Fyrsti leikurinn í dag

Karlalið ÍBV í knattspyrnu leikur opnunarleik Íslandsmótsins í dag á Hásteinsvelli klukkan 16:00 þegar ÍA kemur í heimsókn. Miklar breytingar hafa orðið á liði ÍBV, sterkir leikmenn hafa horfið á braut en að sama skapi hafa nýir leikmenn gengið í raðir félagsins og fremstur þar í flokki er enski markvörðurinn David James. (meira…)
James Hurst í Val

Fyrrum leikmaður ÍBV, James Hurst er genginn í raðir Vals. Hurst lék með ÍBV sumarið 2010 og stóð sig afar vel, skoraði m.a. eitt stórglæsilegt mark í síðasta leik sínum fyrir félagið gegn Breiðabliki en alls lék hann 17 leiki fyrir ÍBV. Hurst var á láni hjá ÍBV frá Portsmouth en þegar hann fór frá […]
Minnihlutastjórn Framsóknar með stuðningi Sjálfstæðisflokks?

„Ég hef velt því fyrir mér hvort að ekki væri rétt að gefa Framsóknarflokknum færi á að standa við stóru orðin og hrinda í framkvæmd því loforði sem kjósendum var gefið. Svo mikið er víst að ég vona innilega að til þess geti komið. Þannig væri hægt að gefa þeim fyrirheit um að þeir verði […]
Stórdansleikur með Sálinni á morgun

Ein allra vinsælast hljómsveit Íslands, Sálin hans Jóns míns verður með stórdansleik í Höllinni á morgun, laugardag. Sálin hefur alla tíð átt stóran aðdáendahóp í Vestmannaeyjum og sem dæmi stóðu Eyjamenn að stofnun aðdáendaklúbbs sveitarinnar á sínum tíma. Sálverjar hafa einnig haldið tryggð við Eyjarnar, komið reglulega hingað og haldið böll. (meira…)
Takk fyrir okkur!

Við þökkum kjósendum í Suðurkjördæmi fyrir það mikla traust sem okkur var sýnt í nýliðnum kosningum. Markmið okkar um fjóra þingmenn náðist, hópurinn er nú klár og fjölmörg verkefni sem bíða úrlausnar um allt kjördæmi. Við viljum þakka þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sem lögðu hönd á plóginn í kosningabaráttunni. Ykkar framlag, baráttuhugur og stuðningur skipti sköpum. […]
ÍBV liðunum spáð um miðja deild

Karlaliði ÍBV er spáð 7. sæti og kvennaliðinu 5. sæti í árlegri spá forráðamanna liðanna í Pepsídeildum karla og kvenna. Spáin var gerð opinber á kynningarfundi deildanna í dag. FH er spáð sigri í Íslandsmótinu í Pepsídeild karla en Stjörnunni í Pepsídeild kvenna. Þess má geta að bæði Fótbolti.net og 433.is spáðu ÍBV 7. sæti […]
�?tsýnið úr Herjólfi það fallegasta

Markvörður ÍBV, David James er í stóru viðtali í Monitor og prýðir jafnframt forsíðu blaðsins. James fer fögrum orðum um Ísland og íslenska náttúru og rifjar m.a. upp Herjólfsferð sem honum fannst mikið til koma. „Ég fór í ferjuna um daginn og það var ótrúlegt. Himinninn og hafið, allt var skærblátt, tunglið var á lofti […]
KFS úr leik í bikarnum

KFS er úr leik í bikarnum eftir að hafa tapað fyrir Berserkjum í 1. umferðinni en leikurinn fór fram í Reykjavík. Lokatölur urðu 6:2 fyrir Berserki, sem er varalið Víkings í Reykjavík. Berserkir komust í 5:0 áður en Sæþór Jóhannesson náði að minnka muninn. Heimamenn bættu sjötta markinu við en Aron Hugi Helgason minnkaði muninn […]
Enginn búsettur í Eyjum á þing

Enginn þingmaður af þeim tíu sem taka sæti á Alþingi úr Suðurkjördæmi, er búsettur í Vestmannaeyjum. Samkvæmt því sem næst verður komist er þetta aðeins í annað sinn í sögu Alþingis sem það gerist. Af tíu þingmönnum í Suðurkjördæmi, koma sjö frá Reykjanesi. Enginn þingmaður er úr austurhluta kjördæmisins og enginn frá Vestmannaeyjum. Þingmannahópurinn er […]
Pálmi Freyr tók veðrið í síðasta sinn á miðnætti

Á miðnætti í gærkvöldi tók Pálmi Freyr Óskarsson, veðurathugunarmaður í Stórhöfða, veðrið í síðasta sinn. Þar með er lokið rúmlega 100 ára sögu veðurathugunarmanna á Stórhöfða og er Pálmi Freyr fjórði ættliðurinn í beinan karllegg sem gegnir starfinu. Héðan í frá taka við sjálfvirkar athuganir sem gefa upp vindhraða og hitastig en lýsing á sjólagi […]
�?tla að vinna vörur úr geitamjólk

