�?jóðhátíð Vest­manna­­eyja

Nú fer senn að líða að þjóðhátíð sem er eins og við öll vitum, okkar stærsta hátíð á sumr­inu. Fáar útihátíðir eiga sér eins sögu­legar rætur og í augum okkar Eyjamanna er þetta dýrmæt­ur arfur sem öllum þykir vænt um og vilja vernda. Þjóðhátíð er fjölskylduhátíð þar sem Herj­ólfs­dalur er prýddur fallegum skreytingum, tjöldum slegið […]

Notalegt að hafa stillurnar

„Það er búið að rigna 1,2 mm það sem af er júlí, það er sama sem ekki neitt. Það telur lítið í jarðveginum og dauðir blettir alltaf að stækka. Þetta er mjög óvenjulegt,“ sagði Óskar Sigursson, veðurat­hugunarmaður í Stórhöfða þegar Fréttir ræddu við hann um tíðarfarið á miðvikudagsmorgun. (meira…)

Tökum okkar taki

Þjóðhátíðin er hátíð okkar Eyjamanna. Þar komum við saman og gleðjumst á okkar forsendum. Við njótum þeirrar arfleifðar sem kynslóðirnar hafa borið áfram með tónlistinni, matarhefðum, venjum og í raun öllu því sem gerir okkur að Eyjamönnum. Eins og stoltu fólki sæmir bjóðum við öllum að taka þátt í þessari einlægu gleði. Niðurstaðan er hartnær […]

Bjóðum alla velkomna á �?jóðhátíð

Það er urgur í mörgum Eyjamanninum út í þjóðhátíðina og þjóðhátíðarnefnd sem náði nýjum hæðum með ákvörðun hennar um að semja við þá Simma og Jóa um að bíll frá Hamborgarafabrikkunni fái að selja hamborgara og gos í Dalnum yfir þjóðhátíðina. (meira…)

Tveir dagar eftir

Nú styttist í annan endann í ferð Eyjakonunnar Sarah Hamilton en hún hjólar nú, ásamt systur sinni milli syðsta og nyrsta odda Bretlands. Þær systur eru nú staddar í bænum Inverness, í norðurhluta Skotlands og hjóluðu 118 km. í gær. Veðrið hefur verið þeim hagstætt en í gær voru þó stöku skúrir og sól þess […]

Brennan verður kringlótt í ár

Þjóðhátíðin verður að breytast. Þjóðhátíðarnefnd hefur því ákveðið að brennan verði kringlótt í ár. Þessi ákvörðun var tekin eftir heimsókn Þjóðhátíðarnefndar til bæjarins Pamplona á Spáni, þar fer fram á hverju ári rosalegt nautahlaup. Þar safnast saman ofurhugar og spennufíklar. Þeir koma sér fyrir í þröngum lokuðum götum. Brjáluðum og banhungruðum slefandi tuddum er svo […]

�??Skjót viðbrögð skiptu sköpum�??

„Við vorum nýlega komnir á miðin, vorum búnir að toga í smástund, klukkutíma eða svo, þegar brunakerfið fór í gang,“ segir Gunnar Þór Friðriksson, skipstjóri á humarbátnum Maggý VE-108, en eldur kom upp í bátnum í morgun. Engan sakaði en Gunnar Þór segir rafkerfi og vélbúnað bátsins nokkuð skemmdan. (meira…)

Gerum sjóklárt og búum okkur undir dómstólaleiðina

Eins og áður hefur komið fram hefur Kaupþing stefnt Vestmannaeyjabæ til riftunar greiðslu Kaupþings hf. til Vestmannaeyjabæjar frá 8. september 2008, að fjárhæð kr. 1.013.229.250. Um leið er þess krafist að Vestmannaeyjabær greiði Kaupþingi hf. þessa sömu fjárhæð til baka. Í stefnunni kemur fram að málið snúist um að þann 8. september greiddi Kaupþing hf […]

Boðið til sögugöngu og leik­dagskrár

Dagana 17.-19. júlí eru 385 ár liðin frá Tyrkjaráninu. Í tilefni af því verður boðið upp á sögugöngu á morgun, fimmtudaginn 19. júlí, um slóðir Tyrkjaránsins sem lýkur með dagskrá við Skansinn. Sameinast verður í bíla við Safna­húsið kl. 18:00. Þeir sem tök hafa á eru vinsamlegast beðnir um að mæta þá og taka með […]

Maggý Ve 108 komin til Eyja

Vel gekk að draga Maggý VE til hafnar. Í fyrstu tók björgunarbáturinn Þór, Maggý í tog, en Lóðsinn dró bátinn lokaspölinn til Eyja. Eldur kviknaði í vélarrúmi bátsins um ellefu leytið í morgun. Óskar Pétur Friðriksson fór út með björgunarbátnum Þór í morgun og tók þessar myndir af heimferð Maggýar og heimkomunni. Og það urðu […]

