Ekki sprengiefni við byggingu hótels

Umhverfis- og skipulagsráð fjallaði annars vegar um breytingu á aðalskipulagi í Hásteinsgryfju á íþrótta­svæði og hins vegar um breytt deiliskipulag íþrótta-og útivistar­svæðis við Hástein. Skipulagstillögurnar voru auglýst­ar frá 4. maí til 15. júní 2012 og lágu fyrir ráðinu til samþykktar. Í fund­argerð segir að á kynningarferlinu hafi borist tvær athugasemdir við báðar tillögurnar og gerð […]

Sækja Val heim í kvöld

ÍBV sækir Val heim í dag í 10. umferð Pepsídeildar kvenna í knattspyrnu en leikurinn fer fram á Vodafonevellinum. Eyjastúlkur eru í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig, aðeins stigi á eftir Stjörnunni, sem er í öðru sæti og þremur stigum á eftir Þór/KA, sem er efst með 22 stig. ÍBV gæti því með sigri […]

Stefnt að opnun vorið 2014

„Við erum á síðustu metrunum með það sem snýr að skipulagsferl­inum,“ sagði Hallur Magnússon, sem fer fyrir hópi fjárfesta sem hyggj­ast byggja 120 herbergja hótel í gryfjunni við Hástein. Bæjarstjórn Vestmannaeyja hefur samþykkt breyt­ingar á aðalskipulagi Vest­manna­eyja og hefur vísað málinu áfram til Skipulagsstofnunar. (meira…)

Tónlistin ofboðslega gefandi

Hljómsveitin Dans á rósum hefur verið starfandi frá árinu 1993. Á goslokunum héldu þeir útgáfutónleika í Höllinni sem heppnuðust sérlega vel. Á Þjóðhátíðinni sem er á næsta leyti sjá þeir um söngvakeppni barna, sem þeir hafa gert frá upphafi og hlotið mikið lof fyrir. Annar tveggja hljómsveitarmeðlima sem hefur verið í hljómsveitinni frá upphafi, er […]

Meira en helmingur ferðarinnar að baki

Ferð Eyjakonunnar Sarah Hamilton gengur vel en hún hjólar þessa dagana frá syðsta odda Bretlandseyja, til þess nyrsta. Ferðin gengur mjög vel en í gærkvöldi kom hópurinn til bæjarins Peebles við landamæri Skotlands, rétt um 35 km. sunnan við Edinborg. Að baki eru 125 km þennan daginn en Sarah sagði að þurrt hefði verið að […]

Undirbúningur að hefjast í Dalnum

Nú eru rétt rúmir 17 dagar í að Þjóðhátíð Vestmannaeyja hefjist en um 6.000 manns hafa þegar tryggt sér miða í forsölu. Forsölunni er þó ekki enn lokið, því hægt verður að nálgast miða á 16.900 til 1. ágúst en eftir það kostar miðinn 18.900 kr. Forsala miða fer fram á Dalurinn.is. Í kvöld hófst […]

Milljónatjón þegar veiðafæri brunnu

Um klukkan hálf sex í dag var Slökkvilið Vestmannaeyja kallað út vegna elds í veiðarfærum inn á Eiði, norðan við Skipalyftuna. Um var að ræða veiðarfæri Ísfélags Vestmannaeyja en þegar að var komið, var mikill eldur og náðu eldtungurnar marga metra upp í loftið. Slökkvistarf tók nokkurn tíma enda bráðna veiðarfærin, sem eru að miklu […]

Menn og málleysingjar saman í blíðunni í miðbænum

Fjölmargir hafa notið veðurblíðunnar í Vestmannaeyjum í dag, rölt í miðbæinn og jafnvel fengið sér ís. Mestmegnis hefur þetta verið mannfólkið en einhverjir málleysingjar hafa fengið að fylgja með, þá oftast hundar í ól. En ær með tvö lömb rölti í rólegheitum í miðbænum nú fyrir skömmu. Eins og gefur að skilja vakti heimsókn hennar […]

Einn handtekinn vegna líkamsárásar

Lögreglan hafði í ýmsu að snúast í vikunni sem leið vegna hinna ýmsu mála sem upp komu. Skemmtana hald helgarinnar fór þokkalega fram en þó var ein líkamsárás kærð og nokkuð um kvartanir vegna hávaða frá heimahúsum. (meira…)

Stærsta torfærumót sem haldið hefur verið í langan tíma

Einn stærsti viðburður á Goslokahátíðinni í síðustu viku var Skipalyftutorfæran sem haldin var austur á nýja hrauni. Torfærukeppni hafði ekki verið haldin í Vestmannaeyjum síðan 1984 en Björgunarfélag Vestmannaeyja og Torfæruklúbbur Suðurlands sáu um framkvæmd keppninnar í samstarfi við Skipalyftu Vestmannaeyja. Nú má sjá fjölda mynda og myndbönd frá keppninni hér að neðan. (meira…)

