Myndir, bréf, póstkort og minjagripir Noregsfara 1973 óskast

Goslokanefnd og norska sendiráðið á Íslandi stefna að því að setja upp sýningu á goslokahátíðinni, þar sem rifjuð verður upp ferð ungmenna frá Vestmannaeyjum til Noregs. Eins og margir muna bauð norski Rauði krossinn öllum ungmennum frá Vestmannaeyjum til sumardvaldar í Noregi 1973. (meira…)
Töluvert um útstrikanir í Suðurkjördæmi

Kjörsókn í Suðurkjördæmi var heldur minni í Alþingis kosningunum í gær en í síðustu kosningum. Alls greiddu tæp 82% atkvæði í kjördæminu í gær, um fjórum prósentustigum færri en síðast. (meira…)
Herjólfur hugsanlega í Landeyjahöfn síðdegis

Ákveðið hefur verið að Herjólfur fari frá Eyjum klukkan 15:30, eins og gert er þegar siglt er til Þorlákshafnar. Hins vegar er ölduhæð að lækka við Landeyjahöfn og í tilkynningu frá Eimskip, kemur fram að ef aðstæður verði orðnar nógu góðar í Landeyjahöfn við brottför skipsins, verður siglt þangað. Að öðrum kosti verður siglt til […]
�?essir sitja á þingi í Suðurkjördæmi á komandi kjörtímabili

Lokatölur úr Alþingiskosningunum í Suðurkjördæmi lágu fyrir um klukkan sex í morgun. Úrslitin voru þau að Framsóknarflokkurinn fékk 9.262 atkvæði eða 34,5%. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 7.594, eða 28,3%, Samfylkingin fékk 2.734, eða 10,2%, Vinstri grænir 1.581 atkvæði eða 5,9%, Píratar 1.268 atkvæði eða 4,7% og Björt framtíð 1.202 atkvæði eða 4,5%. Framsóknarflokkurinn fær fjóra þingmenn, eins […]
Kjörsókn ögn lakari nú en 2009

Þegar klukkustund er í að kjörfundi ljúki í Vestmannaeyjum, hafa 64,4% atkvæðabærra manna kosið. Til samanburðar höfðu, á sama tíma í síðustu Alþingiskosningum 2009 67,7% kosið. Þá höfðu 69,3% kosið á sama tíma í Alþingiskosningunum 2007 og 72,4% árið 2003. Á þessu má sjá að kjörsókn hefur heldur legið niður á við í Vestmannaeyjum en […]
Tveir Íslandsmeistaratitlar yngri flokka í dag

Í dag fóru fram úrslit yngri flokka í handbolta. ÍBV átti tvö lið í úrslitum, eldra ár 5. flokks kvenna og yngra ár 4. flokks karla. Bæði lið náðu þeim glæsilega árangri að vinna sína leiki og verða Íslandsmeistari. Strákarnir lögðu HK að velli, 20:19 í æsispennandi leik en staðan í hálfleik var 10:8 ÍBV […]
Kjörsókn nokkru minni en síðast

Kjörsókn í Suðurkjördæmi klukkan 12:00 var 11,66% sem er nokkru minna en á sama tíma í þingkosningunum 2009 en þá var kjörsókn á hádegi um 12%. Karl Gauti Hjaltason, formaður yfirkjörstjórnar í Suðurkjördæmi segir að kosningarnar hafi gengið vel í kjördæminu og gott hljóð sé í kjörstjórnum. (meira…)
Siglt til Landeyjahafnar ef aðstæður leyfa

Herjólfur mun sigla frá Vestmannaeyjum klukkan 15:30. Í tilkynningu frá Eimskip, rekstraraðila Herjólfs kemur fram að ef aðstæður leyfa, verður siglt til Landeyjahafnar en að öðrum kosti til Þorlákshafnar. Ef hægt verður að sigla til Landeyjahafnar, verður brottför þaðan 16:30 en ef siglt verður til Þorlákshafnar, þá er brottför þaðan klukkan 19:15. (meira…)
Vill lausnir til að bæta nýtingu Landeyjahafnar

Fulltrúi Eimskips átti ekki möguleika á að mæta á borgarafund um samgöngur í síðustu viku en í ávarpi sem Gylfi Sigfússon, forstjóri félagsins, sendi fundinum sagði hann Eimskip hafa lagt mikinn metnað í þjónustu Herjólfs þó alltaf megi gera betur. „Ég veit að fundurinn er ekki að fjalla um þjónustu Eimskips heldur þá sjálfsögðu kröfu […]
�??Komin með ógeð af stjórnmálum…

…og stjórnmálamönnum sem standa aldrei við neitt sem þeir segja. Ég veit ekki hvort ég nenni einu sinni að kjósa.“ Setning sem ég hef heyrt nokkrum sinnum í kosningabaráttunni undanfarna daga. Setning sem felur í sér algert vonleysi og uppgjöf. Ég get lofað því að Framsókn ætlar ekki að gefast upp. Framsókn er sá flokkur […]
Kosið til Alþingis í dag

