Fullnægjandi vernd og löggæsla verði allan sólarhringinn

„Nú liggur fyrir að vegna niður­­- s­kurðar og missi sértekna vegna sjúkraflutninga hefur embætti lög­reglustjórans í Vestmannaeyjum ekki lengur fjármagn til þess að tryggja íbúum Vestmannaeyja löggæslu allan sólarhringinn eins og verið hefur,“ segir í ályktun bæjarráðs frá því á þriðjudaginn. Þar segir að fyrir liggi að lög­reglustjóri hafi boðað breytingu á vaktafyrirkomulagi lögreglunnar í […]

Aðeins sex tíma stím á miðin

Makrílvinnsla er um það bil að komast á fullan snúning í Vinnslu­stöðinni. Kap VE og Sighvatur VE skiptast um að sækja aflann og er aðeins sex tíma stím á miðin. Ísfélagið er að undirbúa veiðar og Huginn VE hefur þegar landað fryst­um afurðum. (meira…)

Hryggbrotnaði við sprang í Eyjum

Ástríður Jóna Guðmundsdóttir liggur hryggbrotin á bæklunardeild Landspítalans í Fossvogi eftir að hafa fallið úr yfir tveggja metra hæð í Spröngunni í Vestmannaeyjum. Hún segir að merkingar á staðnum hefðu mátt vera betri, en leggur áherslu á að við engan sé að sakast, þetta hafi einfaldlega verið slys. (meira…)

�?tlar að hlaupa 100 kílómetra

Sæbjörg Logadóttir tekur þátt í 100 kílómetra hlaupi sem fer fram í Reykjavík á laugardaginn. Hlaupið hefst í Nauthólsvík og þátttakendur hlaupa fimm kíló­metra hring tuttugu sinnum. Tuttugu manns eru skráðir í hlaupið, þar af þrjár konur og hver og einn hefur 13 tíma til að ljúka hlaupinu. Sæbjörg er vel undirbúin fyrir hlaupið og […]

ÍBV heldur áfram á sigurbraut

Kvennalið ÍBV hélt áfram sigurgöngu sinni í kvöld þegar stelpurnar tóku á móti Þrótti í nýliðaslag Pepsídeildarinnar. Leikurinn fór fram við frábærar aðstæður á Hásteinsvelli en í fyrri hálfleik voru Eyjastúlkur mun sterkari, skoruðu tvö mörk sem hefðu hæglega getað verið fleiri. Í síðari hálfleik var leikurinn hins vegar mun jafnari og fengu bæði lið […]

Afkoma 1000 í hættu

Páley Borgþórsdóttir, formaður bæjarráðs, segir ekkert of sagt í ályktuninni og varar ekki síst við minna frumvarpinu sem sé í raun úlfur í sauðagæru. „Það er verið að telja okkur trú um að það sé lítið og saklaust og skipti litlu máli fyrir okkur. Svo er alls ekki því það opnar allar gáttir að stóra […]

Ísfélagið missir allt að 40 prósent þorskkvótans strax í haust

Í ályktun sem bæjarráð sendi frá sér á þriðjudaginn er dregin upp mjög dökk mynd af því sem getur gerst í Vestmannaeyjum verði frumvörp sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða að lögum. Auk þess muni þau koma harkalega nið­ur á allri íslensku þjóðinni þar sem arðbærni og þjóðhagslegri hag­kvæmni sjávarútvegsins er varpað fyrir róða. (meira…)

Halda stelpurnar áfram sigurgöngu sinni?

ÍBV tekur á móti Þrótti í 4. umferð Pepsídeildar kvenna í kvöld á Hásteinsvellinum en leikurinn hefst klukkan 18:00. ÍBV hefur unnið fyrstu þrjá leikina og á enn eftir að fá á sig mark en hefur skorað tólf mörk. Þróttur hefur hins vegar gert tvö jafntefli, gegn KR og Breiðabliki en tapað fyrir Stjörnunni. Það […]

Tap í kuldanum á Akureyri

Eyjamönnum mistókst að ná efsta sætinu fyrir pásuna sem gerð verður á Íslandsmótinu vegna þátttöku U-21 árs landsliðs Íslands á Evrópumótinu. ÍBV tapaði í kvöld fyrir Þór á Akureyri en lokatölur urðu 2:1. KR-ingar eru í efsta sætinu og halda því óháð úrslitum í leik sínum gegn FH því aðeins Valsmenn geta náð þeim að […]

Tonny og Abel enn í �?ganda

Úgönsku leikmennirnir Tonny Mawejje og Abel Dhaira eru enn í Úganda. Þeir léku með úganska landsliðinu gegn Guinea Bissau og unnu 2:0 en Tonny var í byrjunarliðinu en Abel sat á bekknum. Þeir áttu að koma aftur til landsins á sunnudag og spila með ÍBV gegn Þór á Akureyri í kvöld en nú er ljóst […]

