofu, hina árlegu páskagöngu í Páskahelli, frumsýningu Leikfélags Vestmannaeyja á Grease, dansleik með hljómsveitinni Buff auk þess sem söfn Vestmannaeyjabæjar verða opin. Dagskrána í heild má sjá hér að neðan. (meira…)
Hægri grænir með fund í Eyjum í dag

Í dag, miðvikudag kl. 17.30 verða Hægri grænir með opinn fund á Kaffi kró. Farið verður yfir helstu kosningamál flokksins, til að mynda kynslóðasáttina, ríkisdalinn, skattastefnu og önnur mál sem brenna á fundargestum. (meira…)