Mannlífið í Eyjum á sunnudagsmorgni

Halldór Halldórsson vaknaði snemma í gærmorgun, rölti um miðbæinn og niður að höfn og myndaði mannlífið í Eyjum þennan sunnudagsmorgun. Bærinn var að vakna eftir nætursvefninn. Hann rakst meðal annars nýkvæntan Gunnlaug Erlendsson sem var að halda til hafs á tuðrunni sinni ásamt nokkrum brúðkaupsgestum sínum. Ferðamenn voru mættir í Upplýsingamiðstöðina í Bárugötunni og trimmarar […]

�?rjár semja við ÍBV út tímabilið 2012

Þrjár knattspyrnukonur úr ÍBV skrifuðu í gær undir áframhaldandi samning við liðið. Þetta eru þær Shaneka Gordon, sóknarmaður, Andrea Ýr Gústavsdóttir, varnarmaður og Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, markvörður. Allar munu þær leika með ÍBV út sumarið 2013. (meira…)

Simona aftur í ÍBV

Handknattleiksráð ÍBV hefur náð samkomulagi við rúmensku skyttuna Simona Vitila um að leika á ný með liðinu. Simona lék með ÍBV síðast veturinn 2005 undir stjórn Alfreðs Finnssonar og fagnaði Íslandsmeistaratitli með ÍBV. Þá var hún einnig valin leikmaður ársins á lokahófi HSÍ. Þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV. (meira…)

Spear lánaður til Víkings R.

Enski framherjinn Aaron Spear hefur verið lánaður til Víkings Reykjavík, sem leikur í 1. deildinni. Spear hefur ekki náð að vinna sér fast sæti í liði ÍBV í sumar en þessi fyrrum leikmaður Newcastle, kom til ÍBV síðasta sumar og skoraði þá fimm mörk í tólf leikjum í deild og bikar. Í ár hefur hann […]

Vinnusigur gegn frískum Frömurum

Það má með sanni segja að Eyjamenn hafi verið heppnir að ná þremur stigum í dag þegar ÍBV tók á móti Fram. ÍBV var mun betri aðilinn fyrstu tuttugu mínúturnar en eftir það var leikurinn í jafnvægi. Christian Olsen kom ÍBV í 2:0, Olsen, Olsen eins og það er kallað, en Framarar neituðu að gefast […]

Líkamsárás í Vestmannaeyjum

Tilkynnt var líkamsárás í Vestmannaeyjum snemma í morgun. Árásarmaðurinn hefur verið handtekinn og er hann nú vistaður í fangageymslum lögreglu. Sá sem fyrir árásinni varð var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. (meira…)

Ná Eyjamenn að rífa sig upp?

Það er ekki ofsögum sagt að síðasta vika hafi verið ÍBV erfið. Liðið byrjaði á því að tapa fyrir KR á heimavelli í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar og féll svo nokkrum dögum síðar úr Evrópukeppninni með minnsta mögulega mun, eða færri mörkum skoruðum á útivelli. Í dag tekur ÍBV hins vegar á móti Fram í Íslandsmótinu […]

Vallarstjórinn vann

Örlygur Helgi Grímsson tryggði sér í dag Vestmannaeyjameistaratitilinn í golfi en Örlygur endaði með tíu högga forskot á þá Hallgrím Júlíusson og Helga Anton Eiríksson en Örlygur lék hringina fjóra á 285 höggum en þeir Hallgrímur og Helgi á 295. Þeir urðu því að spila í bráðabana um silfrið en þar hafði Hallgrímur betur. (meira…)

�?rlygur og Hallgrímur berjast um titilinn

Lokadagur Meistaramóts Golfklúbbs Vestmannaeyja hefst núna laugardagsmorguninn þegar kylfingar hefja leik á síðasta keppnisdegi. Í Meistaraflokki er það vallarstjórinn sjálfur og margfaldur meistari hjá GV, Örlygur Helgi Grímsson sem leiðir keppnina en hinn ungi og efnilegi Hallgrímur Júlíusson fylgir fast á hæla hans, er aðeins tveimur höggum á eftir Örlygi en þessir tveir virðast ætla […]

Ferðin gengur vel

7. júlí síðastliðinn lagði Eyjakonan Sarah Hamilton í mikinn hjólreiðatúr. Hún ætlar að hjóla, ásamt systur sinni, Claire Butler frá syðsta odda Bretlands, Lands End, að nyrst odda landsins, John O’Groats. Alls er leiðin um 1.600 kílómetrar en Sarah sagði í stuttu skeyti á fimmtudaginn að ferðin gengi vel, 128 kílómetrar væru að baki og […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.