Vinir Sjonna í Höllini um hvítasunnuna

Súpergrúbban Vinir Sjonna, þeir Hreimur, Viggi, Gunni, Matti, Pálmi og Benni, skemmtir gestum Hallarinnar um Hvítasunnuna, nánar tiltekið hefur hún leik eftir miðnætti á Hvítasunnukvöld. Lokahóf SJÓVE verður haldið i Höllinni á Hvítasunnukvöld, þ.a. það ætti að vera orðið rúmlega ballfært þegar húsið opnar á miðnætti. Peyjarnir slógu í gegn í aðdraganda Eurovision forkeppninnar hér […]

Arðbærni og þjóðhagslegri hagkvæmni sjávarútvegsins varpað fyrir róða

Bæjarráð Vestmannaeyjabæjar lýsir þungum áhyggjum yfir frumvörpum ríkisstjórnarinnar um breytingu á lögum um stjórn fisveiða. Ef frumvörpin taka gildi munu þau koma harkalega niður á allri íslensku þjóðinni þar sem arðbærni og þjóðhagslegri hagkvæmni sjávarútvegsins er varpað fyrir róða. Íslenskur sjávarútvegur er sjálfbær og er Ísland eina þjóðin sem getur státað af sjávarútvegi sem er […]

Mótmæla frumvörpum um fiskveiðistjórnunina

Aðalfundur Sjómannafélagsins Jötuns, haldinn þann 3. júní 2011, mótmælir harðlega framkomnum frumvörpum sjávarútvegsráðherra um fiskveiðistjórnunina og skorar á sjávarútvegsráðherra að draga þau til baka að hluta til. Aðalfundur Sjómannafélagsins Jötuns 2011 telur mjög alvarlegt ef ráðherra eða framkvæmdavaldinu almennt sé gefið víðtækt vald með setningu reglugerða um ýmis mikilvæg atriði. (meira…)

Varpið seint og útlitið ekki gott

Útlitið er ekki gott fyrir lunda- og kríuvarp í ár. Síendurtekinn afkomubrestur hefur orðið síðustu sumur vegna breytinga á lífríkinu í sjónum og hefur umhverfisráðherra biðlað til landeigenda að takmarka eða fella niður eggjatöku og hlunnindaveiðar í sumar vegna lélegs ástands margra sjófuglastofna. „Þetta byrjar frekar endasleppt og maður er nú hálfkvíðinn fyrir sumrinu,“ segir […]

ÍBV sækir �?ór heim í kvöld

Karlalið ÍBV sækir Þór heim í kvöld norður til Akureyrar en leikurinn hefst klukkan 19:15. Eyjamenn hafa spilað feykna vel í síðustu leikjum og eru í öðru sæti Pepsídeildarinnar, aðeins stigi á eftir KR sem er efst. Nýliðum Þórsara hefur hins vegar ekki gengið eins vel í byrjun móts, liðið hefur aðeins unnið einn leik […]

Meta þarf afleiðingar áður en lengra er haldið

Stjórn og trúnaðarráð Drífanda stéttarfélags lýsir miklum áhyggjum yfir þeim hraða og þeirri pressu sem sett er á breytingar á lögum um fiskveiðistjórnunarkerfið. Nauðsynlegt er að meta afleiðingar þessara breytinga á einstök byggðalög og íbúa þeirra áður en lengra er haldið. Ekki hefur verið á nokkurn hátt sýnt fram á samfélagslegan ávinning af þessum breytingum […]

ÍBV eignast nýja rútu

ÍBV- íþróttafélag festi kaup á nýrri og glæsilegri 50 sæta rútu í síðustu viku. Rútan hefur verið merkt ÍBV og styrktaraðilum kaupanna í bak og fyrir og á eflaust eftir að vekja athygli hvert sem hún fer. Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags segir að með kaupunum sé félagið að spara sér umtalsverð útgjöld í leigu […]

�?okkalega róleg sjómannadagshelgi

Það var í mörg horn á líta hjá lögreglu í vikunni sem leið og þá sérstaklega um helgina enda sjómannadagshelgin og mikið um ýmiskonar uppákomur. Skemmtanahald helgarinnar fór ágætlega fram og án teljandi vandræða. Lögreglan þurfti samt sem áður að aðstoða fólk til síns heima sökum ölvunarástands þess. Þá var eitthvað um pústra en einungis […]

Mynd um grálúðuveiðar komin á netið

Á Hátíðarsamkomu sjómanna í Höllinni á laugardaginn frumsýndi Elvar Aron Björnsson heimildamynd sína um grálúðuveiðar en fyrr á þessu ári fóru Vestmannaey VE 444 og Bergey VE 544 á tílemba grálúðuveiðar 50 sjómílur austur af Íslandi. Elvar Aron var að leysa af á Vestmannaey og kvikmyndaði það sem fyrir augu bar. Myndina er nú hægt […]

Ungir sjálfstæðismenn á suðurlandi Vilja efla forvarnir en ekki takmarka sölu tóbaks

Félög ungra sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi fordæma nýja þingsályktunartillögu um að velferðarráðherra vinni 10 ára aðgerðaáætlun um tóbaksvarnir þar sem sala á tóbaki verði takmörkuð við apótek. Full ástæða er til þess að efla forvarnarstarf varðandi tóbaksnotkun, en það verður ekki best gert með því að vega svo heiftarlega að frelsi einstaklinga líkt og umrædd tillaga […]

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.