Andlegt ævintýri Heilunarfélags Íslands

Heilunarfélag Íslands leggur upp í Andlegt ævintýri á morgun, fimmtudaginn 25. apríl í Skátaheimilinu við Faxastíg milli klukkan 13 og 17. Þar verður m.a. boðið upp heilun, reiki-heilun, blómadroparáðgjöf, tarot lestur, miðlun, svæðanudd, höfuðbeina- og spjaldhryggsjöfnun. Aðgangseyrir er aðeins 2.000 krónur en dyrum verður lokað 13:30. (meira…)

Lagabálkur til varnar hagsmunum fjórflokksins

Nú þegar framboðsfrestur er runn­inn út er ljóst að hér í Suðurkjör­dæmi verða ellefu framboð til kosninga. Aðeins fjögur þeirra voru í boði fyrir fjórum árum. Þegar kosninga­löggjöfinni var breytt árið 2000 má segja að gömlu valda­flokkarnir hafi lagt ýmsar hindranir fyrir óþægileg klofningsframboð. Um leið gerði fjórflokkurinn nýjum flokkum mun erfiðara um vik að […]

�?ryggi farþega og áhafnar mikilvægast

Það vakti athygli í tíufréttum Ríkis­sjónvarpsins í gær þegar ­Elliði Vign­isson, bæjarstjóri, hélt því fram í viðtali að hugsanlega þyrfti að loka Landeyjahöfn á meðan smíði nýrrar ferju ætti sér stað. Elliði segir það ekki rétt að hann vilji loka Landeyja­höfn. Hann geri hins vegar þá kröfu að siglingar þangað séu öruggar fyrir farþega og […]

Jafnrétti milli landshluta

Jafnréttisbaráttan er eitt af mikil­vægustu verkefnum stjórnmálanna á öllum tímum. Við þurfum að ­tryggja jafnrétti barna okkar til ­tækifæra í lífinu, jafnrétti íbúanna til lífskjara, jafnrétti kynja og jafnrétti óháð kynþætti, trú eða kyn­hneigð­. Fagurt mannlíf getur aldrei þrifist þar sem misrétti og aðstöðumunur einkennir samfélagið. (meira…)

Kæri kjósandi, þinn tími er komin

Nú hyllir undir að langri törn við undirbúning kosninga ljúki. Ég vil þakka þeim gríðarlega fjölda fólks sem tekið hefur á móti mér og félögum mínum á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hlustað á og gefið okkur tækifæri til að kynna okkar málstað. Ég hef haft mikið yndi af þeim löngu en skemmtilegu ferðalögum sem ég […]

Jón Gunnlaugar að taka við ÍBV?

Jón Gunnlaugur Viggósson mun taka við kvennaliði ÍBV í handbolta. Þetta er fullyrt á Sport.is en Svavar Vignisson hefur þjálfað liðið undanfarin ár. Jón Gunnlaugur þjálfaði FH í vetur, sem mætti einmitt ÍBV í 8-liða úrslitum. Samkvæmt heimildum Sport.is mun Jón Gunnlaugur skrifa undir samning við ÍBV í dag. (meira…)

David James hélt hreinu í fyrsta leik

Enski landsliðsmarkvörðurinn fyrrverandi, David James lék fyrsta leik sinn fyrir ÍBV í æfingaleik gegn Njarðvík í gær. Leikurinn fór fram á grasvellinum í Njarðvík en James hélt hreinu í fyrsta leik því lokatölur urðu 3:0 fyrir ÍBV. Hermann Hreiðarsson kom einnig við sögu og lék síðustu fimm mínútur leiksins. (meira…)

Hörður Másson genginn í raðir ÍBV

Handboltamaðurinn Hörður Másson skrifaði í gær undir samning við ÍBV en samningurinn er til eins árs. Hörður er örvhent skytta sem lék með HK og Selfossi í fyrra. Hann lék 13 leiki með Selfossi og skoraði í þeim 54 mörk. (meira…)

Komum í veg fyrir slys

Skoðanakannanir benda nær allar til þess nú dagana fyrir kosningar að ómenguð hægri stjórn taki við völdum á Íslandi innan skamms. Vissulega eru þetta alvarleg tíðindi og almenningur á Íslandi þarf allt annað nú en samstjórn Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks. Þessir tveir flokkar bíða eftir því að fá að: (meira…)

Lúðraveisla í bæjarleikhúsinu í kvöld

Í kvöld, síðasta vetrardag, kl.20:30 mun verða blásið til mikillar Lúðraveislu í Bæjarleikhúsinu að Heiðarvegi. Þá munu Lúðrasveit Vestmannaeyja og Musical Adventures Concert Band, sem er lúðrasveit frá Alberta í Kanada, leiða saman hesta sína og spila þar ýmist sundur eða saman fjölbreyttan lagalista. (meira…)

