Hafró með opinn fund í kvöld

Hafrannsóknastofnun boðar til opins fundar um veiðiráðgjöf komandi fiskveiðiárs og starfsemi stofnunarinnar, á Hótel Vestmannaeyjum í kvöld klukkan 20:00. Formleg dagskrá og erindi hefjast hins vegar ekki fyrr en klukkan 20.30 vegna EM í fótbolta. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri, ásamt sérfræðingum mun kynna nýútkomna skýrslu stofnunarinnar. Að erindum loknum verður opnað fyrir almennar umræður. (meira…)
16 ára með fíkniefni

Töluverður erill var hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum sl. viku og ýmis verkefni sem lögreglan þurfti að sinna. Margar kvartanir bárust lögreglu vegna hávaða í heimahúsum þannig að nágrannar áttu erfitt með svefn. Eitt minniháttar fíkniefnamál kom upp í vikunni. Um var að ræða 16 ára dreng sem viðurkenndi neyslu og vörslu fíkniefna. Mál hans var […]
Vegna samþykktar laga um veiðigjöld

Landssamband íslenskra útvegsmanna harmar þá ákvörðun Alþingis að samþykkja lög sem munu þrefalda veiðigjöld á næsta fiskveiðiári. Hækkunin mun hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir einstök fyrirtæki og byggðarlög, eins og bent hefur verið á í fjölmörgum umsögnum sem bárust atvinnuveganefnd. (meira…)
Brekkusöngurinn verður stærsta gítarpartí fyrr og síðar

Allir gestir á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar munu fá eintak af rafrænni söngvabók með textum og gítargripum svo þeir geti sungið og spilað með í Brekkusöngnum um kvöldið. Þjóðhátíðarnefnd handsalaði samning um það við íslensku gítarsíðuna guitarparty.com fyrir þremur vikum. (meira…)
ÍBV berst gegn hvers konar ofbeldi

ÍBV-Íþróttafélag og Þjóðhátíðarnefnd ÍBV hlaut í dag, Bleiku Steinana, hvatningarverðlaun Feministafélags Íslands. Bleiku steinarnir voru fyrst afhentir árið 2003 á stofnári Feministafélagsins. Þá voru viðtakendur verðlaunana Forseti Íslands, Borgarstjóri Reykjavíkur, Biskup Íslands og heilbrigðisráðherra. Síðan þá hafa m.a Hæstiréttur, Dómarafélag Íslands og allir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands hlotið viðurkenninguna. (meira…)
�?jóðhátíðarnefnd og ÍBV fá hvatningarverðlaun Femínista

Bleiku steinarnir, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands, eru afhentir í dag. Handhafar bleiku steinanna að þessu sinni eru Þjóðhátíðarnefnd og stjórn ÍBV. Bleiku steinunum er ætlað að hvetja viðtakendur til að hafa jafnréttissjónarmið ætíð að leiðarljósi í verkum sínum. Ofangreindir aðilar hljóta þessa hvatningu í ljósi komandi hátíðarhalda Þjóðhátíðar í Vestmanneyjum síðar í sumar. (meira…)
�?keypis í handboltaskóla ÍBV

Í dag mun ÍBV hefja opnar handboltaæfingar. Æfingarnar verða í sex vikur (fram að þjóðhátíð) á mánudögum og miðvikudögum frá 16:30-18:00. Þjálfarateymið er frekar öflugt, Erlingur Rikka, Arnar Péturs, Svavar Vignisson, Siggi Braga, Jakob Lárusson, Unnur Sigmars ofl. (meira…)
í fagnaðarlátum Eyjamanna eftir leik. Guðmundur stökk þá upp og tók lagið

þetta var geðveikt (meira…)
Læt sjúkraþjálfarann dekra við mig

Guðmundur Þórarinsson, leikmaður ÍBV, vonast til að ná leik liðsins gegn Grindavík á miðvikudag. Guðmundur fór meiddur af velli á 80. mínútu í 4-0 sigrinum á ÍA á föstudagskvöld eftir að hafa meiðst á læri. „Ég losaði boltann frá mér og síðan fór Garðar (Bergmann Gunnlaugsson) í mig. Þetta var skelfilega vont, sagði Guðmundur við […]
Nostalgían

Páll Scheving Ingvarsson, bæjarfulltrúi skrifaði áhugaverða grein í Þjóðhátíðarblaðið árið 2009. Í greininni veltir Páll fyrir sér hvernig brottfluttir Eyjamenn sjái fyrir sér æskuslóðirnar og hvernig íbúar í Vestmannaeyjum sjái fyrir sér þjóðhátíð. Greinin er merkileg fyrir þær sakir að hún á jafn vel við í dag og fyrir þremur árum síðan. Greinina má lesa […]
Hjóla þvert og endilangt um Bretland

