Biðlar til ráðherra um lyf við MS

Um 20 MS sjúklingar fá ekki nýtt lyf eftir að þeim var gert að hætta notkun eldra lyfs vegna aukinnar hættu á heilabólgu. Einn þeirra biðlar til stjórnvalda að leysa málið. Guðrún Kristmannsdóttir segist hafa náð botninum í baráttu sinni við MS sjúkdóminn fyrir fimm árum. Í kjölfarið hafi líf hennar gjörbreyst til hins betra […]
Makrílveiðar að hefjast

„Veiðin er rétt að byrja, þetta er fjórði dagurinn. Við erum að finna hann, þetta er allt í lagi en ekkert meira en það,“ sagði Guðmundur Ingi Guðmundsson, stýrimaður á Hugin VE, þegar hann var spurður út í makrílveiðina á miðvikudagsmorgun. „Við erum 20 mílur suður af Eyjum og allt fryst til manneldis um borð. […]
Safna undirskriftum gegn staðsetningu hótels í Hásteinsgryfju

Undirskriftalistar hafa legið frammi í verslunum í bænum undanfarna daga en þar er fólk hvatt til að skrifa undir mótmæli við fyrirhugaðri byggingu hótels í Hásteinsgryfjunni. Í formála undirskriftalistans er farið yfir helstu rökin fyrir því að þar eigi ekki að rísa hótelbygging og ítrekað að ekki sé verið að mótmæla byggingu hótels, heldur staðsetningunni. […]
Engir bekkjabílar í ár?

Þeir aðilar sem hafa verið með bekkjabíla á þjóðhátíð hafa haft samband við ritstjórn Frétta undanfarið og sagt frá áhyggjum sínum yfir því að nú eigi að banna bekkjabíla á næstu þjóðhátíð. Einn af þeim sem hafa ekið bekkjabíl, og vildi ekki koma fram undir nafni, sagði í samtali við Fréttir að hann væri mjög […]
Enn og aftur skemmdir á Skanssvæði

Þegar staðarhaldari kom við á Skanssvæðinu í morgun, blasti við heldur ófögur sjón. Enn og aftur var búið að valda skemmdum á svæðinu. Þannig var ljós brotið og skemmt, rusli var dreift um svæðið, fáni dreginn niður og bekkjum snúið á hvolf. Málið er í höndum lögreglunnar en myndir af viðkomandi skemmdarvörgum náðust á öryggismyndavél. […]
Mjósleginn makríll í upphafi vertíðar

Fyrstu skipin eru byrjuð makrílveiðar í íslenskri lögsögu og voru í gær um 35 mílur suður af Vestmannaeyjum. Aflabrögð mættu vera betri, sagði skipstjórinn á Sighvati Bjarnasyni, og enn er makríllinn heldur mjósleginn. (meira…)
Ekki mjög bjartsýnn á lundann

Ástand lundastofnsins eru flestum Eyjamönnum áhyggjuefni. Varp lundans hefur undanfarin ár misfarist og er ætisskorti kennt um. Einhverjar bjartsýni gætir nú hjá lundakörlum um að eitthvað sé að birta til. Einn af þeim sem alla sína tíð hefur fylgst glöggt með lundanum auk þess að vera veiðimaður í Bjarnarey, er Haraldur Geir Hlöðversson. Halldór Halldórsson […]
Leifur til liðs við HK

Handknattleiksmaðurinn Leifur Jóhannesson hefur ákveðið að söðla um og ganga í raðir Íslandsmeistara HK. Leifur gerði þriggja ára samning við HK, sem varð Íslandsmeistari á vordögum undir stjórn þeirra Erlings Richardssonar og Kristins Guðmundssonar. Erlingur mun einmitt þjálfa hjá ÍBV næsta vetur og mun Kristinn einn sjá um þjálfun HK. (meira…)
Líka stórsigur hjá KFS

Sjálfsagt vilja Selfyssingar gleyma þessum knattspyrnudegi sem fyrst. Kvennalið Selfoss tapaði fyrir ÍBV á Hásteinsvelli 7:1 og á Helgafellsvelli lagði KFS lið Árborgar að velli 7:2. Samalagt höfðu Vestmannaeyingar því 14:3 sigur gegn Selfyssingum í dag. (meira…)
Magnaður fyrri hálfleikur hjá ÍBV

ÍBV vann stórsigur á nágrönnum sínum frá Selfossi í Pepsídeildkvenna en liðin áttust við á Hásteinsvelli nú í kvöld. Lokatölur urðu 7:1 en það voru reyndar líka hálfleikstölur. Dálítið sérstakt að skora sjö mörk í fyrri hálfleik en ekki eitt einasta í þeim síðari en það kom ekki að sök því Selfoss skoraði ekki heldur […]
Fimm gripnir án þess að vera með belti