Skipt um klukku í Íslandsbanka

Það vakti athygli í gær þegar sást til manna við húsnæði Íslandsbanka í Vestmannaeyjum. Unnið var að viðgerð á klukku sem hefur verið utan á húsinu svo lengi sem elstu menn muna. Reyndar hefur það verið þannig síðasta áratuginn eða svo, að klukkan hefur ekki virkað. Það er kannski kaldhæðni örlaganna að klukkan stoppaði 15:57 […]

Hönnun og smíði nýrrar ferju boðin út á Evrópska efnahagssvæðinu

Nú rétt í þessu var að ljúka blaðamannafundi með Ögmundi Jónassyni, innanríkisráðherra þar sem hann kynnti áætlun um útboð á hönnun og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju á Evrópska efnahagssvæðinu. Hönnunin verður boðin út sérstaklega og þegar hönnunarvinnu lýkur, verður smíðin boðin út. „Miðað er við að hönnunin verði boðin út í byrjun maí 2013, hún geti […]

Skóladagur Grunnskólans á morgun

Skóladagur GRV – Hamarsskóla verður miðvikudaginn 24. apríl. Fjölbreytt dagskrá verður í boði sem nemendur og gestir geta tekið þátt í. Að venju hefst dagurinn í Íþróttahúsinu með lúðrablæstri Litlu lúðrasveitarinnar kl. 16:30 og danssýningu nemenda sem hefst kl. 16:45. Strax eftir danssýningu verður skólinn opnaður. Í stofum og á göngum skólans verður sýning á […]

Erlingur Richardsson með tilboð frá Austurríki í höndunum

Erlingur Richardsson, aðstoðarþjálfari meistaraflokks og yfirþjálfari handboltaakademíu ÍBV, er með tilboð í höndunum frá austurríska úrvalsdeildarliðinu SG Insignis Westwien. Þetta staðfesti Erlingur í samtali við Sport.is fyrr í dag. (meira…)

Opinn kosningafundur á Suðurland fm

Útvarpsstöðin Suðurland Fm, útvarp Sunnlendinga efnir til opins borgarafundar í Hvítahúsinu þriðjudaginn 23. apríl. Kosið verður til Alþingis þann 27. apríl og hafa framboðin verið að koma stefnumálum sínum á framfæri og er hér um að ræða fund þar sem hægt er að spyrja frambjóðendur kjördæmisins spjörunum úr um hvaða áherslur þeir leggja á hin […]

Hvað tekur við?

Þegar núverandi ríkisstjórn settist að völdum fyrir góðum 4 árum tók hún við samfélagi í rúst. Öll fjármálasterfsemi í landinu var lömuð, viðskiptabankarnir gjaldþrota og seðlabanki landsins óstarfhæfur þar sem hann hafði verið tæmdur. Skuldavandi heimilanna var þvílíkur að þar blasti við hrun eitt með hræðilegum afleiðingum fyrir íslenskan almenning. Annað var eftir þessu. Þetta […]

Pólfarinn Vilborg Arna heimsækir Vestmannaeyjar

Vilborg Arna Gissurardóttir, pólfari heimsækir Vestmannaeyjar í dag, þriðjudaginn 23. apríl. Vilborg gekk í 60 daga á Suðurpólinn en það er Íslandsbanki sem býður upp á fyrirlestur Vilborgar, sem verður í Höllinni klukkan 17:00. (meira…)

Góðir gestir á aðalfundi Skógræktarfélags Vestmannaeyja

Í dag, mánudaginn 22.apríl verður haldinn aðalfundur Skógræktarfélags Vestmannaeyja í Arnardrangi kl: 20. Á fundinn koma góðir gestir frá Suðurlandsskógum þeir Björn B. Jónsson og Hallur Björgvinsson og munu ræða um skógrækt í víðum skilningi og gera grein fyrir saltþolnum trjátegundum til skógræktar. (meira…)

Samkeppniseftirlitið aðhefst ekki vegna kaupa á Bergi-Hugin

Samkeppniseftirlitið ætlar ekki að aðhafast vegna kaupa Síldarvinnslunnar hf. á öllu hlutafé í útgerðafélaginu Bergur-Huginn ehf. Bergur-Huginn rekur útgerð í Vestmannaeyjum og Síldarvinnslan er ein öflugasta útgerð landsins og rekur einnig vinnslu í landi. Síldarvinnslan er í eigu Samherja og Gjögurs. (meira…)

Ekið utan í þrjár bifreiðar

Vikan var með rólegra móti hjá lögreglu þó upp hafi komið hin ýmsu mál sem leysa þurfti, eins og gerist og gengur. Skemmtanahald helgarinnar fór fram með ágætum og ekki mikið um að lögreglan hafi verið kölluð á öldurhús bæjarins. (meira…)

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.