Geiturnar þrjár ehf., nýtt sprotafyrirtæki í Eyjum, fékk hæsta styrk úr sjóðnum Atvinnumál kvenna en úthlutunin fór fram á dögunum. Skilyrði styrkveitinga eru þau að verkefnin séu í eigu kvenna og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun. Fyrirtækið Geiturnar þrjár ehf. eiga þær Berglind Sigmarsdóttir, Ragnheiður Sveinþórsdóttir og Heather Philp, sem eru allar búsettar hér […]
Erlingur veltir enn vöngum

Erlingur Richardsson, þjálfari karlaliðs ÍBV, liggur enn undir feldi og veltir fyrir sér tilboði frá austurríska A-deildarliðinu SG Insignis Westwien um að gerast þjálfari þess á næsta keppnistímabili. Rúm vika er liðin síðan félagið hafði samband við Erling. „Ég er enn að velta þessu fyrir mér og reikna ekki með að svara af eða á […]
Eins og gert er í óvinveittri yfirtöku fyrirtækja

Óánægja er innan bæjarstjórnar Vestmannaeyja með tilnefningu Bankasýslu ríkisins á stjórn Sparisjóðs Vestmannaeyja. Elliði Vignisson bæjarstjóri segir að Bankasýslan hagi sér eins og gert er í óvinveittri yfirtöku fyrirtækja. (meira…)
Töpuðu gegn Víkingi í æfingaleik

Karlalið ÍBV lék síðasta æfingaleik sinn fyrir komandi tímabil þegar liðið mætti Víkingi Reykjavík á SS-vellinum á Hvolsvelli. Aðstæður voru ekkert sérlega sumarlegar þegar liðin áttust við, kuldi og rok en það voru Víkingar, sem spila í 1. deild, sem höfðu betur 2:1. Víkingar komust í 2:0 áður en Kjartan Guðjónsson minnkaði muninn fyrir ÍBV. […]
Mannshöndin víkur

„Ég ólst upp við þetta, að þurfa að vera með hugann við veðurathuganir, alltaf á þriggja tíma fresti. Það hlýtur að vera undarleg tilfinning þegar það er fyrir bí,“ segir Óskar Jakob Sigurðsson, sem lengi sinnti veðurathugunum á Stórhöfða. Sonur Óskars, Pálmi Freyr, tók við af honum árið 2008 en fyrir skömmu var ákveðið að […]
Herra- og konukvöld knattspyrnudeildar 3. maí

Föstudaginn 3. maí næstkomandi mun knattspyrnudeild karla halda sitt árlega Herrakvöld. Herrakvöldið verður haldið í Höllinni en ræðumaður kvöldsins er Guðni Ágústsson en útvarpsstjórinn Páll Magnússon er veislustjóri. Knattspyrnudeild karla gætir fulls jafnfréttis þetta kvöld því deildin heldur einnig Konukvöld á veitingastaðnum Einsi Kaldi þar sem veislustjóri er Mið Íslands konan Anna Svava Knútsdóttir. (meira…)
Bradley Simmonds í raðir ÍBV

Nýjasti leikmaður ÍBV er enski miðjumaðurinn Bradley Simmonds. Simmonds var síðast á mála hjá enska úrvalsdeildarliðinu Queens Park Rangers, sem féll um síðustu helgi niður í næst efstu deild þar í landi. Greint er frá vistaskiptum Simmonds á heimasíðu QPR. (meira…)
Skortur á leiguhúsnæði hefur áhrif á HSVE

Skortur á leiguhúsnæði í Vestmannaeyjum hefur verið viðvarandi í nokkurn tíma. Svo alvarlegt er ástandið að það er farið að bitna á starfsemi Heilbrigðisstofnunarinnar í Vestmannaeyjum, þar sem starfsmenn sem ráðnir eru tímabundið fá hvergi húsnæði. (meira…)
Flestir þokkalega sáttir við niðurstöðu kosninga

Eins og fyrri vika var rólegt hjá lögreglu í liðinni viku og fór allt fram með friði og spekt við kjörstað. Lítið var um útköll á veitingastaði bæjarins og virðist sem flestir hafi verið þokkalega sáttir við niðurstöðu kosninganna. (meira…)
Um 400 strikuðu Ásmund út

Ásmundur Friðriksson var oftast strikaður út af kjörseðlum í Alþingiskosningunum í suðurkjördæmi en um 400 kjósendur Sjálfstæðisflokksins, strikuðu yfir nafn Ásmundar. Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpsins en útstrikanirnar hafa ekki áhrif á stöðu hans á listanum. Annars var mun minna um útstrikanir nú, miðað við síðustu alþingiskosningar. Nú var tæplega þremur prósentum kjörseðla breytt […]