Þann 7. júlí ætla systurnar Sarah Hamilton og Claire Butler að hefja hjólatúr á reiðhjólum en markmiðið er að hjóla frá syðsta odda Bretlands, Lands End, að nyrsta odda landsins, John O´Groats. Ekki nóg með að þær systur ætli að hjóla um 1600 kílómetra heldur safna þær nú áheitum til styrktar rannsóknum, meðferð og fræðslu […]
Dagskrá 17. júní í Eyjum

Venju samkvæmt verður haldið upp á Þjóðhátíðardag lýðveldisins, 17. júní í Vestmannaeyjum. Hátíðahöldin hefjast með skrúðgöngu og verður gengið 13:30 frá Íþróttamiðstöðinni að Stakkó, þar sem hátíðahöldin fara fram. Þar mum Fjallkonan, Kristín Sjöfn Ómarsdóttir flytja hátíðarljóð auk þess sem nýstúdent ávarpar gesti og gangandi. Auk þess verður boðið upp á tónlistaratriði, Leikfélag Vestmannaeyja verður […]
Ásta Lilja Sumarstúlkan 2012

Nú fyrir stundu var tilkynnt hvaða stúlka væri Sumarstúlkan 2012. Tólf glæsilegar stúlkur tóku þátt í keppninni í ár en að lokum var Ásta Lilja Gunnarsdóttir valin Sumarstúlkan en Ásta Lilja er vel að sigrinum komin. Keppnin var öll hin glæsilegasta og sjaldan sem keppendur hafa fengið jafn glæsileg verðlaun fyrir að taka þátt. (meira…)
Sumarstúlkukeppnin í kvöld

Sumarstúlka Vestmannaeyja verður valin í kvöld, laugardagskvöldið 16. júni í Höllinni, sem stendur að keppninni ásamt Fréttum. Að þessu sinni taka tólf stórglæsilegar stúlkur þátt í keppninni, sem er nú haldin í 26. skiptið. Að venju verður í boði glæsilegur matseðill sem kvemur frá Einsa Kalda. Ýmis skemmtiatriði verða á dagskránni eins og alltaf t.d. […]
Geri ráð fyrir erfiðum leik

ÍBV sækir ÍA heim í kvöld í Pepsídeild karla en leikur liðanna hefst klukkan 20:00. Nýliðar ÍA hafa farið mjög vel af stað í Íslandsmótinu en liðið er í efsta sæti deildarinnar og hefur unnið fjóra leiki og gert tvö jafntefli. ÍBV fór hins vegar illa af stað í mótinu en hefur verið að ná […]
Mögnuð tilfinning að hafa þverhníptan hamravegginn á hægri hönd

Ég nýt þess að sigla inn mikilfenglegustu innsiglingu í heimi. Mig hefur lengi langað til að heimsækja þessa mögnuðu eyju sem hefur að geyma alla þessa stórbrotnu náttúru. Leið mín liggur inn í þann fræga Herjólfsdal. Ég geng hughrifin eftir Hamarsveginum, það er mögnuð tilfinning að hafa þverhníptan hamravegginn á hægri hönd og fuglagargið allt […]
Nýr �??take away�?? staður á hafnarsvæðinu

Hallgrímur S Rögnvaldsson og Wenyi Zeng ætla að setja upp „take away“ stað á hafnarsvæðinu þar sem boðið verður upp á kínverska og asíska skyndirétti. „Þetta hefur verið draumur hjá konunni frá því hún kom hingað enda er hún mjög mikið inni í matargerð. Systir hennar er með stórt veitingahús úti í Guangzhou og þar […]
Verslunin Jazz hættir og Subway kemur inn

Verslunin Jazz hættir þann 25. júní þar sem eigendur verslunarinnar, sem reka heildverslunina Gró og Markaðstorgið Kringlunni, hafa selt húsnæðið til rekstararaðila Subway. „Við ætlum ekki að vera með verslun í Vestmannaeyjum,“ sagði Þorsteinn Þorsteinsson, annar eigendanna, þegar hann var spurður út í stöðuna. „Við rekum Markaðstorgið í Kringlunni og verðum með vefsíðu sem Vestmannaeyingar […]
Rúmlega 600 stelpur taka þátt

Um sexhundruð stúlkur komu til Eyja í gær, miðvikudag, til að taka þátt í einu stærsta knattspyrnumóti ársins fyrir stúlkur, Pæjumóti TM og ÍBV. Alls taka 56 lið þátt í mótinu í ár, frá 19 félögum en mótið hófst svo snemma í morgun, fimmtudag, með fyrstu leikjunum. Mótinu lýkur svo um eða rétt eftir hádegi […]
Biðlar til ráðherra um lyf við MS

Um 20 MS sjúklingar fá ekki nýtt lyf eftir að þeim var gert að hætta notkun eldra lyfs vegna aukinnar hættu á heilabólgu. Einn þeirra biðlar til stjórnvalda að leysa málið. Guðrún Kristmannsdóttir segist hafa náð botninum í baráttu sinni við MS sjúkdóminn fyrir fimm árum. Í kjölfarið hafi líf hennar gjörbreyst til hins betra […]