Vikan var með rólegra móti og ekkert um alvarleg mál sem upp komu. Skemmtanahald helgarinnar fór vel fram og engin teljandi vandræði í kringum skemmtistaði bæjarins. Að vanda var eitthvað um kvartanir vegna hávaða í heimahúsum sem tókst að leysa farsællega. (meira…)
Suðurlandsslagur hjá KFS

Knattspyrnuunnendur í Eyjum ættu að hafa nóg fyrir stafni í dag. Fyrir utan leikina tvo í Evrópumóti landsliða, sem sýndir eru í sjónvarpinu, er hægt að sjá tvo leiki í Eyjum. Eins og áður hefur komið fram tekur kvennalið ÍBV á móti Selfoss í kvöld klukkan 18:00. Á sama tíma tekur KFS á móti Árborg […]
�?óra Arnórsdóttir fundar í Eyjum á þriðjudagskvöld

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi, býður Eyjamönnum til opins fundar í Akóges á morgun, þriðudaginn 12. júní kl. 20.00. Þar mun hún kynna áherslur sínar í forsetakjörinu, – sína sýn á embætttið og svara spurningum sem brenna á gestum. (meira…)
ÍBV mætir Breiðabliki í bikarkeppni kvenna

Nú í hádeginu var dregið í 16 liða úrslitum í Borgunarbikar karla og kvenna. Kvennalið ÍBV fékk heimaleik gegn Breiðabliki en Blikar unnu ÍBV á dögunum í Íslandsmótinu á Hásteinsvelli 0:1 í jöfnum og skemmtilegum leik. Karlalið ÍBV mætir Víkingi á Ólafsvík á morgun í 32ja liða úrslitum. (meira…)
Taka á móti nýliðunum í dag

Kvennalið ÍBV tekur á móti Selfossi í Pepsídeild kvenna á Hásteinsvelli klukkan 18:00 í dag. Nýliðar Selfoss hafa farið vel af stað í Íslandsmótinu en liðið er í 6. sæti, hefur unnið tvo leiki, gert eitt jafntefli og tapað tveimur. ÍBV er hins vegar í 4. sæti, hefur unnið þrjá leiki en tapað tveimur. (meira…)
Keppti meðal þeirra bestu
Um helgina var haldin árleg Erzberg enduro-keppni í Austurríki en hún er talin ein þeirra erfiðustu í motorcross-heiminum. Vestmannaeyingurinn Benóný Benónýsson tók þátt í keppninni í ár, fyrstur Íslendinga, en hann keppir á GasGas 300ec. (meira…)
Vinsæl færeysk tónlistarkona í Vinaminni

Færeyska tónlistarkonan Guðríð Hanson kemur fram á tónleikum í Vinaminni næstkomandi laugardag. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 en Guðríð hefur vakið verðskuldaða athygli undanfarið fyrir nýjustu plötu sína, Beyond the Grey. (meira…)
Egils Gull mótið hefst í dag

Nú í morgunsárið er að hefjast Egils Gull mótið í golfi en mótið er annað stigamótið í Eimskipsmótaröðinni, sem er Íslandsmót kylfinga. Völlurinn í Eyjum skartar sínu fegursta og hefur sjaldan verið betri en einmitt nú en veðrið er eitthvað að stríða kylfingum því nokkur vindur er í Eyjum og í mestu hviðunum fer vindhraðinn […]
Lundavarpið byrjar betur en of snemmt að gleðjast

Lundavarpið í Vestmannaeyjum er byrjað og það á eðlilegum tíma. Þar að auki hefur verið orpið í fleiri holur en undanfarin ár. Erpur Snær Hansen, líffræðingur og forstöðumaður vistfræðirannsókna hjá Náttúrustofu Suðurlands, segist þó í Morgunblaðinu í dag ekki þora að vera of bjartsýnn. Vísbendingar séu um að mikið sé um að egg séu afrækt. […]
Karlakórinn Söngbræður í Höllinni í kvöld

Karlakórnum Söngbræður úr Borgarfirði heimsækir Eyjarnar í kvöld, föstudaginn 8. júní. Ákveðið hefur verið að halda söngskemmtun í Höllinni, kl. 21:00. Stjórnandi kórsins er Viðar Guðmundsson, en hann er ættaður úr Borgarfirði, en býr nú með sauðfé á Ströndum, en er auk þess kórstjóri, organisti, píanóleikari og tónlistarkennari. (meira…)