Ef það hefur farið framhjá einhverjum, þá verður í dag kosið til Alþingis. Kjörstaður í Vestmannaeyjum er í Barnaskóla og er gengið inn um norður- og suðurdyr en aðgengi fatlaðra er um norðurdyr. Kjörfundur hefst klukkan níu árdegis og lýkur um tíu um kvöldið. Bænum er skipt í tvær kjördeildir en skiptinguna má sjá hér […]
Gunnar Heiðar sjóðandi heitur í byrjun tímabils

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði tvö mörk í kvöld og lagði upp tvö þegar Norrköping vann Häcken 4:2 í sænsku úrvalsdeildinni. Gunnar Heiðar hefur heldur betur farið vel af stað eftir gott tímabil í fyrra þegar hann varð næst markahæsti leikmaður sænsku úrvalsdeildarinnar. Gunnar hefur nú skorað fimm mörk í fyrst sex leikjum tímabilsins og virðist […]
Eyjamenn hvattir til að sækja um

Frestur til að sækja um verkefna-þróunarstyrki á vegum Sóknaráætlunar og Vaxtarsamnings Suðurlands, þetta vorið, er til 6. maí n.k. eins og auglýst hefur verið. Að sögn Finnboga Alfreðsson hjá SASS, hafa honum borist þrjár fyrirspurnir frá aðilum í Vestmannaeyjum og eru þær ennþá í ferli. Mikið er um fyrirspurnir og vangaveltur allstaðar af Suðurlandi, og […]
Hrun á fylgi Samfylkingar í Suðurkjördæmi

Í Morgunblaðinu í dag er samantekt á hugsanlegri niðurstöðu Alþingiskosninganna ef miðað er við síðustu könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands. Í Suðurkjördæmi má búast við nokkrum breytingum samkvæmt könnuninni en í kjördæminu er Framsóknaflokkurinn stærstur. Samfylkingin tapar 18% fylgi í kjördæminu frá því í kosningunum 2009 og Vinstri græn ná ekki manni á þing í Suðurkjördæmi […]
Bjartey Gylfadóttir bæjarlistamaður 2013

Myndlistakonan Bjartey Gylfadóttir er bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2013. Útnefningin fór fram í sal Listaskóla Vestmannaeyja í dag en Bjartey tekur við sem bæjarlistamaður af Leikfélagi Vestmannaeyja, sem hlaut útnefninguna í fyrra. (meira…)
�?að sem allir eru að tala um

Nú er stuttri en lærdómsríkri kosningabaráttu að ljúka. Hún hefur verið um margt skemmtileg en mest hefur mér fundist hún fróðleg. Nokkur mál standa upp úr sem lykilmál í hugum fólks fyrir komandi kosningar. (meira…)
Eitt og annað um heilbrigðisþjónustuna

Það kom fram í fréttum RUV um daginn að Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja (HSV) sé rekin með 100 milljóna króna halla. Eflaust hugsa flestir sem að skoða þá frétt að þetta sé eitt annað dæmið um stofnun sem að skorið hefur verið niður hjá eins og öðrum heilbrigðisstofnunum landið um kring. Staðan er hins vegar slæm hjá […]
Minnast kapteins Kohl

Í dag, sumardaginn fyrsta verður þess minnst að 160 ár verða þá liðin frá því kapteinn Kohl var skipaður sýslumaður í Vestmannaeyjum. Kohl stofnaði Herfylkingu Vestmannaeyja, en megintilgangur hennar var að halda uppi röð og reglu og verjast árásum sjóræningja. Liðsmenn Herfylkingar Vestmannaeyja stunduðu heræfingar og íþróttir af kappi og stóðu auk þess fyrir fjölskylduhátíðum […]
Við viljum vinna fyrir Suðurkjördæmi

Kæru íbúar í Suðurkjördæmi. Síðustu vikur hafa verið afar ánægjulegar og fróðlegar fyrir okkur frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Við höfum heimsótt fjölmarga vinnustaði, hitt fólk, haldið fundi og átt samtal við fleiri hundruð íbúa kjördæmisins. Við þökkum ykkur öllum fyrir hlýjar móttökur og skemmtilegar stundir síðustu vikur. Eftir ferðalög okkar um kjördæmið stendur upp úr […]
Jón Gunnlaugur og Svavar saman með kvennaliðið

Jón Gunnlaugur Viggósson mun starfa við hlið Svavars Vignissonar en þeir munu sjá um þjálfun kvennaliðs ÍBV í handbolt. Svavar hefur þjálfað liðið undanfarin ár en Jón Gunnlaugur þjálfaði síðast FH, sem mætti ÍBV í 8-liða úrslitum Íslandsmótsins. (meira…)