Eldur í Maggy VE 108 sem er suður af Eyjum

Eldur kom upp í morgun vélarrúminu í Maggy VE 108, sem 85 tonna bátur í eigu Viðars Elíassonar. Báturinn er suður af Vestmannaeyjum. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta er björgunarbáturinn Þór rétt ókominn að Maggy og einnig er þar farþegabáturinn Stóri Örn, Glófaxi VE og skip að makrílveiðum eru einnig ekki langt frá. Þá er þyrla landheldisgæslunnar […]

�?skað eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna Vestmannaeyjabæjar

Á vef Vestmannaeyjabæjar er óskað eftir til nefningum til Umhverfisverðlauna Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2012, sem undanfarin ár hefur veitt þessi verðlaun í samstarfi við Rótarýklúbb Vestmannaeyja. Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingi, félagasamtökum, stofnunum eða fyrirtæki, sem hefur með athöfnum sínum og snyrtimennsku verið til fyrirmyndar og gert umgengni við náttúru og umhverfi að eðlilegum þætti […]

Svo á að taka meiri kvóta af okkur

Jæja nú koma loksins fréttir úr Verstöðinni. Er búinn að vera laus við og ekki gefið mér tíma í bloggið.Makrílveiðar ganga vel. Unnið á vöktum í öllum húsum. Nú er Sighvatur undir með 370 tonn og Álsey með 300 tonn. Þórunn landaði í gær 90 tonnum af blönduðum afla sem og Gullberg með 80 tonn. […]

Enn óvíst um lundaveiðar í Eyjum

Enn liggur ekki fyrir hvort lundaveiðar verða heimilaðar í Vestmannaeyjum frá ágústbyrjun og beðið er upplýsinga frá fuglafræðingum sem hafa verið að kanna stofninn. Þetta segir Páll Marvin Jónsson, sem situr í bæjarráði Vestmannaeyjabæjar, en ráðið mun funda um málið í lok júlímánaðar. (meira…)

Hamborgarafabrikkan mætir á �?jóðhátíð 2012

Hamborgarafabrikkan og Þjóðhátíð gengu nýverið til samstarfs og mun Hamborgarafabrikkan grilla Fabrikkuborgara í Herjólfsdal um Þjóðhátíðarhelgina. „Það er sönn ánægja að fá Fabrikkuna í dalinn. Þjóðhátíðarnefnd er sífellt að leitast við að bjóða fjölbreyttari þjónustu fyrir Þjóðhátíðargesti og er þetta samstarf liður í því. Hefðbundnar veitingar verða að sjálfsögðu á sínum stað eftir sem áður, […]

Alvarlegir höfuðáverkar

Maður um tvítugt var fluttur með sjúkraflugi til aðhlynningar í Reykjavík eftir að hann var sleginn fyrir utan veitinga­staðinn Volcano með þeim afleiðingum að hann féll aftur fyrir sig um blómaker og lenti með hnakkann í göt­unni. Maðurinn var fluttur á sjúkrahúsið í Eyjum og þaðan með sjúkraflugi til Reykja­víkur og var í framhaldinu lagður […]

Kaupþing stefnir Vestmannaeyjabæ

Á fundi bæjarráðs Vestmannaeyja í gær, var fjallað um stefnu frá Kaupþing hf á hendur Vestmannaeyjabæ frá 27. júní síðastliðnum. Í henni er þess annarsvegar krafist að rift verði greiðslu Kaupþings hf. til Vetmannaeyjabæjar frá 8. september 2008, að fjárhæð kr. 1.013.229.250, og hinsvegar er þess krafist að Vestmannaeyjabær greiði Kaupþingi hf. þessa sömu fjárhæð […]

Dans á Rósum hitar upp á Spot á laugardag

Eyjasveitin Dans á Rósum er orðin ómissandi þáttur á þjóðhátíð en fjölmargir aðdáendur sveitarinnar skemmta sér best á Tjarnarsviðinu, heimavelli sveitarinnar. Nú ætlar hljómsveitin að hita upp fyrir hátíðina á sérstöku upphitunarballi á skemmtistaðnum Spot í Kópavogi en þetta er tíunda árið í röð sem sveitin hitar þannig upp fyrir þjóðhátíð. (meira…)

Töpuðu með þremur gegn Val

ÍBV tapaði með þremur mörkum gegn engu í gærkvöldi fyrir Val en liðin áttust við á Vodafonevellinum í Reykjavík. Staðan var 0:0 í hálfleik og voru Eyjastúlkur sterkari framan af leik en Valur gerði öll þrjú mörkin á fjórum mínútum, 53., 54. og 57. mínútu. (meira…)

Cara Memilih Situs Joker123 Di Tahun 2020

Hallo semuanya yang sedang membaca tulisan ini. Gimana hari anda? Di kesempatan kali ini saya akan mengulas satu permainan judi yang amat di gemari oleh orang-orang indonesia dan akhir-akhir ini menjadi begitu marak di dunia. Ya benar itu adalah situs judi slot online yang Menjadi salah satu permainan judi yang saat ini banyak dimainkan. Apakah […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.